Hönnuður RIFF 2026: Alexander Le Sage de Fontenay

Það er árlegur stórviðburður í starfsemi RIFF þegar nýtt útlit hátíðarinnar er kynnt, meðal annars með nýrri ásýnd heimasíðunnar, riff.is. Við kynnum til leiks hönnuð útlits RIFF fyrir árið 2026, Alexander Le Sage de Fontenay.

alexjean

Einn af vorboðunum ljúfu hér á landi er að Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fær íslenskan hönnuð til að spreyta sig á þessu viðamikla verkefni sem nær, að heita má, til allrar sjónrænnar framsetningar RIFF ár hvert. Í tilefni þess að ásýnd RIFF 2026 liggur nú fyrir, eins og meðal annars má sjá á heimasíðunni, fengum við Alexander í stutt spjall.

Viðeigandi verkefni fyrir kvikmyndaunnanda

Alexander útskrifaðist frá LHÍ árið 2021 og hefur meðal annars starfað á auglýsingastofunni Brandenburg. Undanfarin misseri hefur hann starfað sjálfstætt og það er í stúdíói hans í Hlemmur.Haus sem hlutirnir gerast.

„Ég er mikill kvikmyndaunnandi og með eitt ár í kvikmyndafræði undir beltinu, ásamt því að ég útskrifaðist með gráðu í listfræði“ segir Alexander þegar við hittum hann ístúdíóinu. „Áður en ég byrjaði að pæla í grafískri hönnun var ég farinn að pæla í allskonar list og hönnun – og kvikmyndum, og þær hafa alltaf veitt mér mikla hamingju. Þetta verkefni mitt fyrir RIFF finnst mér því mjög rökrétt og viðeigandi,“ bætir hann við.

Tilvísanir í heim kvikmyndanna

„Innblásturinn að útlitinu er kvikmyndasagan, kvikmyndagerð, kvikmyndaáhorf og jafnvel kvikmyndabrellur. Ég horfði til þess við hönnunina; bíókúltúr, að fara í bíó og að horfa á bíómyndir. Ég vildi svolítið beisla þær tilfinningar og ná að túlka þær á sjónrænan hátt.“ Óhætt er að segja að ýmsar táknmyndir og tilvísanir í heim kvikmyndanna leynist í hönnun Alexanders, og það er gesta RIFF – og fólks á förnum vegi þegar þar að kemur – að finna merkingarnar í hönnunina með því að rýna í verkin og ráða í táknin.

Það sem helst hefur veitt Alexander innblástur upp á síðkastið er sjálfstætt starfandi listafólk, útskýrir hann – ekki síst af því nú er hann orðinn sjálfstætt starfandi grafískur hönnuður. „Allt þetta frábæra listafólk, myndlistarmenn eins og Andy Warhol, grafískir hönnuðir eins og Lance Wyman, og stúdíóið sem ég vann hjá í starfsnáminu í New York, Karlssonwilker. Þeirra drifkraftur gefur mér drifkraft.

Leikgleðin og sköpunarferlið

„Það er alltaf svolítið stutt í leikgleðina hjá mér, og ég reyni að hafa hlutina alltaf svolítið leikræna, líflega og litríka þegar kemur að hönnuninni. Ég byrja oftast á því að skrifa hjá mér allskonar hugmyndir, tæmi bara heilann alveg, og svo nota ég útilokunaraðferðina og finn þannig út hvað virkar,“ segir Alexander aðspurður um sköpunarferlið hjá honum. „Þegar maður hefur verið að grafa eftir einhverju þá kemur að því að maður finnur eitthvað sem meikar sens, og það er náttúrulega langskemmtilegasti parturinn af vinnunni,“ bætir hann við.

Í bíó allan daginn á RIFF

Alexander hefur mætt sem gestur á RIFF í mörg ár, allt frá unglingsárunum, og má því með réttu kallast sannur RIFFari. „Ég á mjög góðar minningar frá því að eyða heilu dögunum í bíó. Það gat maður gert, þökk sé RIFF, bara fengið sér passa og verið í bíó allan daginn. Þegar mér var boðið að hanna útlitið í ár var ég geggjað til í það. Þetta var verkefni sem ég var mjög svo til í að taka að mér, að vera listamaður hátíðarinnar í ár. Ég sagði auðvitað já og það er bara búið að vera mjög gaman. Ég hlakka mjög til framhaldsins, að sjá hönnunina birtast úti um allan bæ, smátt og smátt.“  

BrandLaunchPost 2026 1
BrandLaunchPost 2026 2
BrandLaunchPost 2026 4
BrandLaunchPost 2026 3
BrandLaunchPost 2026 5

Hægt er að sjá meira af viðtalinu og hönnuninni á Instagram