SEARCH

Search
Close this search box.

Guðmundur Ingi með frumsýningu á RIFF

,,Það hafa allir eitthvað að fela“

Viðtal við Guðmund Inga Þorvaldsson um Allra augu á mér

„Þetta er mynd um breyskleika mannsins og er auðvitað til vitnis um að það hafa allir eitthvað að fela,“ segir Guðmundur Ingi Þorvaldsson, framleiðandi kvikmyndarinnar Allra augu á mér (e. All Eyes on Me) sem er á meðal 82ja mynda í fullri lengd sem prýða Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík í ár, en þær koma frá 65 þjóðlöndum, svo eitthvað er nú úrvalið á RIFF að þessu sinni sem hefst í Háskólabíói 26. september og stendur yfir til 6. október.

Mynd Guðmundar Inga í leikstjórn Kanadamannsins Pascal Payant er hádramatísk fjölskyldusaga sem er heimsfrumsýnd á RIFF og segir af Gunnari (leikin af Guðmundi Inga sjálfum) sem kýs fremur vinskap hrossa en fólks eftir að hafa misst konu sína og son af slysförum. En þegar hann hefur sig loksins á slysstað við Krýsuvíkurbjarg, hittir hann fyrir pólska konu sem hefur flúið á náðir Íslands til að komast í þungunarrof, þvert á vilja barnsföðurins, svo þau eru bæði á heldur óvenjulegri vegferð í lífinu.

… varð að koma aftur til Íslands …

Þetta er fyrsta bíómyndin sem Guðmundur Ingi framleiðir í fullri lengd, en sú tíunda úr smiðju Pascal Payant, en leiðir þeirra tveggja lágu saman þegar Guðmundur Ingi lék í öðru verki Pascal, April Skies sem segir frá því hvaða áhrif það hefur í þremur löndum þegar einn og sami maðurinn deyr. „Við tökurnar hér á Íslandi fyrir þá mynd sagði Pascal si sona að hann yrði að koma hingað aftur – og það gekk eftir við vinnsluna á þessari nýju mynd okkar,“ rifjar Guðmundur Ingi upp og segir Pascal vera sannan galdramann í faginu, en hann semji ekki einasa handrit sín og leikstýri, heldur klippi hann líka sjálfur myndirnar sínar. „Hann kann flestum betur að flakka fram og aftur í tíma og skapa þannig spennu – og nýja myndin okkar á RIFF í ár er gott dæmi um það,“ segir Guðmundur Ingi Þorvaldsson, kvikmyndaframleiðandi og leikari með meiru.

Facebook
Twitter
LinkedIn
Email