BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//RIFF - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:RIFF
X-ORIGINAL-URL:https://riff.is/en
X-WR-CALDESC:Events for RIFF
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250930T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250930T203000
DTSTAMP:20260407T085829
CREATED:20250909T123833Z
LAST-MODIFIED:20250909T123833Z
UID:63781-1759251600-1759264200@riff.is
SUMMARY:Apichatpong Weerasethakul: Memoria (2021) + Meistaraspjall
DESCRIPTION:Apichatpong Weerasethakul\, sem heiðraður verður á RIFF í ár fyrir einstaka listræna sýn\, er meðal frumlegustu og róttækustu kvikmyndagerðarmanna samtímans.  \nHann fæddist í Bangkok árið 1970 og ólst upp í norðausturhluta Taílands. Hann lærði arkitektúr áður en hann hélt til Chicago í kvikmyndanám\, þar sem hann þróaði sinn einstaka stíl sem snýst um minni\, tilfinningu og andlega leit frekar en hefðbundinn\, línulegan söguþráð. Draumkennt töfraraunsæi er alltumlykjandi. Myndir hans eru þekktar fyrir hæga\, íhugula framvindu og draumkennda færslu milli veruleika og hugarheims. Blissfully Yours (2002) og Tropical Malady (2004) vöktu strax athygli\, en það var Uncle Boonmee Who Can Recall His Past Lives (2010) sem vann til Gullpálmans í Cannes og gerði hann heimsþekktan. \nÞó myndir Apichatpong—sem er af aðdáendum jafnan kallaður Joe—megi virðast ópólitískar við fyrstu sýn\, endurspegla þær oft undirliggjandi átök: ritskoðun\, félagslegt taumhald og bælda sögu Taílands. Hann miðlar fremur með stemningu en yfirlýsingum — kvikmyndir hans líkjast oft óljósum draumum. \nÍ Memoria (2021) ráfar Tilda Swinton um götur Bogotá á flótta undan hljóði sem enginn nema hún heyrir. Úr verður framandi\, fögur og draumkennd upplifun þar sem minningar og ímyndun mætast. Hér er á ferðinni hæglát og seiðandi ráðgáta sem gerist á mörkum tveggja heima. \nSýningin byrjar kl. 17:00 og gert verður 20 mínútna hlé áður en Meistaraspjallið hefst kl. 19:40.
URL:https://riff.is/en/event/apichatpong-weerasethakul-memoria-2021-meistaraspjall/
LOCATION:Háskólabíó – Screening Room 1\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/09/Special-events-FB-11.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR