Tónlist í forgrunni á RIFF Myndir um popp, rokk, pönk, teknó og hip hop og fleira

Tónlist af ýmsu tagi verður í forgrunni á RIFF. Sérstakur flokkur tónlistarmynda  verður á hátíðinni og ýmsar aðrar uppákomur tengdar tónlist eru fyrirhugaðar m.a.  á Lofti Hosteli auk málþings í Norrænahúsinu á Bransadögum með íslenskum og  erlendum kvikmyndatónskáldum og síðasta en ekki síst verður stórmyndin Jóker  sýnd í Hörpu þar sem Kvikmyndahljómsveit Íslands; SinfoniaNord flytur  tónlistina. 

Í flokknum Tónlist í forgrunni kennir margra grasa, fjallað verður t.d. um rokk, hip  hop, pönk og teknó svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Við sýnum  mynd um sögu norsku stórsveitarinnr A- HA, kynnumst frábærri Hip Hop senu í Marokkó og lífi franska teknóplötusnúðarins Laurent Garnier sem hefur m.a  spilað hér á landi. 

Við fáum innsýn í líf Polystyrene, fyrstu bresku pönkdrottningarinnar og sýnd  verður mögnuð mynd um sögu kvenna í raftónlist en sú mynd hefur slegið í gegn í  Bretlandi. Þar að auki verður sýnd mynd um Ólaf Arnalds eftir Vincent Moon  sem áður hefur verið með mynd á RIFF, Horfin Borg eftir Úlf Eldjárn og Eldingar eins og við eftir Kira Kira en í myndinni koma fram Kira Kira, Hermigervill,  Jara, Teitur, Arnbjörg, Kristó, Alexandra, Arnbjörg, Framfari, Thoracius, Úlfur og  Gefjun fram. 

Á Bransadögum verður haldið námskeið um kvikmyndatónlist, og hvaða leiðir  hægt sé að fara til að reyna á að koma sér á framfæri í bransanum en það er í  umsjón norska tónskáldsins Andreu Jakob Kunst. Hægt er að tryggja sér miða nú  þegar hér. 

Í Norrænahúsinu þann 6. október munu Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Atli Örvarsson, Herdís Stefánsdóttir tónskáld og fulltrúi frá Útón ræða velgengni íslenskra tónskálda á alþjóðlegum vettvangi í kvikmyndatónlist. Stjórnandi  umræðna verður Cheryl Kara, tónlistarráðgjafi og tónlistarstjóri. 

Ein heimildarmyndanna fjallar um plötusnúðinn Laurent Garnier, sem er einna  þekktastur fyrir að hafa tekið þátt í að gera teknó tónlist vinsæla og mun hann svara  spurningum áhorfanda í gegnum Zoom. Laurent Garnier: Off the Record verður  sýnd á næturklúbbi í Reykjavík í samstarfi við Útvarp 101 og munu íslenskir  plötusnúðar þeyta skífum fram á nótt, þar sem Benni B-Ruff fer fremstur í flokki. 

Á Loft Hostel verður viðburðarík dagskrá yfir hátíðarvikuna, þar sem úrval  tónlistarkvenna koma fram með frumsamda tónlist, þar á meðal María  Magnúsdóttir sem frumflytur efni af væntanlegri plötu. 

Í lok hátíðar verður svo sérsýning á stórmyndinni Joker í samstarfi við  Kvikmyndahljómsveit Íslands; SinfoniaNord. Óskars- og BAFTA  verðlaunatónlist Hildar Guðnadóttur við myndina verður flutt á tónleika bíósýningu af Kvikmyndahljómsveit Íslands; SinfoniaNord. Stjórnandi verður faðir  hennar, Guðni Franzson. Kvikmyndinni verður varpað á risastórt tjald í Eldborg  með tali og áhrifahljóðum um leið og stór sinfóníuhljómsveit SinfoniaNord leikur  magnþrungna tónlist Hildar. 

 

Poly Styrene – I‘m a cliché 

Um líf bresku pönkdrottningarinnar Poly Styrene sem var fyrsta litaða konan í  Bretlandi til að vera aðalsöngvari í rokk hljómsveit. Hún færði veröldinni nýjan uppreisnarhljóm þegar hún söng með sinni óvenjulegu rödd um sjálfsmynd,  efnishyggju og póstmódernisma og allt sem var að gerast í Bretlandi á áttunda  áratugnum. Meðal þeirra sem koma fram í myndinni eru Vivienne Westwood,  Neneh Cherry and Bruno Wizard.

Casablanca Beats 

Gerist í hipphopp senunni í Marokk og fjallar um fyrrum rapparann Anas sem ræður sig til starfa í menningarmiðstöð og hvetur unga skjólstæðinga sína til að  efla sjálfa sig með skapandi tjáningu hipphoppsins. Hvatning hans fellur vel í  kramið hjá krökkunum sem nýta tjáningarformið til að losna undan höftum og hefðum sem haldið hafa aftur af þeim í að láta drauma sína rætast.

Laurent Garnier: Í trúnaði

Innsýn í líf Laurents Garnier, eins af guðfeðrum hústónlistarinnar, frá uppgangi  hans á níunda áratugnum þar til nú. Síðasta tónlistarbyltingin frá sjónarhóli brautryðjanda. Tilurð myndarinnar varð sú að í kjölfar Covid faraldursins hætti  Garnier að hlusta á tekknótónlist í fyrsta skipti í 30 ár. Laurent mun sitja fyrir  svörum í gegnum Zoom í tengslum við sýningu myndarinnar.

a-ha: bíómyndin – a-ha The Movie 

Norsku hljómsveitinni a-ha er fylgt eftir á tónleikaferðalagi. Þessir þrír ungu menn,  hafa fjarlægan draum um að verða alþjóðlegar poppstjörnur, og þegar gullni  smellurinn „Take on Me“ nær toppsæti ameríska Billboard-listans virðist  takmarkinu náð. Hvernig er svo að lifa í draumi? Þetta er frásögn af metnaði, frábærri  tónlist, vinslita og jafnvel, fyrirgefningu.

Smárasystur

Mögnuð og áður ósögð saga kvenkyns frumherja á árdögum raftónlistar, þegar  þeramín, hljóðgervlar og feedback-vélar þöndu vitin. Tónskáldin, Delia Derbyshire  þ. á m. (en Laurie Anderson er sögumaður myndarinnar), umbreyttu hvernig tónlist er gerð og skynjuð í dag. Tímabær og fagur óður til brautryðjenda í sögunni.

Joker sýndur í Hörpunni við undirspil Kvikmyndahljómsveitar Íslands, SinfoniaNord. Óskars- og BAFTA verðlaunatónlist Hildar Guðnadóttur við JOKER verður flutt á  Íslandi á tónleika-bíósýningu af Kvikmyndahljómsveit Íslands; SinfoniaNord.  Stjórnandi verður faðir höfundarins, Guðni Franzson.  

JOKER fékk tvenn Óskarsverðlaun og þrenn BAFTA verðlaun í fyrra.. Þar á meðal hlutu Hildur Guðnadóttir, fyrir bestu kvikmyndatónlistina og Joaquin  Phoenix fyrir bestan leik í aðalhlutverki, verðlaun á báðum þessum  verðlaunahátíðum. Bæði hrepptu þau einnig Golden Globe og Critics’ Choice  verðlaun fyrir framlag sitt til kvikmyndarinnar. 

Kvikmyndinni verður varpað á risastórt tjald í Eldborg með tali og áhrifahljóðum  um leið og stór sinfóníuhljómsveit SinfoniaNord leikur magnþrungna tónlist  Hildar.

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email