BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//RIFF - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://riff.is
X-WR-CALDESC:Events for RIFF
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250927T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250927T183000
DTSTAMP:20260407T053827
CREATED:20250901T124912Z
LAST-MODIFIED:20250926T181302Z
UID:63760-1758985200-1758997800@riff.is
SUMMARY:Kim Novak: Vertigo (1958) + Online Meistaraspjall
DESCRIPTION:Á RIFF fögnum við kvikmyndagerðarfólki sem sem lætur sér ekki nægja að fljóta með straumnum heldur marka sína einstöku braut\, varða hana með verkum sínum og vísa þannig veginn fyrir aðra að feta eftir. Í þessum flokki fögnum við þessum einstaklingum\, sýnum verk þeirra og efnum til samtals. \nKim Novak er ein af goðsögnum gullaldar Hollywood\, leikkona sem setti mark sitt á kvikmyndasöguna í verkum sem enn lifa góðu lífi á hvíta tjaldinu og munu gera það um. ókomna tíð. Hún fæddist í Chicago árið 1933 og steig sín fyrstu skref í Hollywood um miðjan sjötta áratuginn. Novak skaust þegar upp á stjörnuhimininn\, ekki einvörðungu sem tákn fegurðar og dularfulls glæsileika\, heldur sem listamaður sem bjó yfir einstöku næmi til að miðla brothættum kjarna sem bjó á bak við glamúrinn. \nFerill hennar spannar fjölmörg eftirminnileg hlutverk\, en hún er ef til vill hvað oftast tengd við meistaraverk Alfred Hitchcock\, Vertigo (1958). Þar skapaði hún eitt flóknasta og áhrifamesta kvenhlutverk kvikmyndasögunnar. Novak starfaði einnig með fleiri risum kvikmyndasögunnar á borð við Otto Preminger\, Billy Wilder og Sidney Lumet\, og sannaði með hverri frammistöðu fjölbreytta leikhæfileika og listrænan styrk. \nKim Novak er þó meira en kvikmyndastjarna. Hún er táknmynd tímabils þegar kvikmyndin var í senn stórbrotin list og ævintýralegur leikvöllur ímyndunaraflsins. Með verkum sínum hefur hún veitt kynslóðum áhorfenda innblástur og minnir okkur á að á bak við goðsögnina leynist ávallt kjarni mannlegra tilfinninga. \n20 mínútna hlé verður á milli sýningu á Vertigo (1958) í sal 2 og Meistaraspjalls í gegnum hljóðfjartæknibúnað í sal 1 sem byrjar kl 17:30. \nEinn af heiðursgestum RIFF 2025\, stórstjarnan Kim Novak\, hefur tilkynnt stjórnendum Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík að vegna ófyrirsjáanlegra orsaka verði hún því miður að breyta áætlunum sínum varðandi komuna á RIFF. Í stað þess að koma í eigin persónu mun hún taka þátt í meistaraspjalli í beinni hljóðútsendingu um gervihnött. \n 
URL:https://riff.is/event/kim-novak-vertigo-1958-masterclass/
LOCATION:Háskólabío – Screening Room 2 (Screening) and 1 (Masterclass)\, Hagatorgi\, Reykjavík\, 101
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/09/Special-events-FB-9.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250927T190000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250927T220000
DTSTAMP:20260407T053827
CREATED:20250801T131925Z
LAST-MODIFIED:20250927T134237Z
UID:63050-1758999600-1759010400@riff.is
SUMMARY:Sjónræn matarveisla: Big Night (Stóra veislan)
DESCRIPTION:Veisla fyrir skilningarvitin bíður þín á RIFF – í hinni árlegu Sjónrænu matarveislu! Við bjóðum þér á sýningu á hinni margverðlaunuðu Big Night í leikstjórn matgæðingsins Stanley Tucci\, ásamt sérhönnuðum matseðli frá Plantan Bistro – innblásnum af bragði og stemningu myndarinnar. \nBræðurnir Primo og Secondo leggja allt undir með veglegri veislu til heiðurs djassgoðsögninni Louis Prima\, í von um að bjarga ítalska veitingastað sínum í New Jersey. Spennan magnast í eldhúsinu og fleira en pastað nálgast suðumark! \nInnifalið í miðaverðinu er fordrykkur\, þriggja-rétta ítölsk matarveisla frá Plöntunni og miði á Big Night. Réttirnir eru allir vegan.  \nViðburðurinn er haldin í Norræna Húsinu\, Sæmundargata 11\, 102 Reykjavík. Húsið opnar klukkan 18:00 og sýning hefst klukkan 19:00.
URL:https://riff.is/event/big-night/
LOCATION:The Nordic House\, Sæmundargata 11\, Reykjavík\, 102\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://riff.is/wp-content/uploads/2025/08/Special-events-FB-1.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR