Riff Logo
Riff Logo
Riff Logo
621805825 1469769108055852 8520669925408552572 n e1770827353179
Uppselt í ógleymanlegt sundbíó RIFF á Vetrarhátíð

Það var brosandi hópur af bíógestum sem sá hina sígildu gamanmynd When Harry Met Sally… í Sundhöll Hafnarfjarðar sl. fimmtudag. Sundbíóið markaði upphafi Vetrarhátíðar 2026 í Hafnarfirði og vakti verðskuldaða athygli, bæði meðal almennings og í fjölmiðlum en uppselt var á viðburðinn.

Pool cinema screening at RIFF

Kvikmyndasýningar í sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu hafa verið fastur liður í starfsemi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík nánast frá upphafi enda er sundlaugamenninginn ómissandi þáttur í íslensku þjóðlífi og íslenskri menningu. Að sama skapi hafa Íslendingar alla tíð verið mikið áhugafólk um kvikmyndir og því upplagt að flétta þessar tvær hefðir saman með þessum skemmtilega hætti.

Margar eftirminnlegar kvikmyndir hafa verið gerðar enn eftirminnilegri með upplifuninni af því að horfa á þær í einhverri af sundlaugum Reykjavíkur og nágrennis. Meðal mynda sem sýndar hafa verið við góðar undirtektir eru Some Like It Hot, The NeverEnding Story, The Life Aquatic With Steve Zissou, Życie Pi, Jaws I The Truman Show.

Auk sýningar á myndinni When Harry Met Sally… skartaði sundbíóið lifandi djasstónlist í anda myndarinnar í flutningi djasstríóins Búbblubandið, leikararnir Bjarni Kristbjörnsson og Gúa Margrét Bjarnadóttir brugðu sér í hlutverk Harry og Sally og voru á sveimi um hin einstöku húsakynni Sundhallar Hafnarfjarðar og dansarar stigu þokkafull spor á sundlaugarbakkanum. Allt spilaði þetta saman til að skapa einstaka stemningu sem skilaði sér svo sannarlega til áhorfenda.

Jazz band at RIFF pool cinema

RIFF þakkar Markaðsskrifstofu Hafnarfjarðar og starfsfólki Sundhallarinnar fyrir frábært samstarf, um leið og Luxor er þakkað fyrir frábæra tæknistjórnun að vanda. Þá þökkum við Góu og Ölgerðinni fyrir að sjá bíógestum fyrir þakklátri hressingu meðan á sýningu stóð. Síðast en ekki síst þökkum við áhorfendum sem fylltu húsið og sköpuðu með okkur ógleymanlega bíóupplifun.

Við erum strax farin að leggja drög að næsta sérviðburði – fylgist með!

pool cinema