NORÐURSLÓÐA HANDRITASMIÐJAN

Arctic Script Lab er þróunarverkefni fyrir handritshöfunda og leikstjóra frá Norðurlöndum sem eru að ryðja sér til rúms og eiga það sameiginlegt að segja frá reynsluheimi fólks á norðlægum slóðum, hvort sem hún tengist náttúrunni, samfélagslegum málefnum, menningu eða pólitík.

Hvað er Arctic Script Lab?

Þróaðu þína fyrstu mynd í fullri lengd. Finndu rödd þína. Stækkaðu tengslanetið.

Arctic Script Lab er blandað þróunarverkefni fyrir allt að 8 handritshöfunda frá Norðurlöndum sem eru að taka sín fyrstu skref og vinna að sinni fyrstu leiknu kvikmynd, heimildarmynd eða blönduðu verki.

Við leitum að sögum sem skipta máli: frásögnum sem skoða skurðpunkt náttúru, vistfræði, samfélagsbreytinga, menningararfs. Við viljum sjá hver framtíðin getur orðið með augum heimamanna og frumbyggja á norðlægum slóðum.

Verkefnið sameinar með markvissum hætti leiðsögn, endurgjöf á jafningjagrundvelli og vandlega skipulagðar kynningar á fagaðilum í greininni. Þátttakendur þróa verk sín á vinnslustigi, dýpka þematískar áherslur og koma sér í samband við fagfólk í norrænum kvikmyndaheimi á RIFF 2026.

HVÍ NÚNA?

Samtíma kvikmyndagerð er undirlögð af heimsendaspám sem vekja ótta og vonleysistilfinningu. Við viljum búa til rými fyrir sögur með rætur í raunverulegri reynslu, innbyrðis tengslum og langtímahugsun; nálgun sem Norðurslóðir hafa ávallt hlúð að.

Skipulag verkefnis

Tvö stig: samstarf á netinu + fundir í eigin persónu

Hluti 1: Vinna á netinu

7.-9. ágúst 2026 (hálfur föstudagur, laugardagur, sunnudagur) – Á netinu

Deildu með okkur útlistuðu handriti Þú vinnur með leiðbeinendum og öðrum þátttakendum í hópavinnu þar sem farið er yfir sögubyggingu, frásagnaraðferð, og þematíska staðfærslu. Þú færð skriflega endurgjöf, leiðsögn í rauntíma og andrými til umhugsunar áður en hópurinn hittist.

Það sem þú færð:
  • Virka endurgjöf frá jafningjum (vinnslustig)
  • Hópleiðsögn á frásagnaraðferð og þematískan skýrleika
  • Vinnusmiðjur um umhverfisfrásagnir og söguheim frumbyggja
  • Sjálfstæð endurgjöf frá reyndum handritsleiðbeinendum
  • Tími til að meta endurgjöf áður en komið er til Reykjavíkur

Hluti 2: Vinna á staðnum

30.september – 3. október, 2026 – Reykjavík, Ísland – Hluti af Bransadögum RIFF

Vertu hluti af einum mikilvægasta fagaðilafundi í kvikmyndaheimi Norðurslóða. Samhliða áframhaldandi leiðsögn og þróunarfundum munt þú hitta framleiðendur, fjármögnunaraðila, dagskrárstjórnendur hátíða og jafningja, og huga fyrir alvöru að næstu skrefum í verkefninu þínu.

Það sem þú tekur þátt í:

  • Áframhaldandi leiðsögn ásamt tilsögn í einrúmi
  • Vinnusmiðjur í hópum
  • Þátttaka í völdum pallborðsumræðum og tengslaviðburðum á Bransadögum RIFF
  • Lokafundur fyrir endurgjöf frá jafningjum og hópumræður
  • Kvöldviðburðir og óformleg tengslamyndun

FERÐALÖG OG GISTING: Þátttakendur sjá sjálfir um ferðatilhögun. Styrkur sem nemur €400 er í boði fyrir þátttakendur sem koma erlendis frá.

Hverjir ættu að sækja um?

Við leitum að handritshöfundum og leikstjórum sem:

Eru að þróa sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd (leikin, heimildarmynd eða blandað verk)

Eru með verkefni á vinnslustigi eða lengra komið — meira en bara hugmynd

Eru búsett á Norðurlöndum: í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð, á Álandseyjum, Færeyjum eða Grænlandi

Tengjast norðlægum sjónarmiðum eða frásagnarhefðum frumbyggja — hvort sem það er í gegnum bakgrunn, efnistök eða hvort tveggja

Eru tilbúin að taka endurgjöf, jafninganám og leiðsögn alvarlega

Vilja byggja upp varanleg fagtengsl í norrænum kvikmyndaheimi

Allt að 8 þátttakendur eru valdir á hverju ári í gegnum opið umsóknarferli.

Leiðbeinandi

Dagur Kári

Dagur Kári er íslenskur leikstjóri og handritshöfundur, fæddur í Frakklandi af íslenskum foreldrum. Hann nam við Danska kvikmyndaskólann og útskrifaðist árið 1999 með stuttmyndina Lost Weekend sem hlaut fjölda verðlauna víða um heim. Fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd, Nói albínói (2003), var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Rotterdam þar sem hún vakti mikla athygli og hlaut fjölmörg verðlaun auk alþjóðlegrar dreifingar. Næsta mynd hans, Dark Horse (2005), var sýnd í Un Certain Regard-flokki Cannes-hátíðarinnar. Síðar leikstýrði hann meðal annars The Good Heart (2009), sem var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto, og Fúsa (2015), sem var sýnd á Berlinale. Á árunum 2013–2017 var Dagur Kári svo yfirmaður leikstjórnardeildar Danska kvikmyndaskólans.

Sem þátttakandi færð þú:

Skipulegt dramatúrgískt stuðningsferli á tveimur stigum

Leiðsögn frá norrænum og alþjóðlegum fagmönnum í kvikmyndagreininni

Jafningjaendurgjöf innan hóps norðænna radda sem mynda varanleg tengsl

Þátttaka í Bransadögum RIFF (pallborð, tengslamyndun, bransafundir)

Skrásetning á þínu vinnsluferli þátttakendaneti

Viðurkenningarskjal sem staðfestir þátttöku

Ferðastyrkur að upphæð €400 (fyrir erlenda þátttakendur)

Samstarfsaðilar & bakhjarlar

Arctic Script Lab er skipulagt og framkvæmt af Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) í samstarfi með Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Nuuk (Grænland).

Co-funded by the Nordic Culture Fund.

riff isl black
NIFF Logo Red
Nordisk Kulturfond Black RGB

Í þessu verkefni eru Norðurslóðir skilgreindar sem raunverulegt, menningarlegt og umhverfislegt samhengi sem mótar frásagnirnar sjálfar, á meðan Norðurlönd gegna hlutverki samstarfsramma,  þess vettvangs þar sem þessar sögur eru þróaðar og studdar þvert á landamæri.

Opið kall 2026