Riff Logo
Riff Dates (from 24-September-2026 to 04 october 2026)

WYTYCZNE

RIFF I NASZA WIZJA NA ZRÓWNOWAŻONĄ PRZYSZŁOŚĆ

W RIFF zrównoważony rozwój to nie tylko cel – to zasada przewodnia, której się trzymamy w każdym aspekcie naszej, czy to gdy chodzi o ofertę filmową, praktyki organizacyjne, czy inicjatywy branżowe. W obliczu wyzwań środowiskowych, z którymi zmaga się nieprzygotowany na nie świat, zdajemy sobie sprawę z naszej odpowiedzialności i konieczności wprowadzania zmian na lepsze za pomocą naszych działań i platform.

 Við leggjum áherslu á að varpa ljósi á þær hnattrænu krísur sem mannkynið stendur frammi fyrir og hvetja til aðgerða með áhrifamikilli dagskrá og sjálfbærum vinnubrögðum. Með því að sýna gott fordæmi viljum við efla grænni kvikmyndaiðnað og sýna fram á hvernig menningarviðburðir geta lagt sitt af mörkum til að stuðla að betri jörð. 

Hvert skref – stórt sem smátt – færir okkur nær sjálfbærari framtíð. 

Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna

RIFF er stolt af því að samræma sjálfbærnistefnu sína við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Með dagskrá sinni, samstarfi og daglegum rekstri vinnur RIFF að því að styðja við nokkur lykilmarkmið sem endurspegla gildi hátíðarinnar sem menningarstofnun og sem hluti af skapandi samfélagi Íslands.

SGD 4 – Menntun fyrir öll

RIFF býður upp á vinnustofur, pallborðsumræður og fræðsluverkefni sem hvetja bæði áhorfendur og kvikmyndagerðarfólk til sköpunar og gagnrýninnar hugsunar, auk þess að efla þekkingu á kvikmyndagerð, sjálfbærni og alþjóðlegum menningarlegum málefnum.

UngRIFF, barnahátíð RIFF, hefur það markmið að efla kvikmyndalæsi ungs fólks og hvetja til ígrundaðra umræðna um samfélagið. Með skapandi hópvinnu og verkefnum á borð við Ungmennaráð, leitast UngRIFF einnig við að stuðla að lýðræðislegri þátttöku og efla rödd ungs fólks. Að auki vinnur hátíðin að því að gera kvikmyndalistina aðgengilega og fræðandi fyrir fólk á öllum aldri. 

Eitt vinsælasta verkefnið er “Krakkar filma!”, nokkurra daga kvikmyndagerðarnámskeið þar sem börn víðs vegar að af landinu koma saman til að læra undirstöðuatriði kvikmyndagerðar og búa til eigin stuttmynd. Verkefnið er nú fastur liður í dagskrá RIFF, þar sem það veitir bæði börnum og kennurum þeirra mikilvæga menningarlega fræðslu.

UngRIFF stendur einnig fyrir skapandi vinnustofum fyrir leikskóla og yngri skólastig, þar sem yngstu áhorfendurnir fá að kynnast töfrum kvikmyndalistarinnar í gegnum leik, sköpun og sögugerð. 

SDG 5 – Jafnrétti kynjanna

RIFF leggur ríka áherslu á að efla jafnrétti kynjanna og fjölbreytileika í allri starfsemi hátíðarinnar, frá dagskrárgerð og stjórnunarstöðum til þátttöku áhorfenda og kvikmyndaiðnaðarins sjálfs.

Í dagskrá RIFF árið 2025 náði hlutfall kvenna og karla í leikstjórastöðum 50/50, sem endurspeglar stöðugt markmið okkar um jafnan sýnileika og jöfn tækifæri. RIFF var stofnað árið 2004 af Hrönn Marínósdóttur, sem hefur frá upphafi lagt sérstaka áherslu á að efla sýnileika kvenna í kvikmyndagerð, bæði á tjaldinu og á bak við myndavélina. Undir hennar forystu hefur RIFF stutt við konur í kvikmyndagerð með leiðsagnaráætlunum, tengslamyndunar viðburðum og samstarfsverkefnum sem draga fram þeirra skapandi framlag.

Fyrir utan jafnrétti kynjanna stuðlar RIFF einnig að fjölbreyttum röddum almennt, með því að fagna sögum frá jaðarsettum samfélögum og efla umræðu um jafnrétti í alþjóðlegum kvikmyndaiðnaði. Með því að flétta jafnrétti inn í kjarna starfseminnar og listrænnar sýnar sinnar leitast RIFF við að leggja raunverulegt af mörkum til þessa markmiðs. 

SGD 11 – Sjálfbærar borgir og samfélög 

RIFF styður framtíðarsýn Reykjavíkurborgar um að verða sjálfbær menningarhöfuðborg með því að virkja staðbundna samstarfsaðila, sýningarstaði og áhorfendur til þátttöku í umhverfisvænni starfsemi. Hátíðin er djúpstæð í menningarlífi borgarinnar og leggur áherslu á að starfa á þann hátt sem stuðlar jákvætt að borgarlífi, aðgengi og sjálfbærni. 

Samgönguaðilar hátíðarinnar, Hertz og Hopp, gegna lykilhlutverki í að stuðla að vistvænum ferðamátum á meðan á hátíðinni stendur. Með samstarfi við Hertz um leigu á rafbílum og rafhlaupahjólaþjónustu Hopp tryggjum við að starfsfólk, kvikmyndagerðarfólk og gestir geti ferðast á milli sýningarstaða á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.

Stærð og umfang hátíðar eins og RIFF krefst víðtæks nets samstarfsaðila. Vandað val á samstarfsaðilum okkar byggir á sameiginlegum gildum og gagnkvæmum ávinningi, sem gerir okkur kleift að skapa hátíð sem ekki einungis fagnar kvikmyndalistinni, heldur stuðlar einnig að sjálfbærara og tengdra samfélagi. Nýtt verkefni RIFF, Litla Sviðið, er hugsað sem samkomustaður ólíkra menningarheima og listgreina, sem stuðlar að auknu samstarfi og styrkir tengsl við fjölbreytt samtök og stofnanir.

SDG 12 – Ábyrg neysla og framleiðsla

Í samræmi við skuldbindingu okkar um að draga úr umhverfisáhrifum prentaðs efnis hefur RIFF innleitt stefnu um að lágmarka notkun á prentuðum dagskrám og veggspjöldum. Á síðasta ári tókst okkur að draga úr heildarfjölda prentaðra eintaka um u.þ.b. 60% með því að fækka síðum og leggja aukna áherslu á stafræna dreifingu. 

Fyrir næstu hátíð hyggst RIFF draga enn frekar úr prentun, um 20% til viðbótar, þannig að einungis nauðsynlegasta efnið verði prentað. Starfsfólk og gestir hátíðarinnar fá boli úr 100% lífrænni bómull, á meðan eldri innkaupapokar og bolir eru endurnýttir sem gjafavörur, sem lengir líftíma þeirra og dregur úr sóun. 

Með þessum aðgerðum leitast RIFF við að stuðla að meðvitaðri neyslu, draga úr efnislegri sóun og efla endurnýtingarmenningu í allri framleiðslu og skipulagi hátíðarinnar.

SDG 17 – Samvinna um markmiðin 

Árangursrík menningarleg, félagsleg og umhverfisleg áhrif krefjast trausts samstarfs við innlend og alþjóðleg samtök. Með samvinnu styrkjum við getu okkar til að skapa hátíð sem er fjölbreytt, sjálfbær og lifandi.

Í gegnum aðild sína að SMART7 tekur RIFF þátt í þekkingarmiðlun, sjálfbærniverkefnum og vinnustofum um áhorfendaþróun ásamt sex öðrum evrópskum kvikmyndahátíðum. SMART7 rekur einnig sameiginlega samkeppnisdagskrá, sem skapar tækifæri fyrir upprennandi kvikmyndagerðarfólk og auðgar dagskrá RIFF. Þetta samstarf er dæmi um kraft alþjóðlegrar samvinnu þar sem deilt er þekkingu, úrræðum og reynslu, og ýtir því beint undir SDG 17.

Slík samstarf byggja á gagnkvæmum ávinningi og sameiginlegum gildum, sem gerir RIFF kleift að virkja úrræði, miðla þekkingu og efla áhrif sín á sama tíma og unnið er að heimsmarkmiðum um sjálfbæra þróun.

Í áframhaldinu mun RIFF stefna að því að efla núverandi samstarf og mynda ný tengsl sem stuðla að auknu aðgengi, menningarlegum fjölbreytileika og umhverfisábyrgð, í takt við sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna og til að byggja upp seiglu og tengda menningarheild.

RIFF styrkir einnig sjálfbærnistefnu sína með nýju samstarfi við Arctic Circle Alliance. Ár hvert kemur Arctic Circle Summit saman í Reykjavík þar sem alþjóðlegir stefnumótendur, umhverfissérfræðingar og menningarleiðtogar ræða framtíð norðurslóða. Á ráðstefnunni kynnir RIFF dagskráliðinn Myndir úr norðri, sem sýnir sögur frá norðurslóðum og fjallar um menningarleg og umhverfisleg áskoranir svæðisins. Með því að fella kvikmyndalistina inn í þennan vettvang eykur RIFF sýnileika kvikmyndagerðafólks og frumbyggja, stuðlar að auknum skilningi og hvetur til raunhæfra lausna á brýnum málefnum svæðisins. Þetta samstarf styður beint við SDG 17 – Samstarf um markmiðin. 

Hvernig dagskrá RIFF styður heimsmarkmiðin

Flokkurinn Önnur framtíð


Þessi dagskrárliður hefur á undanförnum árum notið vaxandi vinsælda meðal áhorfenda og hvetur til gagnrýninnar umræðu um samfélag og umhverfi, sem hjálpar okkur öllum að verða meðvitaðri og ábyrgari íbúar jarðar. Þetta er eini samkeppnisflokkur heimildamynda á RIFF og undirstrikar hlutverk kvikmyndalistarinnar sem öflugs tækis til að efla vitund um umhverfis- og samfélagsmál.

Sýningum í þessum flokki fylgja Samræður til áhrifa (e. Impact talks) þar sem spurt er og svarað. Þetta er órjúfanlegur hluti af umhverfisdagskrá RIFF. Þessar umræður eru einstakt tækifæri fyrir áhorfendur til að taka virkan þátt í samtali með kvikmyndagerðarfólki, sérfræðingum og aðgerðarsinnum, og þar með dýpka skilning sinn á sjálfbærni og umhverfismálum og fá hvatningu til raunverulegra aðgerða.

Verðlaunin Græni Lundinn
Þessi viðurkenning er veitt þeim kvikmyndagerðarmanni eða kvikmyndasérfræðingi sem hefur lagt verulegt framlag til umhverfisverndar í starfi sínu. Að auki vinnur RIFF að því að virkja unga áhorfendur í umræðu um sjálfbærni og bjóða upp á fræðsluerindi um vistvæna sögugerð.

Polityka kadrowa

Cele polityki kadrowej to: profesjonalizm, szacunek i radość

Podczas Międzynarodowego Festiwalu Filmowego w Reykjaviku (RIFF) chcemy, aby nasz zespół składał się z pracowników, którzy są zmotywowani, kompetentni, postępowi i dbają o dobre samopoczucie współpracowników. Polityka kadr ma na celu promowanie pozytywnego środowiska pracy, czyli takich warunków, w których szacunek i równość przejawiają się w komunikacji na każdym kroku. 

Kładziemy nacisk na kształtowanie pozytywnej kultury pracy, którą cechują: ścisła współpraca, możliwości rozwoju, zachęcanie do wykazywania inicjatywy, otwarta wymiana opinii i skuteczna komunikacja. Polityka kadrowa odzwierciedla wspólną wizję pracowników dotyczącą elementów, które sprawiają, że festiwal staje się atrakcyjnym miejscem pracy. 

Podstawowe założenia polityki kadrowej:

  • Równość i szacunek
  • Wiedza i inicjatywa
  • Współpraca i elastyczność
  • Dobrostan w miejscu pracy
  • Pomoc dla pracowników w uzyskaniu równowagi między życiem zawodowym a prywatnym
  • Umożliwianie pracownikom wykorzystania ich talentów i wykształcenia

To oznacza, że organizatorzy Międzynarodowego Festiwalu Filmowego w Rejkiawiku (RIFF):

  • Szanują swoich pracowników oraz ich opinie
  • Angażują wszystkich pracowników w kształtowanie i ulepszanie procesów
  • Działają w myśl równości i sprawiedliwości
  • Oferują projekty, dzięki którym poszczególne talenty mogą się rozwijać
  • Kładą nacisk na jakość i wiarygodność
  • Informuje pracowników o ich zadaniach i obowiązkach

W RIFF pracownicy mają obowiązek:

  • Szanować swoich współpracowników
  • Być przygotowanym na rozwój i zmianę, oraz brać czynny udział w tych procesach
  • Poszerzać swoją wiedzę
  • Wykonywać swoją pracę uczciwie i w ambitny sposób.
  • Zachowywać się odpowiedzialnie