Reykjavik International Film Festival
 
October 27th 2009

Að RIFF 2009 lokinni - takk

Aðstandendur Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík eru í skýjunum með hvernig til tókst á hátíðinni í ár og þegar horft er til baka er ómögulegt annað en að láta í ljós þakklæti til handa þeim sem gerðu hátíðina mögulega. Menntamálaráðuneytið hefur styrkt hátíðina frá upphafi, sem og Reykjavíkurborg, og stuðningur hins opinbera er ómetanlegur fyrir hátíðina.

Þrátt fyrir öldurótið sem umlykur íslenskt efnahagslíf um þessar mundir fékk hátíðin samt þrjá öfluga bakhjarla til liðs við sig í ár en það eru Pósturinn, Center Hotels og Iceland Express. RIFF kann þessum fyrirtækjum sínar bestu þakkir fyrir frábæran stuðning. Eru þá ótalin fjölmörg önnur fyrirtæki sem veitt hafa hátíðinni dýrmætan stuðning í aðdraganda hátíðarinnar.

Fjölmargir sjálfboðaliðar, bæði innlendir og erlendir, lögðu hátíðinni lið á öllum mögulegum vígstöðvum og sáu til þess að hvergi féll verk milli þilja.

Síðast en ekki síst vill Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík þakka ykkur, kæru bíógestir, fyrir metaðsókn á hátíðina 2009. Alls sóttu um 22.000 manns kvikmyndasýningar og aðra tengda viðburði á RIFF auk þess sem hátíðarpassarnir seldust upp hraðar en nokkru sinni. Þessi góðu viðbrögð eru í senn viðurkenning á því að RIFF hafi boðið upp á áhugaverða dagskrá og um leið hvatning til að halda áfram á sömu metnaðarfullu braut. RIFF þakkar öllum framangreindum innilega fyrir samstarf og samveru á hátíðinni í ár og hlakkar til að sjá ykkur öll aftur á RIFF 2010.

Share on Facebook