Riff Logo
Riff Dates (from 24-September-2026 to 04 october 2026)

VERTU MEÐ

Hefur þú brennandi áhuga á kvikmyndum og ert að leita að þinni fyrstu reynslu í heimi viðburða og kvikmynda á Íslandi? Viltu vera partur af framleiðslu og skipulagningu á einni stærstu kvikmyndahátíð á Íslandi?

Við hjá RIFF bjóðum uppá tækifæri til að öðlast reynslu og læra af okkur. Ef þetta vekur áhuga þinn og og þú ert tilbúin að skuldbinda þig, þá ættirðu að íhuga að gerast starfsnemi eða sjálfboðaliði fyrir RIFF 2026!

RIFF er haldið í 11 daga og hefst ár hvert í síðustu viku september mánaðar.

STARFSNÁM

RIFF leitar að starfsnemum til liðs við okkur á skrifstofunni í Reykjavík. Það er fjöldinn allur af áhugaverðum verkefnum sem við þurfum stuðning við og sem starfsnemi verður þú ómissandi hluti af teyminu.

Verkefnin fela í sér skipulag, framleiðslu, samskipti við kvikmyndagerðarmenn, fyrirtæki, staði og aðra samstarfsaðila og margt fleira.

Við tökum inn starfsnemar þrisvar sinnum á ári, ýmist í þrjá eða sex mánuði. Umsóknarfrestur eru 10. janúar 2026 fyrir þá sem vilja taka þátt í undirbúningi hátíðarinnar, 2. febrúar fyrir þá sem vilja vera hluti af öllu hátíðarferlinu frá apríl til október, og 11. maí fyrir þá sem vilja koma og vera í taka þátt í framkvæmd hátíðarinnar frá júlí til október. Starfsnám er ekki launað, en það er möguleiki á að vera ráðinn inn eftir starfsnámið.

Þetta starfsnám hentar vel fyrir nýliða í kvikmyndabransanum. Markmið okkar er skipuleggj góða  kvikmyndahátíð og vinna lifandi og  áhugaverðu umhverfi. Allir starfsnemar fá hátíðarpassa sem veitir aðgang að öllum sýningum á hátíðinni.

SJÁLFBOÐALIÐASTARF

Hefur þú áhuga á að leggja RIFF lið og hjálpa hátíðinni að vaxa, horfa á frábærar kvikmyndir og bæta við reynslu þína á sama tíma. Þá ættir þú að ganga til liðs við okkur og gerast sjálfboðaliði. Mörg spennandi verkefni í boði– allt frá því að aðstoða við að skipuleggja viðburði til aðstoðar í kvikmyndahúsi, aðstoða gestastjóra, vera bílstjóri og hjálpa gestum hátíðarinnar.

Hátíðin gæti ekki farið fram án stuðnings hinna mörgu sjálfboðaliða sem ganga til liðs við okkur á hverju ári.

"RIFF brings a much-needed breath of fresh air to the film industry by successfully celebrating diversity, valuing innovation and bringing impactful and thought-provoking stories to the forefront. I am grateful to have contributed to such an inclusive and dynamic festival and helped get us a step closer to a brighter future for cinema."