David Leitch og Kelly McCormick heiðursgestir RIFF 2026

Bandaríski leikstjórinn David Leitch og framleiðandinn Kelly McCormick verða heiðursgestir RIFF 2026

Eitt áhrifamesta sköpunarteymi hasarmynda samtímans kemur til Íslands – David Leitch heldur masterklassa og verður viðstaddur sýningar á Atomic Blonde og Bullet Train, ásamt konu sinni, framleiðandanum Kelly McCormick.

unnamed scaled
Kelly McCormick og David Leitch

Bandaríski leikstjórinn David Leitch og framleiðandinn Kelly McCormick verða heiðursgestir Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, sem fram fer dagana 24. september til 4. október 2026. Saman hafa þau, meðal annars undir merkjum framleiðslufyrirtækisins 87North, átt stóran þátt í að endurmóta hasarmyndir samtímans með frumlegri sviðsetningu, metnaðarfullri áhættuatriðavinnu, beittum húmor og sterkri persónusköpun.

Leitch heldur masterklassa á hátíðinni þar sem hann fjallar um feril sinn, allt frá því að starfa sem áhættuleikari og áhættuatriðahönnuður yfir í leikstjórn nokkurra vinsælustu hasarmynda síðustu ára. Hann verður jafnframt viðstaddur sérstakar sýningar á Atomic Blonde og Bullet Train og ræðir þar gerð myndanna við áhorfendur.

bullet train still hi res 229 3086880 bullet train 2022 800
Brad Pitt í Bullet Train

Frá áhættuleik yfir í leikstjórn

David Leitch er einn áhrifamesti hasarmyndaleikstjóri Hollywood um þessar mundir. Sambland stórbrotinna áhættuatriða, hárnákvæmrar tímasetningar, kaldhæðins húmors og hugvitssamlegrar myndrænnar frásagnar hefur orðið að hans helsta höfundareinkenni.

Áður en Leitch settist í leikstjórastólinn starfaði hann í meira en tvo áratugi sem einn eftirsóttasti áhættuleikari og áhættuatriðahönnuður kvikmyndaiðnaðarins. Hann var meðal annars staðgengill Brad Pitt í Fight ClubTroyog Mr. & Mrs. Smith og kom að gerð stórmynda á borð við The Bourne UltimatumThe Matrix Reloaded og Ocean’s Eleven. Þessi yfirgripsmikla reynsla hefur mótað nálgun hans við leikstjórn og gert honum kleift að sviðsetja hasar með óvenjulegri nákvæmni, skýrleika og líkamlegum krafti.

Leitch sló í gegn sem einn höfunda John Wick árið 2014, þótt aðeins Chad Stahelski hafi verið skráður leikstjóri myndarinnar. John Wick markaði þáttaskil í nútíma hasarbíói og hafði víðtæk áhrif á hvernig bardagar, hreyfingar og áhættuatriði voru sviðsett á hvíta tjaldinu.

Í kjölfarið leikstýrði Leitch meðal annars Atomic BlondeDeadpool 2Fast & Furious Presents: Hobbs & Shaw,Bullet Train og The Fall Guy. Í verkum hans er hasarinn aldrei einungis sjónarspil heldur frásagnartæki sem afhjúpar persónur, tilfinningar og sambönd.

atomic blonde still hi res 242 3090567 schermafbeelding 2026 08 18 131645
Charlize Theron í Atomic Blonde

Kelly McCormick – leiðandi afl í hasarmyndagerð

Kelly McCormick er einn áhrifamesti framleiðandi hasarmynda samtímans og hefur á undanförnum árum átt stóran þátt í að víkka út möguleika greinarinnar. Hún hefur framleitt myndir á borð við Atomic BlondeNobodyBullet TrainViolent Night og The Fall Guy og verið framkvæmdaframleiðandi Deadpool 2 og Fast & Furious Presents: Hobbs & Shaw.

McCormick hefur vakið sérstaka athygli fyrir að sameina umfangsmikla kvikmyndaframleiðslu og djúpan skilning á persónum og handritsþróun. Hún leggur áherslu á að hasar sé ekki sjálfstætt skrautfyrirbæri heldur hluti af tilfinningalegum kjarna sögunnar. Sem framleiðandi hefur hún komið að öllum meginþáttum kvikmyndagerðarinnar, frá þróun handrita, fjármögnun og leikaravali til framkvæmdar flókinna tökuferla.

Árið 2019 stofnuðu McCormick og Leitch framleiðslufyrirtækið 87North. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í metnaðarfullum hasarmyndum þar sem verkleg áhættuatriði, nýstárleg hönnun og sterk höfundarsýn eru í forgrunni. Með myndum á borð við NobodyBullet TrainViolent Night og The Fall Guy hefur 87North orðið eitt helsta sköpunarafl nútíma hasarmyndagerðar.

Sköpunarsamstarf sem hefur mótað heila grein

Samstarf Leitch og McCormick byggir á sameiginlegri sýn á hasarmyndina sem lifandi og síbreytilegt kvikmyndaform. Þar mætast reynsla Leitch af áhættuatriðum og sjónrænni frásögn og styrkur McCormick í þróun, framleiðslu og uppbyggingu verkefna. Útkoman er kvikmyndagerð sem sameinar umfang og nánd, tæknilega nákvæmni og leikgleði.

Koma þeirra til RIFF gefur íslenskum kvikmyndagerðarmönnum, fagfólki, nemendum og áhugafólki einstakt tækifæri til að kynnast þeirri vinnu sem liggur að baki sumum eftirminnilegustu hasarmyndum síðustu ára – allt frá fyrstu hugmynd og þróun handrits til leikaravals, áhættuatriða, upptöku og endanlegrar sviðsetningar.

Nánari upplýsingar um masterklassann, sýningartíma og miðasölu verða kynntar síðar.

RIFF 2026 fer fram dagana 24.september til 4.október.

Udostępnij

Karfa

Brak produktów w koszyku.
0