September 23rd 2009
Fjölmenni á bílabíói
Bílabíð RIFF var haldið í gær, 22. september á malarplani við Háskóla Íslands. Stuðmannamyndin Með allt á
hreinu eftir Ágúst Guðmundsson, var sýnd í samstarfi við N1. Tæplega 150 bílar lögðu á planinu, stilltu inn á 89,5 og nutu myndarinnar, sem sló öll aðsóknarmet þegar hún var frumsýnd. Eitthvað var um gesti án bíla, sem nutu myndarinnar með ullarteppi, kakó og vel stillt útvarp.
Á Facebook-síðu RIFF má sjá myndir bílabíósins sem Gunnar Gunnarsson, ljósmyndari tók.
