Riff Logo
Riff Logo
Riff Logo
backround scaled
Krakkar filma! á Vestfjörðum

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hélt nýverið Krakkar filma! vinnustofur í þremur bæjarfélögum á Vestfjörðum undir merkjum UngRIFF. Leiðbeinandi var Erlingur Óttar Thoroddsen.

80

RIFF hefur um langt árabil haldið úti virku ungmennastarfi, bæði meðan á kvikmyndahátíðinni sjálfri stendur í september og október og svo utan hátíðardagskránnar með ýmis konar viðburðum og námskeiðum. Skólarnir sem tóku þátt að þessu sinni voru Patreksfjarðarskóli, Bíldudalsskóli og Tálknafjarðarskóli.

Í vinnustofum Krakkar filma! felst að vanda stuttmyndanámskeið og voru þau haldin dagana 19.–23. janúar í samstarfi við barnamenningarhátíðina Púkinn og Vestfjarðarstofu, með styrk frá ERASMUS+, og gekk með miklum ágætum.

Í þetta sinn var unnið með staðbundinn sagnaarf í vinnustofunum. Nemendur höfðu áður fengið leiðsögn frá stundakennurum um þjóðsögur á svæðinu og skemmtu sér konunglega í vinnustofunum í framhaldinu við gerð stuttmynda um þjóðsögurnar.