Gjafaklippikort
10,400 kr.
Gjafaklippikort gildir á RIFF sem haldin verður í 20. sinn þann 28. september – 8. október 2023.
RIFF býður nú gjafaklippikort sem gilda á hátíðinni á næsta ári. Gjafabréfin eru tilvalin gjöf fyrir list-og kvikmyndaunnendur og fólk sem á allt.
RIFF – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík – er einn stærsti og fjölbreyttasti menningarviðburður á Íslandi. Í ellefu daga á hverju hausti flykkjast Íslendingar í bíó til að sjá það besta og ferskasta í alþjóðlegri kvikmyndagerð. Enn fremur býðst gestum að spjalla við leikstjóra um verk sín, sækja málþing og fyrirlestra, tónleika og listasýningar, og að sjá kvikmyndir við óhefðbundin skilyrði – í sundi, í helli eða í stofunni hjá þekktum kvikmyndagerðarmanni!
Klippikort eru á rafrænu formi. Við hlökkum til að sjá ykkur á RIFF 2023!