James Marsh

James Marsh í fókus

James Marsh veit að veruleikinn er miklu ótrúlegri en skáldskapurinn og að sumar sögur kemstu bara upp með að segja ef þær eru sannar. Þetta eru sögurnar sem Marsh hefur getið sér hvað best orð fyrir í frábærum heimildarmyndum sem eru gríðarlega þétt ofnar og nýta skáldlegar aðferðir við að miðla dagsönnum furðusögum. Frásagnargáfa hans nýtur sín þó einnig í leiknum myndum og færni hans á báðum sviðum hefur stundum kallað á samanburð við Werner Herzog.


Marsh er fæddur í Truro í Cornwall, Englandi, árið 1963 og ólst upp þar og í Lundúnum. Hann hóf að gera heimildarmyndir fyrir sjónvarp snemma á tíunda áratugnum. Fyrir kvikmyndina Á feigðarflani í Wisconsin hlaut hann BAFTA verðlaun fyrir bestu heimildarmynd. Konungurinn, fyrsta leikna mynd hans, var sýnd á Cannes 2005. Maðurinn á vírnum skaut Marsh svo endanlega upp á stjörnuhimininn þegar hún vann Óskarsverðlaun árið 2009 sem besta heimildamyndin. Nýjasta leikna mynd Marsh nefnist Red Riding 1980 og byggir á skáldsögu David Peace. Um þessar mundir sópar heimildarmyndin Nim verkefnið að sér verðlaunum, t.a.m. á Sundance hátíðinni þar sem hún stal senunni.


Marsh er meðal gesta á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík í ár og verða þrjár mynda hans sýndar; Á feigðarflani í Wisconsin, Maðurinn á vírnum og Nim verkefnið.

Sign up for our newsletter












Samstarfsaðilar:


/media/w200/6b285461da7e2bd0.png
/media/w200/ba539ba79631a079.jpg
/media/w200/34e62c364654d89f.png
/media/w200/18477d4a9f633ed.png
/media/w200/17f493746e20fe7d.png
/media/w200/4717f7ec7c31443.png
/media/w100/eae257cc4b4078b2.gif
/media/w100/e7ef44bca39259f5.png
/media/w100/6c46fa595e85811.gif
/media/w100/4cd1e2496643e64.jpg
/media/w100/afb342a6608e17.jpg
/media/w100/907c28a420ed6b2e.gif
/media/w100/cd5df2cfff2ff9f.png
/media/w100/7c17ef6b8a556a73.jpg
/media/w100/1679c418281c9673.png
/media/w100/16c847aa790d5f8.png
/media/w100/51472c12822f1352.png
/media/w100/6360e1c94cca2410.jpg
/media/w100/e29c28125e573167.gif
/media/w100/2cc55c843deea9ae.png
/media/w100/9e795186d898f58.png
/media/w100/a1fe26c1d1572685.png
/media/w100/f1783999d6ed9d8.png
/media/w100/63b9b843aea67a29.png
/media/w100/882484ea5719307d.png
/media/w100/1092fcff5a795e2.png
/media/w100/f1eea32dbd38a7b5.png
/media/w100/7dd749e3e330ccd3.png
/media/w100/dd375a438464c6d4.png
/media/w100/f278d66c74344784.jpg
/media/w100/a3a9c86bc01692e1.jpg
/media/w100/d133fe5ef5b5b66d.jpg
/media/w100/0be2bda4735a815.png
/media/w100/7f85cd32b7e7c81c.jpg
/media/w100/9724483a1e43126b.jpg
/media/w100/f5db92e98bfa9683.jpg
/media/w100/2919e5e4ec242bf.gif

Do you want to visit Reykjavík?

We have all the information you need to book your trip.