BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//RIFF - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:RIFF
X-ORIGINAL-URL:https://riff.is/pl
X-WR-CALDESC:Wydarzenia dla RIFF
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250926T171500
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250926T184500
DTSTAMP:20260405T172442
CREATED:20250813T114743Z
LAST-MODIFIED:20250813T165042Z
UID:63245-1758906900-1758912300@riff.is
SUMMARY:Anton Corbijn: Margmiðla Meistaraspjall
DESCRIPTION:Komdu og sjáðu heiminn með augum Anton Corbijn\, meistarans sem á heiðurinn af myndheimi Depeche Mode\, U2\, Nirvana og fleiri listamanna. Margmiðla Meistaraspjall með Anton Corbijn felur í sér magnað tækifæri til að sjá listamanninn líta yfir ótrúlegan feril sinn gegnum ljósmyndir\, tónlistarmyndbönd og kvikmyndir\, um leið og hann veitir innsýn í listina að segja sögur með myndum. \nÁ þessum einstaka viðburði fara fram umræður samhliða sýningum á völdum stiklum og tónlistarmyndböndum. Ekki láta þetta óviðjafnanlega tækifæri fram hjá þér fara til að sjá og læra af einum áhrifamesta sjónlistarmanni samtímans.
URL:https://riff.is/pl/event/anton-corbijn-margmidla-meistaraspjall/
LOCATION:Háskólabíó – Screening Room 1\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/08/27-SEPT-2025-Haskolabio-3.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250926T190000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250926T214500
DTSTAMP:20260405T172442
CREATED:20250902T124045Z
LAST-MODIFIED:20260113T140735Z
UID:63776-1758913200-1758923100@riff.is
SUMMARY:Búbblubíó: Pal Joey
DESCRIPTION:Búbblubíóið er einn af glæsilegustu viðburðum RIFF í ár\, sett saman í samstarfi við Aztiq og Maison Wessman. Þetta er kvöld þar sem vín\, vinir og kvikmyndir fléttast saman í einstaka upplifun\, þar sem glamúr og góð stemning skapa hátíðlegt andrúmsloft. Sýnd verður hin sígilda kvikmynd Pal Joey frá árinu 1957\, þar sem Frank Sinatra\, Rita Hayworth og Kim Novak skína á skjánum. \nEinn af heiðursgestum RIFF 2025\, stórstjarnan Kim Novak\, hefur tilkynnt stjórnendum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík að vegna ófyrirsjáanlegra orsaka verði hún því miður að breyta áætlunum sínum varðandi komuna á RIFF. \nGestir eru hvattir til að klæða sig upp í anda sýningarinnar\, skála í búbblum og fagna töfrum kvikmyndarinnar á stóra tjaldinu. Snjólaug Lúðvíksdóttir stýrir kvöldinu og Sigríður Ásta\, leik- og söngkona\, brýtur upp sýninguna með lifandi tónlistarflutningi. \nInnifalið í miðaverði er eitt glas af búbblum en þar að auki verða tilboð á barnum allt kvöldið. \n 
URL:https://riff.is/pl/event/bubblubio-pal-joey/
LOCATION:Háskólabíó – Screening Room 1\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/09/special_events_fb__6__720.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250927T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250927T183000
DTSTAMP:20260405T172442
CREATED:20250901T124912Z
LAST-MODIFIED:20250926T181302Z
UID:63760-1758985200-1758997800@riff.is
SUMMARY:Kim Novak: Vertigo (1958) + Online Meistaraspjall
DESCRIPTION:Á RIFF fögnum við kvikmyndagerðarfólki sem sem lætur sér ekki nægja að fljóta með straumnum heldur marka sína einstöku braut\, varða hana með verkum sínum og vísa þannig veginn fyrir aðra að feta eftir. Í þessum flokki fögnum við þessum einstaklingum\, sýnum verk þeirra og efnum til samtals. \nKim Novak er ein af goðsögnum gullaldar Hollywood\, leikkona sem setti mark sitt á kvikmyndasöguna í verkum sem enn lifa góðu lífi á hvíta tjaldinu og munu gera það um. ókomna tíð. Hún fæddist í Chicago árið 1933 og steig sín fyrstu skref í Hollywood um miðjan sjötta áratuginn. Novak skaust þegar upp á stjörnuhimininn\, ekki einvörðungu sem tákn fegurðar og dularfulls glæsileika\, heldur sem listamaður sem bjó yfir einstöku næmi til að miðla brothættum kjarna sem bjó á bak við glamúrinn. \nFerill hennar spannar fjölmörg eftirminnileg hlutverk\, en hún er ef til vill hvað oftast tengd við meistaraverk Alfred Hitchcock\, Vertigo (1958). Þar skapaði hún eitt flóknasta og áhrifamesta kvenhlutverk kvikmyndasögunnar. Novak starfaði einnig með fleiri risum kvikmyndasögunnar á borð við Otto Preminger\, Billy Wilder og Sidney Lumet\, og sannaði með hverri frammistöðu fjölbreytta leikhæfileika og listrænan styrk. \nKim Novak er þó meira en kvikmyndastjarna. Hún er táknmynd tímabils þegar kvikmyndin var í senn stórbrotin list og ævintýralegur leikvöllur ímyndunaraflsins. Með verkum sínum hefur hún veitt kynslóðum áhorfenda innblástur og minnir okkur á að á bak við goðsögnina leynist ávallt kjarni mannlegra tilfinninga. \n20 mínútna hlé verður á milli sýningu á Vertigo (1958) í sal 2 og Meistaraspjalls í gegnum hljóðfjartæknibúnað í sal 1 sem byrjar kl 17:30. \nEinn af heiðursgestum RIFF 2025\, stórstjarnan Kim Novak\, hefur tilkynnt stjórnendum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík að vegna ófyrirsjáanlegra orsaka verði hún því miður að breyta áætlunum sínum varðandi komuna á RIFF. Í stað þess að koma í eigin persónu mun hún taka þátt í meistaraspjalli í beinni hljóðútsendingu um gervihnött. \n 
URL:https://riff.is/pl/event/kim-novak-vertigo-1958-masterclass/
LOCATION:Háskólabío – Screening Room 2 (Screening) and 1 (Masterclass)\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 101
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/09/Special-events-FB-9.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250927T190000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250927T220000
DTSTAMP:20260405T172442
CREATED:20250801T131925Z
LAST-MODIFIED:20250927T134237Z
UID:63050-1758999600-1759010400@riff.is
SUMMARY:Sjónræn matarveisla: Big Night (Stóra veislan)
DESCRIPTION:Veisla fyrir skilningarvitin bíður þín á RIFF – í hinni árlegu Sjónrænu matarveislu! Við bjóðum þér á sýningu á hinni margverðlaunuðu Big Night í leikstjórn matgæðingsins Stanley Tucci\, ásamt sérhönnuðum matseðli frá Plantan Bistro – innblásnum af bragði og stemningu myndarinnar. \nBræðurnir Primo og Secondo leggja allt undir með veglegri veislu til heiðurs djassgoðsögninni Louis Prima\, í von um að bjarga ítalska veitingastað sínum í New Jersey. Spennan magnast í eldhúsinu og fleira en pastað nálgast suðumark! \nInnifalið í miðaverðinu er fordrykkur\, þriggja-rétta ítölsk matarveisla frá Plöntunni og miði á Big Night. Réttirnir eru allir vegan.  \nViðburðurinn er haldin í Norræna Húsinu\, Sæmundargata 11\, 102 Reykjavík. Húsið opnar klukkan 18:00 og sýning hefst klukkan 19:00.
URL:https://riff.is/pl/event/big-night/
LOCATION:The Nordic House\, Sæmundargata 11\, Reykjavík\, 102\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/08/Special-events-FB-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250928T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250928T210000
DTSTAMP:20260405T172442
CREATED:20250731T131734Z
LAST-MODIFIED:20250821T131843Z
UID:62992-1759080600-1759093200@riff.is
SUMMARY:Smakkbíó: Tampopo (Að eilífu\, Ramen)
DESCRIPTION:RIFF sýnir japönsku gamanmyndina Tampopo (Að eilífu\, Ramen) í samstarfi við ástsælasta Ramen stað borgarinnar\, Ramen Momo. Komdu og leyfðu öllum skilningarvitunum að upplifa töfra japanskrar matarmenningar.  \nTampopo er mannbætandi óður til gleðinnar sem góður matur veitir. Tveir vörubílstjórar slysast inn á hrörlega vegasjoppu þar sem ekkjan Tampopo selur ramen núðlur.  Hún biður þá félaga í framhaldinu að hjálpa sér að gera sjoppuna að núðlusjoppu í fremstu röð. Dásamleg mynd sem bragð er af. \nInnifalið í verðinu er smökkun sem innblásin er af Tampopo\, þar á meðal ramen og snarl\, ásamt miða á Tampopo-sýninguna. Einnig verður hægt að kaupa sætar japanskar kræsingar. \nRamen Momo er fyrsti ramen-veitingastaðurinn í Reykjavík sem býður upp á handgerðar núðlur og deiglur (e.dumplings) í notalegu og hlýlegu andrúmslofti. Staðurinn var stofnaður árið 2014 og er þekktur fyrir bragðmiklar súpur\, vegan- og glútenlausa valkosti  og notkun á ferskum\, staðbundnum hráefnum. Frá 2024 hefur veitingastaðurinn starfrækt tvo staði – þann upprunalega við Tryggvagötu og nýja útibúið við Bankastræti – þar sem boðið er upp á ekta kósýmatar-upplifun.
URL:https://riff.is/pl/event/smakkbio/
LOCATION:Háskólabíó – Screening Room 4\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 107
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/07/Special-events-FB-2.png
ORGANIZER;CN="Reykjav%C3%ADk International Film Festival":MAILTO:ticketing@riff.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250930T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250930T203000
DTSTAMP:20260405T172443
CREATED:20250909T123833Z
LAST-MODIFIED:20250909T123833Z
UID:63781-1759251600-1759264200@riff.is
SUMMARY:Apichatpong Weerasethakul: Memoria (2021) + Meistaraspjall
DESCRIPTION:Apichatpong Weerasethakul\, sem heiðraður verður á RIFF í ár fyrir einstaka listræna sýn\, er meðal frumlegustu og róttækustu kvikmyndagerðarmanna samtímans.  \nHann fæddist í Bangkok árið 1970 og ólst upp í norðausturhluta Taílands. Hann lærði arkitektúr áður en hann hélt til Chicago í kvikmyndanám\, þar sem hann þróaði sinn einstaka stíl sem snýst um minni\, tilfinningu og andlega leit frekar en hefðbundinn\, línulegan söguþráð. Draumkennt töfraraunsæi er alltumlykjandi. Myndir hans eru þekktar fyrir hæga\, íhugula framvindu og draumkennda færslu milli veruleika og hugarheims. Blissfully Yours (2002) og Tropical Malady (2004) vöktu strax athygli\, en það var Uncle Boonmee Who Can Recall His Past Lives (2010) sem vann til Gullpálmans í Cannes og gerði hann heimsþekktan. \nÞó myndir Apichatpong—sem er af aðdáendum jafnan kallaður Joe—megi virðast ópólitískar við fyrstu sýn\, endurspegla þær oft undirliggjandi átök: ritskoðun\, félagslegt taumhald og bælda sögu Taílands. Hann miðlar fremur með stemningu en yfirlýsingum — kvikmyndir hans líkjast oft óljósum draumum. \nÍ Memoria (2021) ráfar Tilda Swinton um götur Bogotá á flótta undan hljóði sem enginn nema hún heyrir. Úr verður framandi\, fögur og draumkennd upplifun þar sem minningar og ímyndun mætast. Hér er á ferðinni hæglát og seiðandi ráðgáta sem gerist á mörkum tveggja heima. \nSýningin byrjar kl. 17:00 og gert verður 20 mínútna hlé áður en Meistaraspjallið hefst kl. 19:40.
URL:https://riff.is/pl/event/apichatpong-weerasethakul-memoria-2021-meistaraspjall/
LOCATION:Háskólabíó – Screening Room 1\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/09/Special-events-FB-11.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251001T191500
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251001T220000
DTSTAMP:20260405T172443
CREATED:20250911T125810Z
LAST-MODIFIED:20250911T125810Z
UID:64248-1759346100-1759356000@riff.is
SUMMARY:Benny Safdie: The Smashing Machine (2025) + Intro Q&A
DESCRIPTION:Benny Safdie er einn afkastamesti og djarfasti leikstjóri Bandaríkjanna um þessar mundir. Hann er sérstaklega þekktur fyrir kvikmyndir sem hann og bróðir hans unnu að í sameiningu\, þar sem Safdie bæði leikstýrir og leikur á móti risastórum nöfnum í Hollywood\, líkt og Adam Sandler (Uncut Gems\, 2019) og Robert Pattinson (Good Time\, 2017). Nú vinnur Safdie sjálfstætt og fer sigurför um heiminn með nýjustu mynd sína The Smashing Machine með Dwayne Johnson í aðalhlutverki. Myndin verður sýnd á RIFF með sérstakri rafrænni kynningu frá Benny Safdie í rauntíma. \nÍ The Smashing Machine er sögð sagan af fjölbragðaglímukappanum Mark Kerr\, sem faldi flóknar tilfinningar með hrikalegum fantabrögðum sínum í hringnum. Úr verður áhugaverð svipmynd þar sem ógurlegur styrkur felur brothætta sál. \nSýningin byrjar eftir stutta kynningu frá Benny Safdie kl 19:15.
URL:https://riff.is/pl/event/benny-safdie-the-smashing-machine-2025-intro-qa/
LOCATION:Háskólabíó – Screening Room 1\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/09/Special-events-FB-13.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251003T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251003T183000
DTSTAMP:20260405T172443
CREATED:20250828T100721Z
LAST-MODIFIED:20250828T143504Z
UID:63677-1759510800-1759516200@riff.is
SUMMARY:Hellabíó: Hetjudáðir Múmínpabba
DESCRIPTION:RIFF kynnir á nýjan leik fjölskyldubíó djúpt í iðrum jarðar. Hetjudáðir Múmínpabba – Ævintýri ungs Múmínálfs (The Exploits of Moominpappa — Adventures of a Young Moomin) er hreyfimynd frá 2021 eftir Ira Carpelan sem segir frá því þegar Múmínsnáðinn er rúmfastur vegna geitungabits og Múmínpabbi vill gleðja hann. Hann grípur til þess ráðs að segja honum sögur frá ævintýralegri æsku sinni og einni stormasamri og örlagaríkri nótt þegar hann bjargar Múmínmömmu úr sjónum. \nRaufarhólshellir er í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Athugið að akstur að sýningarstað er ekki innifalinn í miðaverði. Leiðsögumenn Lava Tunnel munu fylgja gestum í gegnum hellinn að sýningarstað\, sem er í um það bil 10 mínútna göngufjarlægð. Öryggi gesta er í fyrirrúmi hjá starfsfólki Lava Tunnel\, og fá allir gestir hlífðarhjálma við komu. Nauðsynlegt er að klæða sig vel fyrir þessa sýningu. \nMyndin er með íslensku tali. Börn þurfa að vera í fylgd fullorðinna.
URL:https://riff.is/pl/event/hellabio-hetjudadir-muminpabba/
LOCATION:Raufarhólshellir / The Lava Tunnel\, Þrengslavegur\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/08/6.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251003T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251003T193000
DTSTAMP:20260405T172443
CREATED:20250905T095335Z
LAST-MODIFIED:20250905T095432Z
UID:63858-1759510800-1759519800@riff.is
SUMMARY:Mohsen Makhmalbaf: Hello Cinema + Meistaraspjall
DESCRIPTION:Mohsen Makhmalbaf er lykilpersóna í íranskri kvikmyndagerð\, löngum hylltur fyrir djarfa frásagnarlist og ekki síður fyrir þátt sinn í að móta hina alþjóðlega viðurkenndu írönsku nýbylgju. Makhmalbaf\, sem er sjálfmenntaður kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi stjórnmálaaktívisti\, hefur byggt feril sinn á ljóðrænum verkum þar sem spilast saman mannúð og þung\, pólitísk undiralda. Þar má telja myndir á borð við The Peddler (1987)\, Gabbeh (1996) og Kandahar (2001) — sú síðastnefnda færði honum heimsfrægð. \nMakhbalbaf hefur alla tíð verið ákafur talsmaður tjáningarfrelsis og hefur óspart beitt mætti kvikmyndalistarinnar í þágu málstaðarins. Fyrir bragðið hefur Makhmalbaf og verk hans ekki átt upp á pallborðið hjá stjórnvöldum í heimalandinu og fjölskylda hans verið í útlegð frá Íran um langt árabil. Nýrri verk Mohsens\, á borð við The President (2014)\, bera einkenni hans; dæmisögulega frásögn og siðferðislega brýningu. Hann hefur veruið heiðraður í Cannes\, Feneyjum og Berlín\, og stendur enn sem einn af mikilvægustu og hugrökkustu röddum samtímans í heimi kvikmyndanna. \nSýningin byrjar kl. 17:00 og gert verður 15 mínútna hlé áður en Meistaraspjallið hefst kl. 18:30.
URL:https://riff.is/pl/event/mohsen-makhmalbaf-hello-cinema-masterclass/
LOCATION:Háskólabíó – Screening Room 2\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/09/special_events_fb__8__720.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251003T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251003T213000
DTSTAMP:20260405T172443
CREATED:20250828T102034Z
LAST-MODIFIED:20250828T143320Z
UID:63683-1759521600-1759527000@riff.is
SUMMARY:Hellabíó: The Descent
DESCRIPTION:Þegar hópur vinkvenna leggur leið sína í ókannaðan helli breytist spennandi leiðangur fljótt í innilokunarkenndan hrylling. Fastar neðanjarðar uppgötva þær að þær eru ekki einar… Þessi sígilda hryllingsmynd Neil Marshall verður enn meira skelfileg þegar hún er sýnd djúpt í hellum Lava Tunnel. \nRaufarhólshellir er í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Athugið að akstur að sýningarstað er ekki innifalinn í miðaverði. Leiðsögumenn Lava Tunnel munu fylgja gestum í gegnum hellinn að sýningarstað\, sem er í um það bil 10 mínútna göngufjarlægð. Öryggi gesta er í fyrirrúmi hjá starfsfólki Lava Tunnel\, og fá allir gestir hlífðarhjálma við komu. Nauðsynlegt er að klæða sig vel fyrir þessa sýningu. \nVinsamlegast athugið að myndin er ekki við hæfi barna.
URL:https://riff.is/pl/event/hellabio-the-descent/
LOCATION:Raufarhólshellir / The Lava Tunnel\, Þrengslavegur\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/08/7.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260205T180000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260205T210000
DTSTAMP:20260405T172443
CREATED:20260112T111126Z
LAST-MODIFIED:20260128T150254Z
UID:66081-1770314400-1770325200@riff.is
SUMMARY:Sundbíó: When Harry Met Sally
DESCRIPTION:Ekki láta þig vanta í rómantískasta Sundbíó RIFF frá upphafi\, 5. febrúar! \nSundbíóið er einstök upplifun sem er hönnuð í kringum hina klassísku gamanmynd When Harry Met Sally (1989). Hér er ekki bara einstakt tækifæri til að sjá myndina á hvíta tjaldinu og það í Sundhöll Hafnarfjarðar heldur munu leikarar bregða sér á leik í hlutverkum persónanna og lifandi djasstónlist í anda myndarinnar mun óma um sundhöllina. \nLíkt og undanfarið ár verður mikið lagt í upplifunina og gestir mega búast við óvæntum uppákomum. Takmarkaður miðafjöldi í boði svo tryggið ykkur miða sem fyrst. Hús opnar 18.00 en myndin hefst kl. 19.00. \nSjáumst í Sundbíó RIFF! \n\nKAUPA MIÐA
URL:https://riff.is/pl/event/sundbio-when-harry-met-sally/
LOCATION:Sundhöll Hafnarfjarðar\, Herjólfsgata 10b\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://riff.is/wp-content/uploads/2026/01/621805825_1469769108055852_8520669925408552572_n-e1770827353179.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR