Reykjavik International Film Festival
 
October 27th 2009

Gullna Eggið 2009

Sigurvegari Kvikmyndasmiðjunnar á RIFF 2009, og þar með handhafi Gullna Eggsins, er hin spænska Anna Bofarull fyrir mynd sína Footnotes. Í umsögn dómnefndar sagði svo: „Footnotes er djörf og heiðarleg skoðun á því hvað það merkir í raun að vera þjóð. Myndin rannsakar  undirmeðvitund hins spænska þjóðernis og bendir á hvað það kostar í raun að vera þjóð, sem er einkar aðkallandi umfjöllunarefni nú á dögum. Footnotes er í senn Marxísk og uppbyggileg stúdía sem kaldhæðnum frásagnarmáta skilar áhrifaríkri upplifun á vandmeðfarið umfjöllunarefni“

Kvikmyndasmiðja RIFF, sem fer fram sem þriggja daga vinnustofa, er fyrir ungt hæfileikafólk frá Evrópu og Ameríku þar sem það fær tækifæri til þess að hittast í Reykjavík og upplifa það sem er að gerast í kvikmyndaiðnaði beggja vegna Atlantshafsins. Þessu unga fólki gefst allt í senn færi á að senda inn kvikmynd, taka þátt í umræðum, hlýða á fyrirlestra, kynnast innbyrðis, networka, o.s.frv. Jafnframt gefst þeim tækifæri á því að kynnast landi og þjóð og sjá hvernig Reykvíkingar halda kvikmyndahátíð.

Alþjóðlega kvikmyndasmiðjan starfar að miklu leyti undir áhrifum frá staðsetningu Íslands þar sem landið er staðsett milli Evrópu og Norður-Ameríku. Staðsetningunni er þannig ætlað að brúa bilið milli heimsálfanna tveggja, landfræðilega og jafnvel enn frekar menningarlega. Í ár komu um 50 einstaklingar frá fjölmörgum löndum til að taka þátt í kvikmyndasmiðjunni, og þar á meðal eru Írland, Spánn, Finnland, Grikkland, Bandaríkin, Rúmenía, Bosnía & Herzogovína, Þýskaland, Danmörk, England, Kanada, Portúgal, Tyrkland og svo auðvitað Ísland.

Valið hæfileikafólk fær tækifæri í Kvikmyndasmiðjunni til þess að hitta reynda leikstjóra og framleiðendur úr kvikmyndageiranum sem koma á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í ár. Ennfremur fær hópurinn tækifæri til þess að senda inn stuttmyndir sínar sem mögulega verða valdar inn í dagskrá RIFF. Stuttmyndirnar keppa loks um Gulleggið, sem eru verðlaun sérstaklega veitt ungu og upprennandi kvikmyndagerðarfólki. 

Share on Facebook