0%
Riff Logo

Ursula Meier hlýtur heiðursverðlaun á RIFF

News on the website Culinary Screenings at RIFF 2025 7 1

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur veitti svissnesku kvikmyndagerðarkonunni Ursulu Meier heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listfengi. Verðlaunaafhendingin fór fram í bransapartýi RIFF í samstarfi við svissneska sendiráðið á Slippbarnum síðastliðinn fimmtudag, en RIFF hefur gefið svissneskri kvikmyndagerð sérstakt heiðurssæti í dagskrá hátíðarinnar í ár. 

Hrönn Marinósdóttir stjórnandi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar var viðstödd verðlaunaafhendinguna og Villi Neto sá um skemmtanahaldið.

Meier vakti heimsathygli með fyrstu kvikmynd sinni í fullri lengd, Home (2008), sem var sýnd á Cannes og hlaut lof fyrir hugmyndaríkan og næman frásagnarstíl. Með framhaldsmyndinni Sister (2012), sem hlaut Silfurbjörn á Berlínarhátíðinni, styrkti hún stöðu sína sem ein mikilvægasta rödd evrópskrar kvikmyndagerðar. Í myndum hennar má finna bæði næmni og pólitíska dýpt; þær kanna tengsl fjölskyldu, samfélags og einstaklinga með blöndu af hlýju, húmor og samfélagsgagnrýni.

Meier hefur jafnframt unnið til fjölda verðlauna fyrir stuttmyndir sínar og heimildaverk og er nú orðin fyrirmynd næstu kynslóðar kvikmyndagerðarfólks. Hún sameinar skarpt auga fyrir smáatriðum og næmt innsæi í mannlega breyskleika og skapar þannig kvikmyndir sem hreyfa við áhorfendum á sama tíma og þær varpa ljósi á samtímann.

Share this post

STAY IN TOUCH

Related posts

RIFF 2026: Eleven Days of Discovery, Conversation and Shared Cinema

Packed cinemas, memorable guests and conversations that continued long after the credits rolled: Reykjavík International Film Festival 2026 has come to a close. From 24 September to 4 October, audiences explored a programme of 265 films from 60 countries and territories, bringing new perspectives and unforgettable stories to Reykjavík.

Read More »
SCHEDULE

Cart

No products in the basket.
0