0%
Riff Logo

RIFF DIARY 2026

Dagur 1

Það var mikið um dýrðir og margt um manninn í Háskólabíói í gærkvöld þegar Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík var sett í 23. sinn við hátíðlega athöfn. Slík var eftirspurnin eftir miðum á opnunarmynd RIFF í ár, The Last First: Winter K2, að uppselt var bæði í sal 1 og sal 2 í Háskólabíó og var myndin sýnd samtímis í báðum sölum.

Dagur 2

Framleiðandinn Sigurjón Sighvatsson var óvænt heiðraður á RIFF á föstudagskvöld þegar honum voru veitt heiðursverðlaun hátíðarinnar fyrir æviframlag til kvikmyndalistarinnar. Afhendingin fór fram við sérstaka tvennusýningu á verkum Davids Lynch í tilefni af 40 ára afmæli Propaganda Films. Sýndir voru upphafsþáttur Twin Peaks og Wild at Heart í nýrri 4K endurvinnslu að Sigurjóni viðstöddum, sem kunni vel að meta þessa óvæntu viðurkenningu á löngum og farsælum ferli.

Dagur 3

Leikstjórinn David Leitch og framleiðandinn Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listfengi við móttöku í Hafnarhúsi í gær. Rúnar Freyr Gíslason, formaður menningarráðs Reykjavíkur, afhenti verðlaunin. Þau tóku jafnframt þátt í meistaraspjallinu „Hjartað í hasarnum“ ásamt klipparanum Elísabetu Ronaldsdóttur, þar sem þau veittu gestum innsýn í kvikmyndagerð og ræddu hvernig persónur, tilfinningar og samvinna móta bíómyndir þar sem hasar og frásagnarlist haldast í hendur.

Dagur 4

Það var sannkölluð náttfatastemning í Háskólabíói í morgun þegar RIFF og UngRIFF buðu fjölskyldum á Paddington. Uppselt var í sal 1 og vegna mikillar eftirspurnar var aukasýningu bætt við. Börn mættu í náttfötum með uppáhaldsbangsana sína og nutu bíóferðar með fjölskyldunni. Leikarinn Siggi Þór var kynnir viðburðarins, þar sem hinn ástsæli bangsi frá Perú var í aðalhlutverki í hlýlegri og bráðskemmtilegri kvikmynd sem höfðar til allra aldurshópa.

Dagur 5

Uppselt var í sal 1 í Háskólabíó í gærkvöld þegar RIFF og Aðdáendaklúbbur Jane Austen á Íslandi stóðu fyrir Bókabíósýningu þar sem gestum bauðst að mæta á sérstaka sýningu á „Duma i uprzedzenie”. Á undan myndinni ræddu Kristín Linda Jónsdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir um skáldsöguna, kvikmyndina og tímalaust aðdráttarafl Jane Austen. Samtalinu fylgdu freyðivín og hlýleg stemning á undan sýningu á verðlaunamynd Joe Wrights frá 2005 með Keiru Knightley í aðalhlutverki.

Dagur 6

Það var hátíðarstemning í Háskólabíói í gærkvöld þegar Alexander Skarsgård var viðstaddur sýningu á Wicker á RIFF. Uppselt var í Hátíðarsalinn þegar leikarinn hlaut heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listfengi og ræddi við gesti að sýningu lokinni undir stjórn Andra Snæs Magnasonar. Kvöldið varð eftirminnilegur hápunktur Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík og einstakt tækifæri fyrir bíóunnendur til að hitta stjörnuna.

Dagur 7

Meistaraspjall við framleiðandann Erik Hemmendorff var meðal hápunkta dagskrár RIFF miðvikudaginn 30. september. Þar gafst gestum tækifæri til að kynnast sjónarhorni kvikmyndaframleiðanda og starfinu að baki myndunum. Nýir kvikmyndagerðarmenn voru í sviðsljósinu við sýningu stuttmynda eftir þátttakendur í RIFF Talent Lab í ár sem keppa um Gullna eggið. Að sýningu lokinni tók kvikmyndagerðarfólkið við spurningum úr sal. Dagurinn tengdi þannig saman reynslu og nýsköpun og bauð gestum að komast nær fólkinu á bak við kvikmyndirnar.

Dagur 8

Portúgal var í sviðsljósinu á RIFF fimmtudaginn 1. október þegar kvikmyndalist og tónlist mættust í Háskólabíói. Maria de Medeiros hlaut heiðursverðlaun hátíðarinnar fyrir framúrskarandi listfengi, afhent af Hrönn Marinósdóttur og Frédéric Boyer. Fulltrúum Portúgals voru færðar þakkir fyrir samstarfið um áhersluland hátíðarinnar áður en tónlistin tók við. Fado Bicha og Hinsegin kórinn settu síðan svip sinn á kvöldið með litríkum tónleikum þar sem sköpunarkraftur og fjölbreytileiki réðu ríkjum.

Dagur 9

Þéttsetinn salur tók á móti Mariu de Medeiros við sýningu á Pulp Fiction föstudaginn 2. október. Leikkonan ávarpaði gesti og í hléi sáu samstarfsaðilar RIFF um að afhenda hamborgara af einstakri röggsemi. Kvikmyndagerðarmaðurinn João Pedro Rodrigues, formaður dómnefndar Vitrana, var einnig í sviðsljósinu með sýningu á Villuljósi og meistaraspjalli. Gestir fengu tækifæri til að kynnast tveimur ólíkum röddum portúgalskrar kvikmyndalistar á eftirminnilegum degi á RIFF.

Dagur 10

Verðlaunahátíð RIFF fór fram laugardaginn 3. október þegar framúrskarandi kvikmyndagerð var heiðruð. La Gradiva eftir Marine Atlan hlaut Gullna lundann en If Luck Will Come eftir Camille Bildsøe sigraði í flokknum Önnur framtíð. Gullna eggið hlaut Left Behind eftir Yannis Karpouzis og Nothing Happens After Your Absence eftir Ibrahim Omar var valin besta alþjóðlega stuttmyndin. Verðlaunahafar endurspegluðu breiddina og sköpunarkraftinn í dagskrá hátíðarinnar í ár.

Dagur 11

RIFF 2026 lauk sunnudaginn 4. október með þéttsetinni sýningu á Hinstu ferðinni á K2 í Hátíðarsal Háskólabíós, annan daginn í röð. Halla, dóttir Johns Snorra, ávarpaði gesti fyrir sýningu og að henni lokinni tóku háfjallaklifrararnir Haraldur Örn Ólafsson og Vilborg Arna Gissurardóttir þátt í spurninga- og svarastund. Gestum gafst einnig annað tækifæri til að sjá verðlaunamyndir frá kvöldinu áður og nokkrar af vinsælustu myndum hátíðarinnar í ár. Þannig lauk ellefu daga kvikmyndaveislu þar sem fjölbreyttar sögur, eftirminnilegir gestir og samtöl færðu áhorfendur nær kvikmyndalistinni.

PARTNERZY

Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
Partner Logo
PROGRAM

Karfa

Brak produktów w koszyku.
0