Verðlaun RIFF 2009
Kanadíska kvikmyndin Ég drap móður mína (J´ai Tué
Ma Mère), frumraun leikstjórans Xaviers Dolan, hlaut Gyllta lundann 2009 á RIFF. Í umsögn dómnefndar segir að persónusköpun hafi verið afar sannfærandi og leikstjóranum tekist að setja samband mæðginanna í stórt samhengi. Forvitnilegt verði að fylgjast með ferli leikstjórans í framtíðinni.
Formaður dómnefndar var danska leikkonan Iben Hjejle, sem þekktust er hér á landi fyrir hlutverk sín í sjónvarpþáttunum Klovn og Anna Pihl. Auk hennar sátu í nefndinni Elísabet Ronaldsdóttir kvikmyndaklippari, Sitora Alieva sem hefur meðal annars gegnt stöðu framkvæmdastjóra Opnu rússnesku kvikmyndahátíðarinnar Kinotavr, austurríski leikstjórinn Jessica Hausner og leikkonan Elva Ósk Ólafsdóttir.
FIPRESCI-verðlaunin hlaut sænska mynd leikstjórans Fredrik Ekdfelt, Stúlkan (Flickan) sem segir sögu 10 ára gamallar stúlku, sem er skilin ein eftir en skapar sinn eigin raunveruleika.
Verðlaun kirkjunnar voru veitt í fjórða skipti í ár og hnossið að þessu sinni hlaut norska mynd Matias Armand Jordal, Saman (Sammen) sem segir sögu fjölskyldu sem reynir hvað hún getur að bæta tengslin sín á milli.
Áhorfendaverðlaun RIFF 2009 hlaut íslenski leikstjórinn Janus Bragi Jakobsson fyrir mynd sína, Herramenn (Gentlemen).
Mannúðarverðlaun Rauða Krossins fengu þeir Jean Crousillac og Jean-Marc Sainclair fyrir heimild sína Umoja: Þorpið þar sem karlar eru bannaðir (Umoja: The Village where Men are Forbidden).
Umhverfisverðlaun RIFF voru veitt í fyrsta skipti í ár og þau fékk mynd Brice Laine, Dansandi skógur (Dancing Forest).
