TÓNLISTARMYNDBÖND Á RIFF

28. ágúst

PROMO IMAGE 1

Ef þú ert að vinna í tónlistarmyndbandi, eða langar að gefa tónlistarmyndbandinu þínu aukið líf utan YouTube og samfélagsmiðla, þá gæti tónlistarmyndbandakvöld RIFF verið fullkomið tækifæri fyrir þig!

Á meðan sífellt er sótt að miðlun á lengra formi og endalaust skroll heltekur athygli okkar vill RIFF skapa lifandi vettvang þar sem leikstjórar, tónlistarfólk, kvikmynda- og tónlistarunnendur geta komið saman og fagnað listinni sem felst í tónlistarmyndbandagerð.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Smekkleysu og verður haldinn í húsakynnum plötubúðarinnar. Smekkleysa hefur um áratugaskeið sérhæft sig í sölu á íslenskri tónlist og viðburðarhaldi tengdu íslensku tónlistarlífi. 

Innsend myndbönd geta verið myndbönd í vinnslu eða myndbönd sem hafa komið út innan ársins 2026. Sýnd verða ný tónlistarmyndbönd valin af nefnd ásamt sérstöku úrvali eldri verka úr sögu íslenskrar tónlistarmyndbandagerðar. Þar gefst áhorfendum kostur á að uppgötva týndar perlur, áhrifamikil verk og söguleg tónlistarmyndbönd sem hafa sjaldan eða aldrei verið aðgengileg á streymisveitum eða samfélagsmiðlum. Markmiðið er að draga upp mynd af þeirri grósku, fjölbreytni og sköpunarkrafti sem hefur einkennt íslenska tónlistarmyndbandagerð í gegnum tíðina og tengja saman fortíð og nútíð miðilsins. 

Um sýningarhluta eldri tónlistarmyndbanda sér Magnús Leifsson, en verkin endurspegla sögu tónlistarmyndbanda á Íslandi og innihalda verk eftir marga okkar fremstu leikstjóra. Maggi er íslenskur leikstjóri með áratugalangan feril í kvikmynda-, sjónvarps- og auglýsingagerð. Samhliða því að leikstýra þáttum og auglýsingum hefur hann markað sér sterkan sess sem einn af afkastamestu tónlistarmyndbandaleikstjórum landsins og unnið með tónlistarfólki úr fjölbreyttum áttum tónlistarlífsins — allt frá Of Monsters And Men, Retro Stefson, FM Belfast, Ólafi Arnalds og múm til rappara á borð við Birni, Úlf Úlf og Emmsjé Gauta. Verk hans einkennast af leikandi myndmáli, skapandi notkun á hreyfingu og dansi, og eftirminnilegum tökustöðum þar sem sjónræn frásögn og tónlist mætast á lifandi og oft óvæntan hátt.

PROMO IMAGE 2

Valdir umsækjendur með ný tónlistarmyndbönd fá þátttökuverðlaun, hátíðarpassa og passa á Bransadaga RIFF og einstök tækifæri til að mynda tengsl innan kvikmynda- og tónlistarbransans, auk mögulegrar fjölmiðlaumfjöllunar.

Myndbönd sem eru enn í vinnslu eða sem komu út innan ársins 2026 geta tekið þátt. 

 

Athugið að viðburðurinn er ekki keppni sem slík. Fremur en að stilla leikstjórum og listamönnum upp gegn hver öðrum vill RIFF skapa vettvang sem leggur áherslu á að fagna fjölbreyttri og kraftmikilli flóru íslenskrar tónlistarmyndbandagerðar, bæði gamallar og nýrrar. Það þýðir þó ekki að viðburðurinn sé opinn öllum innsendum verkum. Valnefnd fer yfir allar umsóknir og velur tónlistarmyndbönd inn í dagskrána út frá listrænum gæðum, sérstöðu og því hvernig verkin tala saman sem heild. Að vera valinn til sýningar á viðburðinn felur því í sér ákveðna viðurkenningu og er heiður í sjálfu sér.