RIFF býður öllum leik- og grunnskólanemum landsins kvikmyndadagskrá og kennsluefni

RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur útbúið veglega alþjóðlega kvikmyndadagskrá ásamt kennsluefni sem býðst öllum leik- og grunnskólanemum landsins út janúar á næsta ári og er skólunum að kostnaðarlausu.

Tilgangurinn er að efla kvikmyndamenningu og kvikmyndalæsi barna og unglinga og sýna fram á hvernig unnt er að nota kvikmyndamiðilinn markvisst í kennslu. Dagskráin er sniðin að börnum og unglingum frá  aldrinum 4- 16 ára  og er send í alla skóla landsins. 

Aðstandendur RIFF vilja hvetja  kennara til að sýna stuttmyndirnar og nota í kennslustundum en benda jafnframt á að unnt er að horfa á myndirnar heima í stofu í gegnum riff.is gegn vægu gjaldi. 

Dagskráin samanstendur af alls kyns stuttmyndum og þeim fylgir kennsluefni sem kennarar geta nýtt  sem umræðugrundvöll í tengslum við myndirnar.   Þetta eru samtals um 30 stuttmyndir frá yfir 20 löndum en flestar  eru evrópskar. Þær  fjalla um  málefni líðandi stundar  og eru efnistök sniðin að hverjum aldurshópi fyrir sig. 

„Fjallað er um samfélagsleg málefni eins og umhverfið, jafnrétti, einelti, samkynhneigð, ást,  og einmanaleika. Markmið okkar hjá  RIFF er að efla kvikmyndalæsi, að hvetja, örva, skapa umræður, vekja viðbrögð og fá yngri áhorfendur til að hugsa á annan hátt um mikilvæg málefni í gegnum þennan sterka miðil sem kvikmyndin er, segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF. 

Dagskráin samanstendur af fimm stuttmyndaflokkum sem hæfa hverjum aldursflokki fyrir sig. Hver flokkur inniheldur 5-9 stuttmyndir og er í heildina 50-90 mínútur að lengd. Dagskráin er aðgengileg í skólastarfi til 31. janúar 2022 og fylgir hverjum stuttmyndaflokki stuðningsefni fyrir kennara sem hægt er að nýta til kennslu. Námsefnið byggir ýmist á hópavinnu, umræðum, íhugun og gagnrýnni hugsun.

Margar stuttmyndanna henta vel sem viðbótarkennsluefni við námsgreinar sem þegar eru kenndar í leik- og grunnskólum landsins. Þetta verður því frábært tækifæri til að sameina áhrifaríkar stuttmyndir og kennslu þar sem ólík efni eru sett í samhengi við þennan skapandi miðil.

Alþjóðleg kvikmyndahátíð þakkar List fyrir alla kærlega fyrir stuðninginn.

Dagskráin er einnig fáanleg í RIFF HEIMA fyrir þá sem vilja eiga gæðastund með börnunum sínum heima í stofu.

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email