
Aðsóknin toppuð á K2
Háskólabíó, heimili hátíðarinnar, var miðpunktur viðburðanna. Áhuginn á opnunarmyndinni, Hinsta ferðin á K2 (The Last First: Winter K2), var svo mikill að tveir salir fylltust á opnunarkvöldinu. Þessi dramatíska frásögn af vetrarleiðangri íslenska fjallgöngumannsins Johns Snorra á K2 var aftur á dagskrá á lokakvöldinu, þegar aukasýning var færð í Hátíðarsal vegna gífurlegrar eftirspurnar. Halla, dóttir Johns Snorra, flutti ávarp til áhorfenda fyrir sýningu. Að henni lokinni gafst gestum tækifæri til að ígrunda efni myndarinnar í umræðum með Tómasi Guðbjartssyni, Vilborgu Örnu Gissurardóttur og Haraldi Erni Ólafssyni.
Skarsgård tryllir lýðinn
Meðal eftirminnilegustu stunda hátíðarinnar var sýning á Wicker að viðstöddum Alexander Skarsgård, en ljóst er að leikarinn á marga aðdáendur hér á landi og allt ætlaði um koll að keyra þegar hann gekk á svið. Uppselt var í öll 970 sæti Hátíðarsalar Háskólabíós, þar sem Skarsgård tók við heiðursverðlaunum RIFF fyrir framúrskarandi listfengi og ræddi við rithöfundinn Andra Snæ Magnason að sýningu lokinni.


Hasarinn heiðraður
Á hátíðinni var einnig heiðrað fólk sem mótar kvikmyndalistina beggja vegna myndavélarinnar. Leikstjórinn David Leitch og framleiðandinn Kelly McCormick tóku við heiðursverðlaunum í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur og ræddu listina að skapa hasarmyndir í meistaraspjalli með kvikmyndaklipparanum Elísabetu Ronaldsdóttur en hún er samstarfskona þeirra til margra ára. Framleiðandinn Sigurjón Sighvatsson var óvænt heiðraður fyrir ævistarf sitt á tvöfaldri sýningu í tilefni af 40 ára afmæli Propaganda Films. Þar voru sýndir upphafsþáttur Twin Peaks og glæný, endurgerð 4K-útgáfa af Wild at Heart, sem hlaut Gullpálmann í Cannes árið 1990.
Sviðsljósinu beint að Portúgal
Portúgal, sem var í fókus á hátíðinni í ár, setti sterkan svip á bæði kvikmynda- og tónlistardagskrána. Heiðursgesturinn Maria de Medeiros var viðstödd sýningar á Pulp Fiction og eigin kvikmynd, Capitães de Abril (Aprílbylting), og tók við heiðursverðlaunum RIFF fyrir framúrskarandi listfengi. Hátíðarhöldin náðu út fyrir bíótjaldið þegar Fado Bicha og Hinsegin kórinn færðu dagskránni tónlist, fjölbreytileika og samkennd.


Nýjar raddir fá sviðið á RIFF
Þótt þessir þekktu gestir settu svip sinn á hátíðina var að vanda lögð rík áhersla á að kynna nýjar raddir á RIFF. Í Vitrunum kepptu upprennandi kvikmyndagerðarmenn um Gullna lundann, en heimildamyndir, alþjóðlegar stuttmyndir, íslenskar kvikmyndir og dagskrá Gullna eggsins gáfu enn fleiri tækifæri til nýrra uppgötvana. Víða í dagskránni urðu kvikmyndirnar kveikja að umræðum um heiminn utan bíósalarins: allt frá konum í jarðhitageiranum og breytingum á Vatnajökli til álags af völdum ferðaþjónustu og æskuára í skugga átaka.
Geysivinsælir Bransadagar
Á Bransadögum hittist kvikmyndagerðarfólk og aðrir sérfræðingar úr greininni í pallborðsumræðum, meistaraspjalli og samtölum. Meðal gesta voru framleiðandinn Erik Hemmendorff, Rémi Burah frá ARTE France Cinéma og Susan Wendt frá TrustNordisk, sem miðluðu reynslu sinni og sýn á þróun kvikmyndaverkefna, fjármögnun þeirra og leiðina til áhorfenda.


Gleymum ekki að leika okkur
Leikgleðin fékk líka sitt rými. Náttfatabíó með Paddington naut svo mikilla vinsælda að aukasýningu var bætt við, en á uppseldri Bókabíósýningu á Pride and Prejudice komu aðdáendur Jane Austen saman og nutu bókmennta, samræðna og freyðivíns. UngRIFF bauð yngri gestum upp á kvikmyndir og skapandi viðfangsefni, og hellabíósýning á Raiders of the Lost Ark færði ævintýri hvíta tjaldsins í einstakt umhverfi.
Við færum áhorfendum, kvikmyndagerðarfólki, gestum, sjálfboðaliðum, starfsnemum, starfsfólki, samstarfsaðilum og stuðningsfólki okkar innilegustu þakkir fyrir að gera RIFF 2026 að veruleika. Forvitni þeirra, örlæti og eldmóður settu ómissandi og ógleymanlegar svip sinn á þessa ellefu daga.
Sýningunum er lokið, en samtölin halda áfram og minningarnar lifa.
Sjáumst á RIFF 2027,
dagana 30.sept–10.okt.




