Riff Logo
Riff Logo
Riff Logo
Untitled design 23
Minning: Giorgio Gosetti (1955–2026)

Harmur er kveðinn að starfsfólki RYF en nýlega bárust okkur fréttir af fráfalli Giorgio Gosetti, sem gegndi starfi dagskrárstjóra RIFF á árunum 2011–2019. Á þeim tíma gegndi Gosetti lykilhlutverki í mótun listrænnar stefnu hátíðarinnar og færði áhorfendum í Reykjavík framúrskarandi kvikmyndir og kvikmyndagerðarfólk víðs vegar að úr heiminum og tók þátt í alls kyns umræðum um kvikmyndir  við áhorfendur sem skildu mikið eftir.

26186305899 984e53d218 o scaled

Gosetti var virtur kvikmyndagagnrýnandi, blaðamaður og dagskrárgerðarmaður sem um áratugaskeið var áberandi í alþjóðlegu kvikmyndahátíðasamfélagi. Hann var stofnandi og lengi vel stjórnandi Giornate degli Autori (e. Venice Days), sjálfstæðrar hliðarhátíðar innan Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum, sem helguð er höfundamiðuðu kvikmyndaverki og nýjum röddum í kvikmyndagerð. Í störfum sínum sem dagskrárgerðarmaður, rithöfundur og menningarfrömuður lagði hann ríka áherslu á að styðja við djarfa og frumlega kvikmyndagerð og kynna áhorfendum nýja leikstjóra og sjónarhorn víðs vegar að úr heiminum.

Hjá RIFF skildi Gosetti eftir sig varanleg spor með djúpri þekkingu sinni á kvikmyndalistinni, forvitni og óeigingjörnu framlagi. Ástríða hans fyrir kvikmyndum og óbilandi stuðningur við ungt hæfileikafólk mótaði dagskrá hátíðarinnar í tæpan áratug.

22953023022 633db897bd o scaled

Við sendum fjölskyldu hans, vinum og samstarfsfólki okkar í alþjóðlegu kvikmyndasamfélagi okkar innilegustu samúðarkveðjur. Framlag hans til kvikmyndalistarinnar – og til Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík– verður minnst hér á skrifstofu RIFF um ókomna tíð.