BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//RIFF - ECPv6.17.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://riff.is/en
X-WR-CALDESC:Events for RIFF
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250927T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250927T183000
DTSTAMP:20250926T181302Z
CREATED:20250901T124912Z
LAST-MODIFIED:20250926T181302Z
UID:63760-1758985200-1758997800@riff.is
SUMMARY:Kim Novak: Vertigo (1958) + Online Meistaraspjall
DESCRIPTION:Á RIFF fögnum við kvikmyndagerðarfólki sem sem lætur sér ekki nægja að fljóta með straumnum heldur marka sína einstöku braut\, varða hana með verkum sínum og vísa þannig veginn fyrir aðra að feta eftir. Í þessum flokki fögnum við þessum einstaklingum\, sýnum verk þeirra og efnum til samtals. \nKim Novak er ein af goðsögnum gullaldar Hollywood\, leikkona sem setti mark sitt á kvikmyndasöguna í verkum sem enn lifa góðu lífi á hvíta tjaldinu og munu gera það um. ókomna tíð. Hún fæddist í Chicago árið 1933 og steig sín fyrstu skref í Hollywood um miðjan sjötta áratuginn. Novak skaust þegar upp á stjörnuhimininn\, ekki einvörðungu sem tákn fegurðar og dularfulls glæsileika\, heldur sem listamaður sem bjó yfir einstöku næmi til að miðla brothættum kjarna sem bjó á bak við glamúrinn. \nFerill hennar spannar fjölmörg eftirminnileg hlutverk\, en hún er ef til vill hvað oftast tengd við meistaraverk Alfred Hitchcock\, Vertigo (1958). Þar skapaði hún eitt flóknasta og áhrifamesta kvenhlutverk kvikmyndasögunnar. Novak starfaði einnig með fleiri risum kvikmyndasögunnar á borð við Otto Preminger\, Billy Wilder og Sidney Lumet\, og sannaði með hverri frammistöðu fjölbreytta leikhæfileika og listrænan styrk. \nKim Novak er þó meira en kvikmyndastjarna. Hún er táknmynd tímabils þegar kvikmyndin var í senn stórbrotin list og ævintýralegur leikvöllur ímyndunaraflsins. Með verkum sínum hefur hún veitt kynslóðum áhorfenda innblástur og minnir okkur á að á bak við goðsögnina leynist ávallt kjarni mannlegra tilfinninga. \n20 mínútna hlé verður á milli sýningu á Vertigo (1958) í sal 2 og Meistaraspjalls í gegnum hljóðfjartæknibúnað í sal 1 sem byrjar kl 17:30. \nEinn af heiðursgestum RIFF 2025\, stórstjarnan Kim Novak\, hefur tilkynnt stjórnendum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík að vegna ófyrirsjáanlegra orsaka verði hún því miður að breyta áætlunum sínum varðandi komuna á RIFF. Í stað þess að koma í eigin persónu mun hún taka þátt í meistaraspjalli í beinni hljóðútsendingu um gervihnött. \n 
URL:https://riff.is/en/event/kim-novak-vertigo-1958-masterclass/
LOCATION:Háskólabío – Screening Room 2 (Screening) and 1 (Masterclass)\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 101
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/09/Special-events-FB-9.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250927T190000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250927T220000
DTSTAMP:20250927T134237Z
CREATED:20250801T131925Z
LAST-MODIFIED:20250927T134237Z
UID:63050-1758999600-1759010400@riff.is
SUMMARY:Sjónræn matarveisla: Big Night (Stóra veislan)
DESCRIPTION:Veisla fyrir skilningarvitin bíður þín á RIFF – í hinni árlegu Sjónrænu matarveislu! Við bjóðum þér á sýningu á hinni margverðlaunuðu Big Night í leikstjórn matgæðingsins Stanley Tucci\, ásamt sérhönnuðum matseðli frá Plantan Bistro – innblásnum af bragði og stemningu myndarinnar. \nBræðurnir Primo og Secondo leggja allt undir með veglegri veislu til heiðurs djassgoðsögninni Louis Prima\, í von um að bjarga ítalska veitingastað sínum í New Jersey. Spennan magnast í eldhúsinu og fleira en pastað nálgast suðumark! \nInnifalið í miðaverðinu er fordrykkur\, þriggja-rétta ítölsk matarveisla frá Plöntunni og miði á Big Night. Réttirnir eru allir vegan.  \nViðburðurinn er haldin í Norræna Húsinu\, Sæmundargata 11\, 102 Reykjavík. Húsið opnar klukkan 18:00 og sýning hefst klukkan 19:00.
URL:https://riff.is/en/event/big-night/
LOCATION:The Nordic House\, Sæmundargata 11\, Reykjavík\, 102\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/08/Special-events-FB-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250928T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250928T210000
DTSTAMP:20250821T131843Z
CREATED:20250731T131734Z
LAST-MODIFIED:20250821T131843Z
UID:62992-1759080600-1759093200@riff.is
SUMMARY:Smakkbíó: Tampopo (Að eilífu\, Ramen)
DESCRIPTION:RIFF sýnir japönsku gamanmyndina Tampopo (Að eilífu\, Ramen) í samstarfi við ástsælasta Ramen stað borgarinnar\, Ramen Momo. Komdu og leyfðu öllum skilningarvitunum að upplifa töfra japanskrar matarmenningar.  \nTampopo er mannbætandi óður til gleðinnar sem góður matur veitir. Tveir vörubílstjórar slysast inn á hrörlega vegasjoppu þar sem ekkjan Tampopo selur ramen núðlur.  Hún biður þá félaga í framhaldinu að hjálpa sér að gera sjoppuna að núðlusjoppu í fremstu röð. Dásamleg mynd sem bragð er af. \nInnifalið í verðinu er smökkun sem innblásin er af Tampopo\, þar á meðal ramen og snarl\, ásamt miða á Tampopo-sýninguna. Einnig verður hægt að kaupa sætar japanskar kræsingar. \nRamen Momo er fyrsti ramen-veitingastaðurinn í Reykjavík sem býður upp á handgerðar núðlur og deiglur (e.dumplings) í notalegu og hlýlegu andrúmslofti. Staðurinn var stofnaður árið 2014 og er þekktur fyrir bragðmiklar súpur\, vegan- og glútenlausa valkosti  og notkun á ferskum\, staðbundnum hráefnum. Frá 2024 hefur veitingastaðurinn starfrækt tvo staði – þann upprunalega við Tryggvagötu og nýja útibúið við Bankastræti – þar sem boðið er upp á ekta kósýmatar-upplifun.
URL:https://riff.is/en/event/smakkbio/
LOCATION:Háskólabíó – Screening Room 4\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 107
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/07/Special-events-FB-2.png
ORGANIZER;CN="Reykjav%C3%ADk International Film Festival":MAILTO:ticketing@riff.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250930T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250930T203000
DTSTAMP:20250909T123833Z
CREATED:20250909T123833Z
LAST-MODIFIED:20250909T123833Z
UID:63781-1759251600-1759264200@riff.is
SUMMARY:Apichatpong Weerasethakul: Memoria (2021) + Meistaraspjall
DESCRIPTION:Apichatpong Weerasethakul\, sem heiðraður verður á RIFF í ár fyrir einstaka listræna sýn\, er meðal frumlegustu og róttækustu kvikmyndagerðarmanna samtímans.  \nHann fæddist í Bangkok árið 1970 og ólst upp í norðausturhluta Taílands. Hann lærði arkitektúr áður en hann hélt til Chicago í kvikmyndanám\, þar sem hann þróaði sinn einstaka stíl sem snýst um minni\, tilfinningu og andlega leit frekar en hefðbundinn\, línulegan söguþráð. Draumkennt töfraraunsæi er alltumlykjandi. Myndir hans eru þekktar fyrir hæga\, íhugula framvindu og draumkennda færslu milli veruleika og hugarheims. Blissfully Yours (2002) og Tropical Malady (2004) vöktu strax athygli\, en það var Uncle Boonmee Who Can Recall His Past Lives (2010) sem vann til Gullpálmans í Cannes og gerði hann heimsþekktan. \nÞó myndir Apichatpong—sem er af aðdáendum jafnan kallaður Joe—megi virðast ópólitískar við fyrstu sýn\, endurspegla þær oft undirliggjandi átök: ritskoðun\, félagslegt taumhald og bælda sögu Taílands. Hann miðlar fremur með stemningu en yfirlýsingum — kvikmyndir hans líkjast oft óljósum draumum. \nÍ Memoria (2021) ráfar Tilda Swinton um götur Bogotá á flótta undan hljóði sem enginn nema hún heyrir. Úr verður framandi\, fögur og draumkennd upplifun þar sem minningar og ímyndun mætast. Hér er á ferðinni hæglát og seiðandi ráðgáta sem gerist á mörkum tveggja heima. \nSýningin byrjar kl. 17:00 og gert verður 20 mínútna hlé áður en Meistaraspjallið hefst kl. 19:40.
URL:https://riff.is/en/event/apichatpong-weerasethakul-memoria-2021-meistaraspjall/
LOCATION:Háskólabíó – Screening Room 1\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/09/Special-events-FB-11.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251001T191500
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251001T220000
DTSTAMP:20250911T125810Z
CREATED:20250911T125810Z
LAST-MODIFIED:20250911T125810Z
UID:64248-1759346100-1759356000@riff.is
SUMMARY:Benny Safdie: The Smashing Machine (2025) + Intro Q&A
DESCRIPTION:Benny Safdie er einn afkastamesti og djarfasti leikstjóri Bandaríkjanna um þessar mundir. Hann er sérstaklega þekktur fyrir kvikmyndir sem hann og bróðir hans unnu að í sameiningu\, þar sem Safdie bæði leikstýrir og leikur á móti risastórum nöfnum í Hollywood\, líkt og Adam Sandler (Uncut Gems\, 2019) og Robert Pattinson (Good Time\, 2017). Nú vinnur Safdie sjálfstætt og fer sigurför um heiminn með nýjustu mynd sína The Smashing Machine með Dwayne Johnson í aðalhlutverki. Myndin verður sýnd á RIFF með sérstakri rafrænni kynningu frá Benny Safdie í rauntíma. \nÍ The Smashing Machine er sögð sagan af fjölbragðaglímukappanum Mark Kerr\, sem faldi flóknar tilfinningar með hrikalegum fantabrögðum sínum í hringnum. Úr verður áhugaverð svipmynd þar sem ógurlegur styrkur felur brothætta sál. \nSýningin byrjar eftir stutta kynningu frá Benny Safdie kl 19:15.
URL:https://riff.is/en/event/benny-safdie-the-smashing-machine-2025-intro-qa/
LOCATION:Háskólabíó – Screening Room 1\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/09/Special-events-FB-13.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251003T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251003T183000
DTSTAMP:20250828T143504Z
CREATED:20250828T100721Z
LAST-MODIFIED:20250828T143504Z
UID:63677-1759510800-1759516200@riff.is
SUMMARY:Hellabíó: Hetjudáðir Múmínpabba
DESCRIPTION:RIFF kynnir á nýjan leik fjölskyldubíó djúpt í iðrum jarðar. Hetjudáðir Múmínpabba – Ævintýri ungs Múmínálfs (The Exploits of Moominpappa — Adventures of a Young Moomin) er hreyfimynd frá 2021 eftir Ira Carpelan sem segir frá því þegar Múmínsnáðinn er rúmfastur vegna geitungabits og Múmínpabbi vill gleðja hann. Hann grípur til þess ráðs að segja honum sögur frá ævintýralegri æsku sinni og einni stormasamri og örlagaríkri nótt þegar hann bjargar Múmínmömmu úr sjónum. \nRaufarhólshellir er í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Athugið að akstur að sýningarstað er ekki innifalinn í miðaverði. Leiðsögumenn Lava Tunnel munu fylgja gestum í gegnum hellinn að sýningarstað\, sem er í um það bil 10 mínútna göngufjarlægð. Öryggi gesta er í fyrirrúmi hjá starfsfólki Lava Tunnel\, og fá allir gestir hlífðarhjálma við komu. Nauðsynlegt er að klæða sig vel fyrir þessa sýningu. \nMyndin er með íslensku tali. Börn þurfa að vera í fylgd fullorðinna.
URL:https://riff.is/en/event/hellabio-hetjudadir-muminpabba/
LOCATION:Raufarhólshellir / The Lava Tunnel\, Þrengslavegur\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/08/6.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251003T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251003T193000
DTSTAMP:20250905T095432Z
CREATED:20250905T095335Z
LAST-MODIFIED:20250905T095432Z
UID:63858-1759510800-1759519800@riff.is
SUMMARY:Mohsen Makhmalbaf: Hello Cinema + Meistaraspjall
DESCRIPTION:Mohsen Makhmalbaf er lykilpersóna í íranskri kvikmyndagerð\, löngum hylltur fyrir djarfa frásagnarlist og ekki síður fyrir þátt sinn í að móta hina alþjóðlega viðurkenndu írönsku nýbylgju. Makhmalbaf\, sem er sjálfmenntaður kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi stjórnmálaaktívisti\, hefur byggt feril sinn á ljóðrænum verkum þar sem spilast saman mannúð og þung\, pólitísk undiralda. Þar má telja myndir á borð við The Peddler (1987)\, Gabbeh (1996) og Kandahar (2001) — sú síðastnefnda færði honum heimsfrægð. \nMakhbalbaf hefur alla tíð verið ákafur talsmaður tjáningarfrelsis og hefur óspart beitt mætti kvikmyndalistarinnar í þágu málstaðarins. Fyrir bragðið hefur Makhmalbaf og verk hans ekki átt upp á pallborðið hjá stjórnvöldum í heimalandinu og fjölskylda hans verið í útlegð frá Íran um langt árabil. Nýrri verk Mohsens\, á borð við The President (2014)\, bera einkenni hans; dæmisögulega frásögn og siðferðislega brýningu. Hann hefur veruið heiðraður í Cannes\, Feneyjum og Berlín\, og stendur enn sem einn af mikilvægustu og hugrökkustu röddum samtímans í heimi kvikmyndanna. \nSýningin byrjar kl. 17:00 og gert verður 15 mínútna hlé áður en Meistaraspjallið hefst kl. 18:30.
URL:https://riff.is/en/event/mohsen-makhmalbaf-hello-cinema-masterclass/
LOCATION:Háskólabíó – Screening Room 2\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/09/special_events_fb__8__720.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251003T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251003T213000
DTSTAMP:20250828T143320Z
CREATED:20250828T102034Z
LAST-MODIFIED:20250828T143320Z
UID:63683-1759521600-1759527000@riff.is
SUMMARY:Hellabíó: The Descent
DESCRIPTION:Þegar hópur vinkvenna leggur leið sína í ókannaðan helli breytist spennandi leiðangur fljótt í innilokunarkenndan hrylling. Fastar neðanjarðar uppgötva þær að þær eru ekki einar… Þessi sígilda hryllingsmynd Neil Marshall verður enn meira skelfileg þegar hún er sýnd djúpt í hellum Lava Tunnel. \nRaufarhólshellir er í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Athugið að akstur að sýningarstað er ekki innifalinn í miðaverði. Leiðsögumenn Lava Tunnel munu fylgja gestum í gegnum hellinn að sýningarstað\, sem er í um það bil 10 mínútna göngufjarlægð. Öryggi gesta er í fyrirrúmi hjá starfsfólki Lava Tunnel\, og fá allir gestir hlífðarhjálma við komu. Nauðsynlegt er að klæða sig vel fyrir þessa sýningu. \nVinsamlegast athugið að myndin er ekki við hæfi barna.
URL:https://riff.is/en/event/hellabio-the-descent/
LOCATION:Raufarhólshellir / The Lava Tunnel\, Þrengslavegur\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/08/7.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260205T180000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260205T210000
DTSTAMP:20260128T150254Z
CREATED:20260112T111126Z
LAST-MODIFIED:20260128T150254Z
UID:66081-1770314400-1770325200@riff.is
SUMMARY:Sundbíó: When Harry Met Sally
DESCRIPTION:Ekki láta þig vanta í rómantískasta Sundbíó RIFF frá upphafi\, 5. febrúar! \nSundbíóið er einstök upplifun sem er hönnuð í kringum hina klassísku gamanmynd When Harry Met Sally (1989). Hér er ekki bara einstakt tækifæri til að sjá myndina á hvíta tjaldinu og það í Sundhöll Hafnarfjarðar heldur munu leikarar bregða sér á leik í hlutverkum persónanna og lifandi djasstónlist í anda myndarinnar mun óma um sundhöllina. \nLíkt og undanfarið ár verður mikið lagt í upplifunina og gestir mega búast við óvæntum uppákomum. Takmarkaður miðafjöldi í boði svo tryggið ykkur miða sem fyrst. Hús opnar 18.00 en myndin hefst kl. 19.00. \nSjáumst í Sundbíó RIFF! \n\nKAUPA MIÐA
URL:https://riff.is/en/event/sundbio-when-harry-met-sally/
LOCATION:Sundhöll Hafnarfjarðar\, Herjólfsgata 10b\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://riff.is/wp-content/uploads/2026/01/621805825_1469769108055852_8520669925408552572_n-e1770827353179.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260815T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260816T230000
DTSTAMP:20260806T114533Z
CREATED:20260806T114533Z
LAST-MODIFIED:20260806T114533Z
UID:70506-1786809600-1786921200@riff.is
SUMMARY:Stuttmyndadagar RIFF
DESCRIPTION:Hitum upp fyrir hátíðina með stuttmyndum frá Evrópu. Sérstakar sýningar fara fram í Tónabíói og Laugardalslaug.  \n  \nMÍNÚTUMYNDIR Í SUNDI\nRIFF sýnir mínútumyndir víðsvegar frá í Evrópu\, í samstarfi við One Minutes samtökin. Sýningin fer fram á óvenjulegum máta\, en myndirnar munu rúlla uppi á skjá innilaugarinnar í Laugardalslaug. Tvær seríur verða sýndar: Deep Blue\, sem er sett saman af íslenska listamanninum Arnari Ásgeirssyni\, og Akwatik\, sem var sett saman fyrir stuttmyndahátíðina Kinemastik í Möltu. \n  \nPORTÚGALSKUR FÓKUS\nPortúgal er kvikmyndalandið í brennidepli á hátíðinni í ár og sýnum við því frábært úrval portúgalskra stuttmynda. \n  \nSUMAR Í EVRÓPU\nÞað er sumar í Evrópu. Í prógrammi eftir Aleksöndra Lawska kanna kvikmyndagerðarmenn innri þrár\, mannleg tengsl og viðkvæm mörk milli þess leynda og opinbera. Allt frá ástarævintýrum í sumarhitanum og fölnandi sumardraumum\, til nándar á internetinu\, leyndarmála og orðróma sem breiðast hratt út. Myndirnar blanda saman raunsæi og súrrealisma og sýna hvernig fólk leitar eftir nánd í sítengndum en jafnframt einangrandi heimi.
URL:https://riff.is/en/event/stuttmyndadagar-riff/
LOCATION:Tonabio\, Skipholt 33\, Reykjavík\, Reykjavik\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2026/08/1920x1005_FB-Event_Summer-Shorts.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260925T203000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260926T003000
DTSTAMP:20260910T112041Z
CREATED:20260831T091051Z
LAST-MODIFIED:20260910T112041Z
UID:71117-1790368200-1790382600@riff.is
SUMMARY:Tvennusýning með Sigurjóni Sighvatssyni: Twin Peaks og Wild at Heart
DESCRIPTION:Í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá stofnun hins goðsagnakennda framleiðslufyrirtækis Propaganda Films býður RIFF til einstakrar tvennusýningar á tveimur tímamótaverkum David Lynch: hinum 94 mínútna langa upphafsþætti Twin Peaks og Gullpálmaverðlaunamyndinni Wild at Heart. \nVerkin komu út með aðeins fárra vikna millibili vorið 1990 og mörkuðu tímamót í kvikmynda- og sjónvarpssögunni. Twin Peaks umbylti sjónvarpsmiðlinum og vakti spurninguna sem hélt milljónum áhorfenda hugföngnum: Hver myrti Lauru Palmer? Wild at Heart er óviðjafnanleg blanda vegamyndar\, ástarsögu\, suðurríkjagotneskunnar og biksvarts húmors\, borin uppi af einstakri sýn Lynch. \nWild at Heart verður sýnd í glæsilegri nýrri 4K-endurvinnslu\, unninni úr upprunalegu 35 mm filmunum undir handleiðslu kvikmyndatökustjórans Frederick Elmes og með samþykki David Lynch Family Trust. \nFramleiðandinn Sigurjón Sighvatsson verður viðstaddur sýninguna og gefst gestum því einstakt tækifæri til að upplifa þessi áhrifamiklu verk í návígi við einn af lykilmönnum þeirra. \nAðeins verður um þessa einu sýningu að ræða og takmarkað magn miða er í boði. \nVerð: 6.900 kr. \n\n\nKAUPA MIÐA
URL:https://riff.is/en/event/twin-peaks-og-wild-at-heart-einstok-tvennusyning-ad-sigurjoni-sighvatssyni-vidstoddum/
LOCATION:Háskólabíó\, Suðurgata\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Special Events
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://riff.is/wp-content/uploads/2026/08/wild-at-heart-still-hi-res-207-3082892-wild-at-heart-6-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260926T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260926T220000
DTSTAMP:20260824T144426Z
CREATED:20260824T175032Z
LAST-MODIFIED:20260824T144426Z
UID:71114-1790438400-1790460000@riff.is
SUMMARY:HELLABÍÓ: RAIDERS OF THE LOST ARK
DESCRIPTION:Hellabíómynd RIFF í ár er engin önnur en Ránið á týndu örkinni (Raiders of the Lost Ark)\, sem var aðsóknarmesta mynd veraldar árið 1981 og telst í dag til allra bestu ævintýramynda kvikmyndasögunnar. Myndin festi Steven Spielberg í sessi sem einn athyglisverðasti leikstjóri samtímans og gerði Harrison Ford að stærstu kvikmyndastjörnu heims. \nKvikmyndin hlaut var tilnefnd til 8 Óskarsverðlauna\, þar á meðal sem besta mynd og Spielberg sem besti leikstjóri. Á endanum hreppti hún fern verðlaun; fyrir bestu klippingu\, besta hljóð\, bestu leikmynd/listræna stjórnun auk sérstakrar viðurkenningar fyrir tæknibrellur. \nSýningin er haldin í samstarfi við The Lava Tunnel \nVinsamlegast athugið að barnamiði er fyrir 12 ára og yngri. \nKomdu og upplifðu eitt magnaðasta ævintýri kvikmyndasögunnar – Raiders of the Lost Ark í Hellabíói RIFF. \nVerð 8.990 kr. \n\nKAUPA MIÐA
URL:https://riff.is/en/event/riff-synir-raiders-of-the-lost-ark-i-raufarholshelli/
LOCATION:Raufarhólshellir / The Lava Tunnel\, Þrengslavegur\, Reykjavík\, Iceland
CATEGORIES:Hellabíó/ Cave-in,Special Events
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://riff.is/wp-content/uploads/2026/08/raiders-of-the-lost-ark-still-hi-res-206-3082858-raiders1-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260926T183000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260926T220000
DTSTAMP:20260914T141300Z
CREATED:20260914T141104Z
LAST-MODIFIED:20260914T141300Z
UID:72418-1790447400-1790460000@riff.is
SUMMARY:Masterclass with David Leitch\, Kelly McCormick and Elísabet Rónalds: The Art of Taking Action
DESCRIPTION:
URL:https://riff.is/en/event/masterclass-with-david-leitch-kelly-mccormick-and-elisabet-ronalds-the-art-of-taking-action/
CATEGORIES:Meistaraspjöll / Masterclass
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://riff.is/wp-content/uploads/2026/08/gettyimages-821989554-612x612-2-e1787668108804.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260927T103000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260927T123000
DTSTAMP:20260826T111535Z
CREATED:20260826T084039Z
LAST-MODIFIED:20260826T111535Z
UID:71246-1790505000-1790512200@riff.is
SUMMARY:Náttfatapartý: Paddington
DESCRIPTION:RIFF ásamt UngRIFF býður fjölskyldum í ógleymanlega bíóferð. Háskólabíói verður umturnað í risastórt og huggulegt náttfatapartý þar sem börn og fullorðnir geta upplifað hina ástsælu kvikmynd um bangsan Paddington í samnefndri kvikmynd frá árinu 2014 sem hlaut einmæla lof gagnrýnenda fyrir að henta áhorfendum á öllum aldri. \nTil að skapa hina fullkomnu stemningu hvetjum við alla yngri gestina til að mæta í náttfötunum og taka uppáhalds bangsann sinn með. Salurinn verður skreyttur á töfrandi hátt með teppavirki\, púðum og pullum – að auki verður tilboð á kaffi fyrir foreldrana til þess að byrja daginn rétt. \nKynnir sýningarinnar er leikarinn Siggi Þór\, sem fer jafnframt með hlutverk Paddington í íslensku talsetningunni\, og mun hann tryggja einstaka upplifun fyrir yngri kynslóðina. Myndin verður sýnd með íslensku tali. \nBarnamiði er fyrir 12 ára og yngri og fjölskyldumiði er fyrir fjóra einstaklinga (óháð aldri). \nVerð 1.500 – 6.900 kr. \n\nKAUPA MIÐA
URL:https://riff.is/en/event/nattfataparty-paddington/
LOCATION:Háskólabíó\, Suðurgata\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2026/08/paddington-still-hi-res-250-3090573-schermafbeelding-2026-08-18-133058.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260928T193000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260928T220000
DTSTAMP:20260817T141025Z
CREATED:20260817T140033Z
LAST-MODIFIED:20260817T141025Z
UID:70925-1790623800-1790632800@riff.is
SUMMARY:Bókabíó: Pride and Prejudice
DESCRIPTION:RIFF sýnir Pride and Prejudice í Háskólabíó! \nBókabíómynd RIFF í ár er Pride and Prejudice\, sem fór sigurför um heiminn þegar hún var frumsýnd árið 2005 og nýtur enn mikilla vinsælda. Líkt og skáldsagan sem hún er byggð á hefur kvikmyndin\, í leikstjórn Joe Wright\, öðlast sess sem tímalaus klassík. Kvikmyndin hlaut fjórar Óskarstilnefningar\, þar á meðal Keira Knightley fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Elizabeth Bennet. \nSýningin er haldin í samstarfi við Aðdáendaklúbb Jane Austen á Íslandi og Kristín Linda Jónsdóttir\, formaður klúbbsins\, verður kynnir kvöldsins. Að lokinni sýningu ræðir hún við Silju Aðalsteinsdóttur\, Jane Austen-sérfræðing og þýðanda. \nKomdu og skálaðu með okkur fyrir einni bestu ástarsögu allra tíma – og njóttu töfra Pride and Prejudice á hvíta tjaldinu. \nVerð 3.900 kr.\n\nKAUPA MIÐA
URL:https://riff.is/en/event/bokabio-pride-and-prejudice/
LOCATION:Háskólabíó\, Suðurgata\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://riff.is/wp-content/uploads/2026/08/pride-and-prejudice-still-hi-res-168-3072573-pap16-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260929T190000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260929T220000
DTSTAMP:20260908T153842Z
CREATED:20260903T110335Z
LAST-MODIFIED:20260908T153842Z
UID:71482-1790708400-1790719200@riff.is
SUMMARY:Wicker – með Alexander Skarsgård
DESCRIPTION:
URL:https://riff.is/en/event/wicker-med-alexander-skarsgard/
CATEGORIES:Special Events
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://riff.is/wp-content/uploads/2026/09/wicker-still-hi-res-256-3115784-w-01316-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261002T190000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261002T220000
DTSTAMP:20260825T091717Z
CREATED:20260721T102248Z
LAST-MODIFIED:20260825T091717Z
UID:69643-1790967600-1790978400@riff.is
SUMMARY:Hamborgaraveisla: Pulp Fiction
DESCRIPTION:Upplifðu eina stærstu kvikmyndaklassík allra tíma með hamborgara sem sækja innblástur beint í heim myndarinnar.\n\nGestir geta valið um eftirfarandi hamborgara:-Royale with Cheese – af því við Íslendingar notum metrakerfið og höfum ekki hundsvit á hvað kvartpundari er.-Big Kahuna Burger – sólrík Hawaii stemning í hamborgara. -The Durward Kirby Burger – veganborgari fyrir þá sem kjósa\, jafnvel þó Mia Wallace hafi pantað hann blóðugan.\nMeð þessu fá gestir að sjálfsögðu hinn nafntogaða 5 dollara mjólkurhristing eins og hann heitir í myndinni.\nPortúgalska stórleikkonan Maria de Medeiros tekur þátt í spurt og svarað að sýningu lokinni. Hún fór með eitt aðalhlutverkanna í myndinni sem Fabienne\, unnusta Butch (Bruce Willis).\nGestir eru hvattir til að mæta uppábúnir í anda myndarinnar til að gera viðburðinn sem eftirminnilegastan.\n\nVerð 7.900 kr.\n\nKAUPA MIÐA
URL:https://riff.is/en/event/matarveisla-pulp-fiction/
LOCATION:Háskólabíó\, Suðurgata\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Special Events
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://riff.is/wp-content/uploads/2026/07/Samuel-L-Jackson-in-Pulp-Fiction-2008214140.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR