Riff Logo
Riff Dates (from 24-September-2026 to 04 october 2026)

ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK

25. september - 5. október 2025

25. september – 5. október 2025

Hátíðin fer fram í Reykjavík. Aðal sýningarstaðirnir okkar eru Háskólabíó og Norræna Húsið. 

UngRIFF er undirhátíð RIFF sem býður upp á viðburði og sýningar fyrir börn og ungmenni. Lesa má meira um hana hér

Á RIFF eru sýndar kvikmyndir af öllum toga: leiknar myndir, heimildarmyndir og allt þar á milli. Sýndar eru bæði alþjóðlegar og íslenskar myndir, bæði styttmyndir og í fullri lengd. 

Allar myndir á RIFF eru með enskum texta, nema sýningar ætlaðar börnum sem hafa íslenskan texta. 

Já! RIFF óskar eftir sjálfboðaliðum við aðstoð á hátíðinni ár hvert. Þú getur sótt um hér

Já! RIFF óskar eftir starfsnemum ár hvert til þess að aðstoða við hátíðina. Hægt er að koma og sinna ýmsum verkefnum í mismunandi deildum innan RIFF. Starfsnematímabilin eru frá 3 til 6 mánuðir. Þú getur sótt um starfsnám hér

MIÐASALA

Þú getur keypt hátíðarpassa og klippikort á heimasíðunni okkar allt árið. Stakir miðar fara í sölu á netinu viku fyrir hátíðina og miðasölubásinn í Háskólabíói opnar 22. september.

Hátíðarpassi veitir eiganda þess ótakmarkaðan aðgang að öllum sýningum RIFF, að undanskildum sérviðburðum. Stakur miði gildir aðeins á eina sýningu.

Já, frá og með 22. september verður miðasölubásinn í Háskólabíó opinn. Þar getur þú innleyst gjafakort, keypt hátíðarpassa/klippikort, staka miða og varning. Ath. við seljum ekki miða á staðnum í Norræna húsinu.

Þegar þú kaupir miða á netinu færð þú QR kóða í tölvupósti sem þú þarft að sýna til þess að komast inn á sýninguna. Ef þú vilt getur þú einnig fengið prentaða miða í miðasölubásnum í Háskólabíó.

RIFF býður 20% afslátt á hátíðarpassa fyrir nemendur og eldri borgara gegn framvísum nemendaskírteinis í miðasölunni í Háskólabíó. Hægt er að kaupa barnamiða fyrir börn undir 12 ára á 50% afslætti, sérstakir viðburðir undanskildir. 

Miðar á RIFF eru ekki endurgreiddir nema sýning falli niður og passar eru óendurgreiðanlegir. Hægt er að skipta um miða á sýningu fyrir aðra í allt að klukkustund frá því að sýningin byrjar. 

RIFF appið er hægt að sækja hér, en þú getur bæði skoðað dagskrána og bókað miða þar. 

KVIKMYNDAGERÐARFÓLK

Já! RIFF tekur á móti innsendingum frá desember til júlí. Þú getur sent inn myndina þína hér.

Bransadagafaggilding gefur fólki í bransanum aðgang að Bransadögum RIFF á afsláttarkjörum. Hægt er að sækja um BASIC (inniheldur aðeins aðgang að dagskrá Bransadaga), FULL (inniheldur hátíðarpassa og aðgang að dagskrá Bransadaga), og FULL FILM STUDENT (inniheldur það sama og FULL á afslætti). Þú getur sótt um að fá Bransadagafaggildingu hér

AÐGENGI

Já, allir salir í Háskólabíó og Norræna húsinu eru aðgengilegir fyrir hjólastóla. Ef þú ert í hjólastól eða með hreyfihömlun og ert á leiðinni á sýningu í sal 4, vinsamlegast hafðu samband við starfsfólk í miðasölunni til að fá aðgang að lyftu. Stæði fyrir hreyfihamlað fólk eru til staðar við bæði Háskólabíó og Norræna húsið. 

Sérðu ekki svarið við spurningunni þinni hér að ofan? Hafðu þá samband við riff@riff.is og við svörum um leið og við getum!