
Nalujuk Night
13 minutes | Kanada | 2021
Synopsis
6. janúar ár hvert birtast Nalujuitar á hafísnum um kolniðamyrka nótt í Nunatsiavut. Þau ganga upprétt, og þó eru andlitin dýrsleg, líkjast beinagrindum, eins og úr öðrum heimi. Það brakar í snjónum þegar þau nálgast áfangastað sinn: Inúítasamfélagið í Nain.
Director’s Bio

Jennie Williams er inúískur myndlistarmaður og hálssöngkona frá Happy Valley-Goose firðinum í Labrador. Sem atvinnuljósmyndari, býr hún til áhrifamiklar myndir sem tjá menningarlegt landslag og reynsluheim Inúíta. Ljósmyndir hennar hreyfa við fólki og hafa hlotið lof í heimalandi sínu. Verk hennar voru til að mynda í ferðasýningunni SakKijâjuk, Future Possible seríunni í The Rooms Provincial Gallery og Bonavista tvíæringnum (2021). Verk hennar hafa verið birt í virtum tímaritum á borð við Inuit Art Quarterly og Canadian Art. Verk hennar hafa fengið verðlaun og viðurkenningar hjá Elbow Room Residency og REVEAL Indigenous Art Award (2017) Hnatyshyn-stofnunarinnar. Lengsta verk hennar er 12 ára löng ljósmyndasería um Labrador hefðir sem snúa að Nalujuk kvöldinu.
Film Details
-
Year:2021
-
Genres:
-
Runtime:13 minutes
-
Languages:enska, inúktitút
-
Countries:Kanada
-
Premiere:Icelandic Premiere
-
Edition:RIFF 2022
-
Director:Jennie Williams
-
Screenwriter:Jennie Williams
-
Producer:Latonia Hartery, Kat Baulu, Rohan Fernando
-
Cast: