Ísland í sjónarrönd á RIFF 2026

Ísland í sjónarrönd á RIFF 2026

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík gerir Íslandi ávallt hátt undir höfði með sérstökum flokki, Ísland í sjónarrönd, og árlega má þar finna leiknar myndir jafnt sem heimildamyndir, stuttmyndir í bland við kvikmyndir í fullri lengd.

Í flokknum má segja að áhorfendur finni vegamótin þar sem íslensk og alþjóðleg kvikmyndalist mætast því þar er að finna myndir sem hafa með einhverjum hætti ramma taug í þjóðarsálina. Oftast er um að ræða íslenskar myndir, stundum erlendar, en allar eiga þær það sammerkt að hafa til að bera eitthvað séríslenskt og áhugavert.

dissociated me still hi res 9 2979706 still9

Ég, sundruð (Dissociate Me)

Leikstjóri: Janaé Rachel Ballot

Hvött áfram af klipparanum Elísabetu Ronaldsdóttur reynir kona ein að gera kvikmynd um stormasama fortíð sína þar sem ýmis áföll í æsku koma við sögu. Án handrits velur hún leikara og leitar að tökustöðum, en verður svo fyrir bíl í miðju framleiðsluferlinu. Þegar áformin um kvikmyndina hrynja sleppir hún takinu á sögunni sem hún taldi sig verða að segja og nær loks aftur tökum á eigin lífi.

Háhitasvæði (Full Steam Ahead)

Leikstjórar: Susan Muska, Gréta Ólafsdóttir

Myndin fjallar um konur af mismunandi kynslóðum sem starfa sem verkfræðingar og vísindamenn í jarðhitaiðnaðinum, baráttu þeirra fyrir kynjajafnrétti og stöðu þeirra í atvinnugrein þar sem karlar hafa lengi verið í ríkjandi meirihluta ásamt þeim breytingum sem orðið hafa á liðnum árum.

full steam ahead still hi res 246 3087211 fullsteamahead still 17
if luck will come still hi res 223 3084765 zalgai

Ef gæfan lofar (If Luck Will Come)

Leikstjóri: Camille Bildsøe

Bernsku afganskra barna lýkur við fjórtán ára aldur undir stjórn talibana. Í niðurtalningu frá tólf til fjórtán ára aldurs halda Zahra og Zalgai fast í leikinn, þótt þögnin og skyldurnar þrengi sífellt að þeim. Sirkusinn sem þau elska verður þeirra síðasta uppreisn gegn bernskumissinum.

Gamlar glæður (La Belle Année)

Leikstjóri: Angelica Ruffier

Þegar Angelica tæmir æskuheimili sitt í kjölfar andláts föður síns, sem hún hafði fjarlægst með árunum, rifjar hún upp heita og einmanalega ást sem hún bar á unglingsárum til sögukennarans síns, sem hún kallar „Ungfrú B“. Og á meðan verkefnalistinn virðist aldrei ætla að styttast vex með henni sú sterka löngun að hitta hana á ný.

la belle annee still hi res 52 3010593 la belle anne e c simon averin 4
la pieta still hi res 87 3023579 glaciar 9

Tímans rás (La Pietà)

Leikstjórar: Pepe Andreu, Rafa Molés 

Fyrir rúmri öld settust Flosi Björnsson og átta systkini hans að undir Vatnajökli og helguðu líf sitt jöklinum. Þegar ljósmyndarinn Ragnar Axelsson snýr aftur að lokuðum bænum þar sem hann dvaldi sumarlangt í æsku, vekur hann rödd Flosa til lífs á ný, á meðan ísinn sem brestur yrkir sálumessu fyrir veröld sem er að hverfa.

Vegur 75 um Tröllaskarð– Álög Grímu

Leikstjóri: Árni Gunnarsson

Í Hegranesi á Norðurlandi hefur lengi verið talið að leita þurfi samþykkis hulinna afla áður en ráðist er í framkvæmdir. Árið 1978 komst Vegagerðin að samkomulagi á miðilsfundi við Grímu, konu sem hafði búið á svæðinu um 500 árum fyrr. Gegn því að vegstæðinu um Tröllaskarð yrði breytt lofaði hún að engin alvarleg slys yrðu á veginum. En stóð Gríma við loforð sitt? Og hefur huldufólkið enn eitthvað um vegagerð að segja?

route 75 grima s curse still hi res 258 3099166 vegur75
ride of a lifetime still hi res 257 3099149 dsc02369 djarfur hmsviss print 1

Ævintýri á hestbaki

Leikstjóri: Árni Gunnarsson

Hér segir frá Þórgunni Þórarinsdóttur, ungri hestakonu frá Norðurlandi sem hefur helgað íslenska hestinum líf sitt. Heimildarmyndin var tekin upp á fimm ára tímabili og fylgir Þórgunni frá því hún var óþekktur fimmtán ára knapi í Skagafirði þar til hún keppir fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Sviss árið 2025, ásamt ástsælum hesti sínum, Djarfi frá Flatatungu.

SJÁUMST Á RIFF Í HÁSKÓLABÍÓI!

Udostępnij

Karfa

Brak produktów w koszyku.
0