0%
Riff Logo

Dagur 7 á RIFF 2026

Dagur 7 á RIFF býður upp á stór nöfn og frábærar kvikmyndir! Amanda Kernell mætir í Spurt & svarað eftir sýningu á verðlaunamyndinni Charter, framleiðandinn Erik Hemmendorff heldur meistaraspjall og Club Kid verður sýnd. Fjölbreytt dagskrá fyrir alla sem elska gott bíó.
Charter

Charter + Q&A

Kino Uniwersyteckie
30. september, kl 17:00 (5:00pm)

Reżyser: Amanda Kernell 

Sænsk-samíski leikstjórinn Amanda Kernell, sem RIFF 2026 heiðrar sem upprennandi meistara, tekur þátt í Spurt & svarað eftir sýninguna. Hún kemur á RIFF í kjölfar verðlauna í Toronto og San Sebastián.

Alice er fráskilin móðir tveggja barna, sem hefur ekki fengið að hitta þau í tvo mánuði á meðan beðið er forsjárdóms. Þegar sonur hennar hringir grátandi um miðja nótt tekur hún örvæntingarfulla ákvörðun: hún tekur börnin ólöglega með sér í leiguflugi til Kanaríeyja, í þeirri von að þau nái aftur tengslum og að hún geti snúið við stöðunni sér í hag.

Kurs mistrzowski
Building Plattform: Erik Hemmendorff on Producing with Ruben Östlund

Kino Uniwersyteckie

30. september, kl 19:20 (7:20pm)

Hvert er raunverulegt hlutverk framleiðandans þegar skapandi samstarf stendur árum saman og verkefnin verða sífellt umfangsmeiri? Erik Hemmendorff ræðir framleiðslu sem skapandi starfsgrein með hliðsjón af langvarandi samstarfi sínu við leikstjórann Ruben Östlund og þróun sífellt metnaðarfyllri alþjóðlegra kvikmyndaverkefna. Hann fjallar meðal annars um þróun hugmynda, hvernig framleiðandi ögrar sýn leikstjórans og verndar hana, fjármagnar áhættusöm verkefni, byggir upp alþjóðlegt samstarf, mótar leikaraval og framleiðslustefnu og viðheldur farsælu samstarfi við gerð afar ólíkra mynda. Í stað þess að beina sjónum eingöngu að verkum eins leikstjóra kannar meistaraspjallið hlutverk framleiðandans sem virks, skapandi samstarfsaðila, og þá möguleika sem langvarandi samstarf getur skapað.

Erik Hemmendorff
full steam ahead still hi res 246 3087211 fullsteamahead still 17

Full Steam Ahead + Q&A

Kino Uniwersyteckie
30. september, kl 19:30 (7:30pm)

Leikstjórar: Susan Muska, Greta Olafsdottir

Leikstjórar myndarinnar taka þátt í Spurt og svarað.

Myndin fjallar um konur af mismunandi kynslóðum sem starfa sem verkfræðingar og vísindamenn í jarðhitaiðnaðinum, baráttu þeirra fyrir kynjajafnrétti og stöðu þeirra í atvinnugrein þar sem karlar hafa lengi verið í ríkjandi meirihluta ásamt þeim breytingum sem orðið hafa á liðnum árum.

Club Kid

Kino Uniwersyteckie
30. september, kl 21:30 (9:30pm)

Leikstjóri: Jordan Firstman

Club Kid er margverðlaunuð mynd sem fjallar um Peter, harðan partýaðdáanda og næturklúbbaskemmtikraft í New York sem lifir óábyrgu og hedonísku lífi. Skyndilega uppgötvar hann að hann á tíu ára son sem hann vissi ekki af. Þegar hann neyðist til að taka ábyrgð á drengnum byrjar lífið smám saman að breytast. Myndin blandar saman gríni, næturlífi, tilfinningum og sögu um óvænt föðurhlutverk og þroska.

club kid still hi res 0 3078795 d005 v3 1567954
queen at sea still hi res 23 2977066 1 queenatsea seafaring llc

Queen at Sea

Kino Uniwersyteckie
30. september, kl 17:00 (5:00pm)

Leikstjóri: Lance Hammer

Amanda og Martin, stjúpfaðir hennar, standa frammi fyrir siðferðislegri spurningu og eru ekki á eitt sátt um svarið. Móðir Amöndu, Leslie, þjáist að heilabilun og verður sífellt meira ósjálfbjarga. Á barn, maki eða dvalarheimili að taka af ákvarðanir fyrir sjúklinginn hér eftir? Eftir því stjúpfeðginin standa frammi fyrir sífellt erfiðari ákvörðunum missa þau jafnt og þétt tökin á afleiðingunum. Juliette Binoche fer með aðalhlutverkið.

Red Rocks

Kino Uniwersyteckie
30. september, kl 19:30 (7:30pm)

Leikstjóri: Bruno Dumont

Á frönsku Rivíerunni etja tveir barnahópar kappi í hættulegum klettastökkum. Géo, sem er vart orðinn fimm ára, uppgötvar á einu sumri heim þar sem vinátta fléttast saman við samkeppni og fyrstu tilfinningar hjartans vakna í töfrandi landslagi Miðjarðarhafsins.

red rocks
riff talks

Rozmowy RIFF

Kino Uniwersyteckie
30. september, kl 17:00 (5:00pm)

Zainspirowany formatem wykładów TED Talk, cykl ten zawiera krótkie prezentacje wschodzących twórców filmowych i młodych profesjonalistów kreatywnych. Każde wystąpienie prezentuje osobiste spojrzenie na teraźniejszość i przyszłość kina. RIFF Talks oferują wgląd i inspirację zarówno studentom, początkującym artystom, jak i doświadczonym gościom.

I Only Rest in the Storm

Kino Uniwersyteckie
30. september, kl. 19:00 (7:00pm)

Sérgio er kominn til stórborgar í Gíneu-Bissá til starfa fyrir hönd góðgerðarfélags við gatnagerð sem á að tengja eyðimerkur og skóga. Hann fær hins vegar mun flóknara verkefni upp í hendurnar þegar hann flækist inn í verulega flókið samband sem þau Diara og Gui eiga í.

I ONLY REST IN THE STORM
rehearsals for a revolution

Rehearsals for a Revolution

Kino Uniwersyteckie
30. september, kl 21:15 (9:15pm)

Leikstjóri: Pegah Ahangarani

Í fimm portrettmyndum af ættingjum sínum og lærimeisturum rekur Pegah Ahangarani ævi sína og rúmlega fjörutíu ára sögu Írans. Með persónulegum ljósmyndasöfnum, heimamyndböndum, upptökum frá mótmælum, dagblöðum og hljóðupptökum fléttar hún saman persónulegar og sameiginlegar minningar, allt frá byltingunni 1979 til stríðsins 2026 og dregur þannig upp mynd af landi sem mótast hefur af kúgun og von um nýja byltingu.

Valin Besta heimildarmyndin á Cannes!

Gulleggið

Kino Uniwersyteckie
30. september, kl. 21:40 (9:40pm)

Myndirnar sem keppa um Gulleggið eru eftir unga leikstjóra sem eru þátttakendur í kvikmyndasmiðjunni RIFF Talent Labs.

a heartwarming comedy about depression lunacy and unfulfilled dreams
christiania

Christiania

Kino Uniwersyteckie 
30. september, kl 17:30 (5:30pm)

Leikstjóri: Karl Friis Forchhammer

Með áhrifamiklum og átakanlegum sögum sem spanna meira en 50 ár kannar CHRISTIANIA hvernig samfélag, sem byggt er á frelsi, samstöðu og andófi, heldur áfram að berjast fyrir rétti sínum til að vera til – á eigin forsendum.

Local Stories, Global Screens: Can Small Film Industries Break Through?

RÚV
30. september, kl 16:00 (4:00pm)

Streaming was supposed to make the world smaller, opening international audiences to films and series from less dominant languages and smaller production ecosystems. But has the playing field really become more equal? Taking Portugal and Iceland as starting points, this conversation looks at what helps local stories travel: language, financing, public broadcasters, platforms, cultural identity and the international image of a country. Portuguese producer and showrunner Edgar Medina, in conversation with Einar Logi Vignisson of RÚV, will explore whether international visibility depends on becoming more universally accessible or, paradoxically, on becoming even more specific, local and culturally distinctive. They will also ask what role public broadcasters play in sustaining local industries when global platforms remain difficult to access. The session will also include a screening of Edgar Medina’s short film Fallen.

Udostępnij

NEWSLETTER

Tengdar færslur

Verðlaunamyndir RIFF 2026!

La Gradiva Gyllti Lundinn / The Golden Puffin Leikstjóri: Marine Atlan Umsögn dómnefndar:Fyrir einstaka tilfinningagreind sína og hæfileikann til að fanga ósagða strauma í samskiptum fólks veitir dómnefndin verðlaun fyrir verk sem

Read More »
PROGRAM

Karfa

Brak produktów w koszyku.
0