Aðgengisstefna
Aðgengisstefna Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Aðgengisstefna Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík (RIFF) hefur það að markmiði að tryggja raunverulegt aðgengi, inngildingu og viðeigandi aðlögun fyrir alla gesti hátíðarinnar. Stefnan byggir á þeirri grundvallarsýn að allir einstaklingar, óháð fötlun eða öðrum aðstæðum, eigi jafnan rétt til þátttöku í menningarviðburðum.
Stefnan felur í sér markvissar aðgerðir til að bæta aðgengi að húsnæði og viðburðum hátíðarinnar, tryggja skýrar og aðgengilegar upplýsingar og stuðla að inngildingu fjölbreytts hóps gesta. RIFF leggur áherslu á að viðeigandi aðlögun sé veitt þegar þörf krefur, þannig að þjónusta hátíðarinnar mæti ólíkum þörfum á jafnræðisgrundvelli.
Árið 2026 leggur hátíðin sérstaka áherslu á að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða gesti og efla aðgengi að upplýsingum með auðlesnu efni á vef og í hátíðarbæklingi. Jafnframt verður áfram unnið að því að þróa og styrkja aðgengismál til lengri tíma, með það að leiðarljósi að allir sem þess óska geti notið dagskrár RIFF, óháð fötlun eða öðrum hindrunum
Bætt aðgengi fyrir hreyfihamlaða gesti
RIFF setur sér það markmið að auka og tryggja aðgengi fyrir notendur hjólastóla og einstaklinga með hreyfihamlanir. Aðgerðir fela meðal annars í sér:
- Að tryggja að aðstaða og skipulag sýninga og viðburða geri ráð fyrir hreyfihömluðum gestum og að viðeigandi aðlögun sé gerð þar sem þörf krefur.
- Að skipa aðgengisfulltrúa RIFF sem sinnir hlutverki tengiliðar vegna aðgengismála og veitir upplýsingar og stuðning.
- Að veita aðstoðarfólki fatlaðra gesta ókeypis aðgang að viðburðum hátíðarinnar.
- Að veita starfsmönnum og sjálfboðaliðum fræðslu um aðgengi, inngildingu og viðeigandi samskipti.
Aðgengi að upplýsingum og auðlesið efni
Til að stuðla að inngildingu og jafnu aðgengi að upplýsingum mun RIFF birta hluta kynningarefnis á auðlesnu máli.
Á vefsvæði hátíðarinnar verða aðgengilegar upplýsingar um dagskrá, sérviðburði og aðgengisstefnu á auðlesnu formi. Með þessu er leitast við að tryggja að sem flestir geti kynnt sér efni hátíðarinnar og tekið upplýsta ákvörðun um þátttöku.
Udział w UngRIFF
RIFF stuðlar að inngildingu og viðeigandi aðlögun fyrir fatlaða gesti barnakvikmyndahátíðarinnar UngRIFF. Hátíðin skuldbindur sig til að ræða við sérfræðinga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks við þróunarvinnu og framkvæmd UngRIFF.
Fræðsla fyrir starfsfólk og fjölbreytni
RIFF mun bjóða upp á fræðslu fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða um þarfir mismunandi hópa, sem veitt er af samtökum eins Sjálfsbjörg og Þroskahjálp. Aðgengisfulltrúi mun vera til taks til að endurskoða stefnuna reglulega. Hátíðin mun einnig leitast við að ráða starfsfólk með fjölbreyttan bakgrunn og kanna möguleika á ráðningar og nýsköpunarstyrkjum í samstarfi við stofnanir eins og Vinnumálastofnun.
Plany na przyszłość – RIFF dla każdego
RIFF skuldbindur sig til að sinna þróunar og hugmyndavinnu þar sem aðgengi skal aukið ár frá ári. RIFF hyggst þannig stöðugt bæta aðgengi að hátíðinni undir formerkjunum: RIFF fyrir alla. Þetta felur í sér áform um sérsýningar á komandi árum, til að bjóða upp á textun, tónmöskva og sérstakar sýningar fyrir einstaklinga á einhverfurófi eða með skynúrvinnsluvanda. Hátíðin stefnir að því að mæta þörfum heyrnarskertra áhorfenda með táknmálstúlkun, rittúlkun og öðrum úrræðum. RIFF óskar eftir samvinnu ríkis og sveitarfélaga og sjóða sem styðja við einstaklinga með sérþarfir, til þess að draumur um “RIFF fyrir alla” megi verða að veruleika.
Aðgengisteymi (Awareness Team)
RIFF leggur áherslu á að skapa öruggt og inngildandi umhverfi þar sem allir gestir finna fyrir virðingu og öryggi. Frá árinu 2026 verður starfrækt sérstakt aðgengisteymi í Háskólabíó á meðan sýningum stendur.
Hlutverk teymisins er að bregðast við atvikum og veita stuðning ef upp koma aðstæður sem varða líðan, öryggi eða aðgengi gesta. Hægt verður að hafa samband við teymið símleiðis og fulltrúar þess verða jafnframt sýnilegir á svæðinu á meðan viðburðum stendur.
Efnisviðvaranir (Content Notes)
Til að tryggja aðgengi og styðja við upplýsta þátttöku verður skýrt merkt við þær myndir sem kunna að valda óþægindum.
RIFF mun:
- Merkja myndir sem innihalda efnisviðvaranir (e. trigger warnings).
- Merkja myndir sem innihalda ljósblikk (strobe-effects) sem geta haft áhrif á viðkvæma gesti.
Markmiðið er að stuðla að gagnsæi og virðingu, þannig að gestir geti metið fyrirfram hvaða viðburðir henta þeim.



