Dagskráráð Unga Fólksins
Dagskrárráð unga fólksins er hópur kvikmyndaáhugafólks sem tekur virkan þátt í að móta hátíðina. Ráðið fær innsýn í dagskrárgerð RIFF, velur kvikmyndir sem vekja áhuga og deilir sínum meðmælum með áhorfendum.
Auk þess hittist ráðið reglulega yfir árið þar sem við ræðum hugmyndir, fáum endurgjöf og þróum dagskrá og viðburði í sameiningu. Þannig verður ráðið virkur þátttakandi í því að móta upplifun hátíðarinnar.
Hér fyrir neðan eru meðlimir dagskráráðsins 2026
Nikulás Tumi
Kvikmyndagerðarmaður
Nikulás Tumi er Íslenskur kvikmyndagerðarmaður sem núverið stundar Meistaranám við FAMU í Tékklandi. 2022 lauk hann Bakkalárprófi úr kvikmyndafræði við Háskóla Íslands. Hann hefur starfað við gerð tónlistarmyndbanda og dagskrágerðar, auk þess að hafa leikstýrt stuttmyndum sem sýndar hafa verið á hátíðum víða um Evrópu, þar má nefna Karlovy Vary, en mynd hans Blue Boy, var sýnd þar 2024. 2019 sat hann í dómnefnd European University Film Awards (EUFA) og 2024 sat hann í dómnefnd Smart7 sem fulltrúi Íslands á Thessaloniki International Film Festival (TIFF).
Sandra Gunnarsdóttir
Sagnfræðingur, athafnakona og flugþjónn
Sandra er menntaður sagnfræðingur og starfar sem flugfreyja hjá Icelandair. Hún hefur tekið að sér alls kyns störf og verkefni, þar á meðal starfað sem danskennari, fyrirsæta, gleraugnasali og leikið í auglýsingum og listrænum stuttmyndum. Hún er einnig menntaður sögukennari og hefur unnið að ýmsum verkefnum sem tengjast sagnfræðinni. Hún er einnig mikill listunnandi og sat nám við Myndlistarskólann í Reykjavík.
Ragnhildur Björt
Sagnfræðingur
Ragnhildur er meistaranemi í sagnfræði og starfar samhliða náminu í Bóksölu stúdenta. Hún er bókaormur og er týpan sem vill ávallt lesa bókina áður en hún horfi á myndina. Undanfarið hefur Ragnhildur verið að skoða alls konar lýsingar á því hvernig fólk skynjaði heiminn í gegnum ólík skilningarvit fyrr á öldum. Hún hefur sérstaklega beint sjónum sínum að lykt og dreymir um að það verði fundið upp lyktarorgel fyrir bíó, svo gestir finni sömu lykt og persónur myndarinnar, líkt og Aldous Huxley lýsti í Veröld ný og góð.
Ari Hallgrímsson
Sagnfræðinemi
Ari er sagnfræðinemi við Háskóla Íslands og starfar sem kirkjuvörður í Hallgrímskirkju. Hæfni hans til setu í dagskrárráði er óþarft að draga í efa enda hlaut Ari viðurkenningar fyrir „besta handrit“ sem og „besti leikari í aðalhlutverki“ í stuttmyndakeppni Mýrarhúsaskóla 2013, eins og frægt er orðið.
Arína Vala
Kvikmyndagerðarkona
Arína Vala er kvikmyndaleikstjóri frá Reykjavík, Íslandi. Hún býr um þessar mundir í New York þar sem hún útskrifaðist með meistaragráðu í leikstjórn og handritagerð frá NYU Tisch School of the Arts árið 2025. Hún er auk þess með BA próf í kvikmyndafræði frá Háskóla Íslands. Árið 2024 frumsýndi hún stuttmynd sína „Háflóð“ á kvikmyndahátíðinni Stockfish en hennar fyrsta stuttmynd, „Borgarsinfónía“ var sýnd á RIFF, 2020. Hún hefur einnig leikstýrt tónlistarmyndböndum fyrir hljómsveitirnar Reykjavíkurdætur og Inspector Spacetime, sem voru bæði tilefnd í flokknum „Tónlistarmyndbönd ársins,“ á Íslensku hlustendaverðlaununum árið 2022.
Melkorka Gunnborg
Sviðshöfundur
Melkorka er sviðshöfundur og bókmenntafræðingur. Hún hefur tekið þátt í ýmsum sýningum í sjálfstæðu sviðslistasenunni sem höfundur, meðhöfundur, leikstjóri og aðstoðarleikstjóri, m.a. í sumarleikhúsinu Afturámóti árið 2024 með sýningunum Hansel og Gretel og Þegar við erum ein. Nýverið hefur hún starfað sem aðstoðarleikstjóri í Borgarleikhúsinu í sýningunum Þetta er Laddi og Moulin Rouge. Hún hefur einnig fengist við dagskrárgerð fyrir Rás 1 og verið með innslög í Lestinni, Tengivagninum og Víðsjá.
Grettir Valsson
Vitleysingur
Grettir er ungur höfundur, grínari, einkaþjálfari og lygari, ásamt því að vera dæmdur áhugaleikari og menntaður trúður. Um þessar mundir stundar hann nám á sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands og vinnur samhliða því við hin ýmsu skemmtanastörf. Hann gaf nýverið út fjölskylduplötuna „Ekki Láta Plata Þig“ og hefur komið fólki víða fyrir sjónir. Fyrst og fremst leggur Grettir sig þó fram við að vera umburðarlynd og kærleiksrík manneskja.
Skúli Thayer
Myndlistarmaður
Skúli Thayer er að stíga sín fyrstu skref sem myndlistarmaður, nýútskrifaður úr Myndlistardeild frá Listaháskóla Íslands. Í ágúst tók hann þátt í sýningu á vegum listamannareknasýmisins OPEN þar sem hann sýndi innsetningu og gjörning. Hann vinnur mikið með húmor, skrásetningu og hversdagsleikann í verkum sínum. Þó að Skúli sé myndlistarmaður kann hann líka að meta önnur listform og horfir mikið á kvikmyndir en Minions myndirnar vinsælu verða alltaf í uppáhaldi hjá honum.
Harpa Hjartardóttir
Kvikmyndagerðakona
Harpa Hjartardóttir er mastersnemi í kvikmyndaleikstjórn í FAMU í Prag og er einnig með BA gráðu í kvikmyndafræði frá Háskóla Íslands. Hún er stærsti aðdáandi íslensku myndarinna Blossi/810551 og skrifaði BA ritgerðina sína um hana sem íslenska költmynd.
Nýlega var myndin hennar Pólitískur öfgamaður sýnd á Skjaldborg, heimildarmyndahátíðinni á Patreksfirði. Pólitískur öfgamaður er stuttheimildarmynd um rapparann Erp Eyvindarson.
Þorsteinn Sturla Jónsson
Leikstjóri
Þorsteinn er leikstjóri, handritshöfundur, og handritsráðgjafi með yfir 8 ára reynslu í kvikmyndagerð og sviðslistum. Þorsteinn hefur lokið námi bæði á sviði kvikmyndagerðar og sviðslista. Hann stundar nú nám við sviðshöfundarbraut Listaháskóla Íslands. Útskriftarmyndin hans ‘Dauðaþögn’ vann til verðlauna víðsvegar um Evrópu og árið 2020 keypti Sjónvarp Símans sýningarrétt á heimildarmyndinni hans ‘Erum við að rúlla?’ Á sviði hafa verk hans verið sýnd í Tjarnarbíó og Þjóðleikhúsinu, en um þessar mundir er Þorsteinn hluti af höfundarhóp í kvikmyndaverkefni sem hefur hlotið 3 handritastyrki frá Kvikmyndamiðstöð.
Sigyn Jara
Athafnakona
Sigyn Jara er menntaður tómstunda- og félagsmálafræðingur og hefur sett upp hina ýmsa hatta. Hún starfar til dæmis við ferðaþjónustu, viðburðarstjórnun, sem yoga-kennari, plötusnúður og framleiðandi stuttmynda, leikrita og tónlistarmyndbanda. Hennar nýjasta verkefni innan kvikmyndabransans var aðstoð við framleiðslu á myndinni Hvar er draumurinn? sem byggir á lögum eftir Sálina hans Jóns míns. Nýverið hefur hún einnig unnið að uppsetningu Jaðaríþróttahópastarfs á vegum Reykjavíkurborgar fyrir ungmenni i 8-10. bekk, þar sem áhersla er lögð á að styrkja sjálfstraust barna og auka útiveru þeirra. Einnig er Sigyn mikill ferðalangur en hún fór hringinn í kringum hnöttinn fyrr á árinu.
Arndís María
Nemi á sviðshöfundabraut
Arndís er nemi á sviðshöfundabraut við Listaháskóla Íslands, starfsmaður í félagsmiðstöð og sviðslistakona. Nýlega sinnti hún starfi dramatúrgs og meðframleiðanda við uppsetningu Leikhúss Ókunnuga Fólksins á Söngleiknum Kabarett sem settur var upp í samstarfi við Þjóðleikhúsið á nýliðnu leikári, en sýningin hlaut Grímuverðlaun fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins. Arndís var einnig aðstoðarmaður leikstjóra í kórverkinu Merg sem sýnt var í Tjarnarbíó í vetur og hlaut mikilla vinsælda.
Anna Sóley Jónsdóttir
Listfræðingur
Anna Sóley er er mikill listunnandi og er að klára BA í listfræði við Háskóla Íslands.
Hún hefur starfað sem alþjóðafulltrúi við Skrifstofu Stúdentaráðs og aðstoðar gjarnan við uppsetningu sýninga í listamannarekna rýminu Hermu við Hverfisgötu.

