0%
Riff Logo

Sigurjón Sighvatsson fékk heiðursverðlaun RIFF fyrir æviframlag sitt

Afhendingin fór fram í tengslum við sérstaka tvöfalda sýningu á verkum Davids Lynch, sem haldin var í tilefni af 40 ára afmæli Propaganda Films.

RIFF kom kvikmyndaframleiðandanum Sigurjóni Sighvatssyni skemmtilega á óvart þegar honum voru veitt heiðursverðlaun hátíðarinnar fyrir æviframlag til kvikmyndalistarinnar. Afhendingin fór fram í tengslum við sérstaka tvöfalda sýningu á verkum Davids Lynch, sem haldin var í tilefni af 40 ára afmæli Propaganda Films.

Heiðursverðlaunahafar RIFF eru jafnan kynntir með margra vikna fyrirvara, en að þessu sinni var ákveðið að halda verðlaunaafhendingunni leyndri og koma Sigurjóni á óvart. Það tókst svo sannarlega og kunni framleiðandinn vel að meta þessa óvæntu viðurkenningu á löngum og farsælum ferli sínum.

Sigurjón var viðstaddur sýningu á upphafsþætti Twin Peaks og nýrri 4K-endurgerð Wild at Heart, tveimur tímamótaverkum úr samstarfi hans við leikstjórann David Lynch. Kvöldið varð þannig bæði hátíð kvikmyndalistarinnar og persónulegur heiðursvottur til eins áhrifamesta íslenska kvikmyndaframleiðandans á alþjóðavettvangi.

Fjörtíu ár frá stofnun Propaganda Films

Árið 2026 eru fjörutíu ár liðin frá því Sigurjón stofnaði Propaganda Films ásamt fleirum. Fyrirtækið átti stóran þátt í að móta myndmál kvikmynda, sjónvarps, auglýsinga og tónlistarmyndbanda og skapaði framsæknu listafólki svigrúm til að fylgja eigin sýn.

Samstarf Sigurjóns og Davids Lynch er skýrt dæmi um þá listrænu djörfung sem einkenndi fyrirtækið. Lynch var bæði vinur og tíður samstarfsmaður Sigurjóns og verkin tvö sem sýnd voru á RIFF í gærkvöldi bera vitni um sköpunarkraftinn í samstarfi þeirra.

Tvö verk sem mörkuðu tímamót

Upphafsþáttur Twin Peaks og kvikmyndin Wild at Heart komu fyrst fyrir augu áhorfenda með aðeins fárra vikna millibili vorið 1990. Bæði verkin höfðu víðtæk áhrif og skipa sérstakan sess í höfundarverki Lynch.

Með Twin Peaks opnaði Lynch nýjan kafla í sjónvarpssögunni. Þættirnir heilluðu milljónir áhorfenda með blöndu af ráðgátu, sérkennilegum persónum, húmor og óhugnaði og sýndu að sjónvarp gæti verið vettvangur jafn persónulegrar og metnaðarfullrar frásagnarlistar og kvikmyndir.

Wild at Heart, sem hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes, sameinar vegamynd, ástarsögu og suðurríkjagotneskju með biksvörtum húmor. Á sýningu RIFF gafst gestum tækifæri til að upplifa myndina í nýrri 4K-endurgerð að Sigurjóni viðstöddum.

250926dl 31
Double Feature: Twin Peaks and Wild at Heart + Sigurjón Sighvatsson

Viðurkenning á æviframlagi til kvikmyndalistarinnar

Með heiðursverðlaununum þakkar Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík Sigurjóni Sighvatssyni fyrir æviframlag hans til kvikmyndalistarinnar. Ferill hans sýnir hversu mikilvægt hlutverk framleiðandans er við að gera djarfar hugmyndir að veruleika og skapa verk sem lifa með áhorfendum áratugum saman.

Share this post

VERTU Í BANDI

Tengdar færslur

Verðlaunamyndir RIFF 2026!

La Gradiva Gyllti Lundinn / The Golden Puffin Leikstjóri: Marine Atlan Umsögn dómnefndar:Fyrir einstaka tilfinningagreind sína og hæfileikann til að fanga ósagða strauma í samskiptum fólks veitir dómnefndin verðlaun fyrir verk sem

Read More »
DAGSKRÁ

Karfa

Engar vörur í körfunni.
0