Dagskráráð Unga Fólksins
Dagskrárráð unga fólksins er hópur kvikmyndaáhugafólks sem tekur virkan þátt í að móta hátíðina. Ráðið fær innsýn í dagskrárgerð RIFF, velur kvikmyndir sem vekja áhuga og deilir sínum meðmælum með áhorfendum.
Auk þess hittist ráðið reglulega yfir árið þar sem við ræðum hugmyndir, fáum endurgjöf og þróum dagskrá og viðburði í sameiningu. Þannig verður ráðið virkur þátttakandi í því að móta upplifun hátíðarinnar.
Við leitum að forvitnu og áhugasömu ungu fólki sem vill taka þátt í samtalinu um kvikmyndir, menningu og það sem skiptir þeirra kynslóð máli.
Hér fyrir neðan eru meðlimir dagskráráðsins 2026
Arína Vala
Kvikmyndagerðarkona
Arína Vala er kvikmyndaleikstjóri frá Reykjavík, Íslandi. Hún býr um þessar mundir í New York þar sem hún er í meistaranámi í kvikmyndagerð við NYU, Tisch School of the Arts. Hún er auk þess með BA próf í kvikmyndafræði frá Háskóla Íslands. Árið 2024 frumsýndi hún stuttmynd sína „Háflóð“ á kvikmyndahátíðinni Stockfish en hennar fyrsta stuttmynd, „Borgarsinfónía“ var sýnd á RIFF, 2020. Hún hefur einnig leikstýrt tónlistarmyndböndum fyrir hljómsveitirnar Reykjavíkurdætur og Inspector Spacetime, sem voru bæði tilefnd í flokknum „Tónlistarmyndbönd ársins,“ á Íslensku hlustendaverðlaununum árið 2022.
Arína Vala
Skúli Thayer
Skúli Thayer
Myndlistarmaður
Skúli Thayer er að stíga sín fyrstu skref sem myndlistarmaður, nýútskrifaður úr Myndlistardeild frá Listaháskóla Íslands. Í ágúst tók hann þátt í sýningu á vegum listamannareknasýmisins OPEN þar sem hann sýndi innsetningu og gjörning. Hann vinnur mikið með húmor, skrásetningu og hversdagsleikann í verkum sínum. Þó að Skúli sé myndlistarmaður kann hann líka að meta önnur listform og horfir mikið á kvikmyndir en Minions myndirnar vinsælu verða alltaf í uppáhaldi hjá honum.
Harpa Hjartardóttir
Kvikmyndagerðakona
Harpa Hjartardóttir er mastersnemi í kvikmyndaleikstjórn í FAMU í Prag og er einnig með BA gráðu í kvikmyndafræði frá Háskóla Íslands. Hún er stærsti aðdáandi íslensku myndarinna Blossi/810551 og skrifaði BA ritgerðina sína um hana sem íslenska költmynd.
Nýlega var myndin hennar Pólitískur öfgamaður sýnd á Skjaldborg, heimildarmyndahátíðinni á Patreksfirði. Pólitískur öfgamaður er stuttheimildarmynd um rapparann Erp Eyvindarson.
Harpa Hjartardóttir
Una Schram
Una Schram
Tónlistarskona
Una (Gíslrún Kristinsdóttir) Schram er sjálfstætt starfandi tónlistarkona, dagskrárgerðarkona og pistlahöfundur á Rás 1. Hún er í meistaranemi í menningarmiðlun, hefur starfað við samfélagsmiðla á auglýsingastofu og sótti BA-nám í tónlist og söng í Bretlandi.
Mikołaj Tumi
Kvikmyndagerðarmaður
Nikulás Tumi er Íslenskur kvikmyndagerðarmaður sem núverið stundar Meistaranám við FAMU í Tékklandi. 2022 lauk hann Bakkalárprófi úr kvikmyndafræði við Háskóla Íslands. Hann hefur starfað við gerð tónlistarmyndbanda og dagskrágerðar, auk þess að hafa leikstýrt stuttmyndum sem sýndar hafa verið á hátíðum víða um Evrópu, þar má nefna Karlovy Vary, en mynd hans Blue Boy, var sýnd þar 2024. 2019 sat hann í dómnefnd European University Film Awards (EUFA) og 2024 sat hann í dómnefnd Smart7 sem fulltrúi Íslands á Thessaloniki International Film Festival (TIFF).
Nikulás Tumi
Melkorka Gunnborg
Melkorka Gunnborg
Sviðshöfundur
Melkorka er sviðshöfundur og bókmenntafræðingur. Hún hefur tekið þátt í ýmsum sýningum í sjálfstæðu sviðslistasenunni sem höfundur, meðhöfundur, leikstjóri og aðstoðarleikstjóri, m.a. í sumarleikhúsinu Afturámóti árið 2024 með sýningunum Hansel og Gretel og Þegar við erum ein. Nýverið hefur hún starfað sem aðstoðarleikstjóri í Borgarleikhúsinu í sýningunum Þetta er Laddi og Moulin Rouge. Hún hefur einnig fengist við dagskrárgerð fyrir Rás 1 og verið með innslög í Lestinni, Tengivagninum og Víðsjá.


