Vetrarhátíð RIFF

Vetrarhátíð RIFF hefst á fimmtudag, til heiðurs Evrópsku kvikmyndaverðlaununum. Bestu EFA myndirnar 2020 að mati RIFF.

Úrval kvikmynda sem tilnefndar eru til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í ár verða sýndar á streymisveitu RIFF, riff.is, frá næstkomandi fimmtudegi og í 11 daga, þ.e. frá 10. – 20 desember. Sýndar verða sex ólíkar kvikmyndir; gamanmynd, spennumynd, drama, teiknimynd og heimildarmynd en myndirnar höfða til mismunandi aldurshópa, ungra jafn sem eldri. Þær eiga það sammerkt að hafa hlotið verðskuldaða athygli undanfarið og flestar keppa þær um eftirsóttu EFA verðlaunin sem afhent verða þann 12. desember n.k. í Berlín. Þetta eru tvímælalaust meðal bestu myndanna sem keppa í ár, að mati stjórnenda RIFF og koma þær m.a. frá Frakklandi, Danmörku, Rúmeníu, Hollandi, Ítalíu og Íslandi. Íslenska myndin Bergmál eftir Rúnar Rúnarsson var á meðal 32 mynda í fyrra forvali til EFA ­verðlaun­anna í ár.

Um er að ræða einstakt tækifæri til þess að sjá þessar myndir og miðaverði er mjög stillt í hóf. Myndirnar sem RIFF sýnir á vetrarhátíðinni sem tileinkuð er EFA eru:

 

THE BIG HIT (Stóri smellurinn) eftir Emmanuel Courcol. Frakkland. | Tilnefnd sem besta grínmyndin á EFA 2020

Geðþekkur leikari, Etienne, sem glíma þarf reglulega við atvinnuskort, rekur leiklistarsmiðju í fangelsi þar sem hann fær fangana til þess að setja á svið Beðið eftir Godot eftir Samuel Becket.

 

HORFA NÚNA Á RIFF HEIMA – THE BIG HIT

 

CALAMITY (Ógæfa) eftir Rémi Chayé. Frakkland, Danmörk. | Tilnefnd sem besta mynd í flokki hreyfimynda á EFA 2020

Í Bandaríkjunum árið 1863, leggur hin 12 ára gamla stúlka, Martha og fjölskylda hennar af stað vestur á bóginn í stórri vagnalest í leit að betra lífi.

 

HORFA NÚNA Á RIFF HEIMA – CALAMITY

 

COLLECTIVE eftir Alexander Nanau. Rúmenía, Lúxemborg. | Tilnfefnd sem besta heimildamyndin á EFA 2020

Rannsóknarblaðamaður afhjúpar stóra svikamylllu í rúmverska heilbrigðiskerfinu. Þetta er mynd um vald spilling og lygar í innsta hring. Frábær mynd um blaðamennsku eins og hún gerist best.

 

HORFA NÚNA Á RIFF HEIMA – COLLECTIVE

 

BERGMÁL (Echo) eftir Rúnar Rúnarsson. Ísland , Frakkland, Sviss. | Tilnefnd sem besta mynd EFA 2020

Ísland á aðventunni. Myndin sýnir 56 senur, ljúfar jafnt sem bitrar af nútímalífi okkar hér á Íslandi.

 

HORFA NÚNA Á RIFF HEIMA – ECHO

 

INSTINCT (Eðlishvöt) eftir Halinu Reijn. Holland, Ítalía, Frakkland, Þýskaland. | Tilnefnd í flokkunum Uppgötvun ársina á EFA 2020

Sálfræðitryllir. Þrátt fyrir afar yfirgripsmikla reynslu og þekkingu blindast vel metinn sálfræðingur af ást á kynferðisafbrotamanni sem hún hefur til meðferðar.

 

HORFA NÚNA Á RIFF HEIMA – INSTINCT

 

MARTIN EDEN eftir Pietro Marcello. Ítalía, Frakkland, Þýskaland | Tilfnefnd sem besta Evrópska myndin, besti leikarinn og besta handritið á EFA 2020

Martin verður ástfanginn af Elenu efnaðri og vel menntaðri konu. Hann dreymir um að verða rithöfundur sem berst fyrir félagslegu réttlæti en gerir sér jafnframt grein fyrir það muni ganga erfiðlega ætli hann að fá á sig hnapphelduna.

 

HORFA NÚNA Á RIFF HEIMA – MARTIN EDEN

 

Frá árinu 1988 hafa Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verið afhent árlega við hátíðlega athöfn í þeim tilgangi að vekja athygli á þeim meistaraverkum sem evrópskir kvikmyndagerðarmenn framleiða á ári hverju. Í ár fer athöfnin fram rafænt frá Berlín en ekki frá Íslandi eins og til stóð. Þau verða vonandi haldin með pompi og pragt á Íslandi í Hörpu árið 2022 ef allt fer að óskum.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri:
„Við vorum farin að hlakka til að taka á móti erlendum gestum okkar í ár og sýna þeim allt það sem við höfum fram á að færa. En þetta er besti kosturinn í stöðunni í ljósi heimsfaraldursins. Það er ánægjulegt að samkomulag hafi náðst um að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verði haldin í Reykjavík að tveimur árum liðnum. Þá getum við einbeitt okkur alfarið að því að undirbúa glæsilega hátíð og hliðarviðburði sem við getum nýtt í markaðssetningu á menningarborginni Reykjavík en ekki síður í þágu íslenskrar kvikmyndagerðar og skapandi greina almennt.“

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra:
„Við munum halda glæsilega og fjölbreytta hátíðardagskrá til heiðurs evrópskum kvikmyndum, hún verður bara ekki í ár – enda eru nú óvenjulegir tímar sem kalla á sveigjanleika. Þetta er geysilega spennandi tækifæri fyrir íslenska kvikmyndamenningu og kvikmyndageirann hér á landi og við munum nýta það vel.“

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email