Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík gerir Íslandi ávallt hátt undir höfði með sérstökum flokki, Ísland í sjónarrönd, og árlega má þar finna leiknar myndir jafnt sem heimildamyndir, stuttmyndir í bland við kvikmyndir í fullri lengd.
Í flokknum má segja að áhorfendur finni vegamótin þar sem íslensk og alþjóðleg kvikmyndalist mætast því þar er að finna myndir sem hafa með einhverjum hætti ramma taug í þjóðarsálina. Oftast er um að ræða íslenskar myndir, stundum erlendar, en allar eiga þær það sammerkt að hafa til að bera eitthvað séríslenskt og áhugavert.

Ég, sundruð (Dissociate Me)
Leikstjóri: Janaé Rachel Ballot
Hvött áfram af klipparanum Elísabetu Ronaldsdóttur reynir kona ein að gera kvikmynd um stormasama fortíð sína þar sem ýmis áföll í æsku koma við sögu. Án handrits velur hún leikara og leitar að tökustöðum, en verður svo fyrir bíl í miðju framleiðsluferlinu. Þegar áformin um kvikmyndina hrynja sleppir hún takinu á sögunni sem hún taldi sig verða að segja og nær loks aftur tökum á eigin lífi.
Háhitasvæði (Full Steam Ahead)
Leikstjórar: Susan Muska, Gréta Ólafsdóttir
Myndin fjallar um konur af mismunandi kynslóðum sem starfa sem verkfræðingar og vísindamenn í jarðhitaiðnaðinum, baráttu þeirra fyrir kynjajafnrétti og stöðu þeirra í atvinnugrein þar sem karlar hafa lengi verið í ríkjandi meirihluta ásamt þeim breytingum sem orðið hafa á liðnum árum.


Ef gæfan lofar (If Luck Will Come)
Leikstjóri: Camille Bildsøe
Bernsku afganskra barna lýkur við fjórtán ára aldur undir stjórn talibana. Í niðurtalningu frá tólf til fjórtán ára aldurs halda Zahra og Zalgai fast í leikinn, þótt þögnin og skyldurnar þrengi sífellt að þeim. Sirkusinn sem þau elska verður þeirra síðasta uppreisn gegn bernskumissinum.
Gamlar glæður (La Belle Année)
Leikstjóri: Angelica Ruffier
Þegar Angelica tæmir æskuheimili sitt í kjölfar andláts föður síns, sem hún hafði fjarlægst með árunum, rifjar hún upp heita og einmanalega ást sem hún bar á unglingsárum til sögukennarans síns, sem hún kallar „Ungfrú B“. Og á meðan verkefnalistinn virðist aldrei ætla að styttast vex með henni sú sterka löngun að hitta hana á ný.


Tímans rás (La Pietà)
Leikstjórar: Pepe Andreu, Rafa Molés
Fyrir rúmri öld settust Flosi Björnsson og átta systkini hans að undir Vatnajökli og helguðu líf sitt jöklinum. Þegar ljósmyndarinn Ragnar Axelsson snýr aftur að lokuðum bænum þar sem hann dvaldi sumarlangt í æsku, vekur hann rödd Flosa til lífs á ný, á meðan ísinn sem brestur yrkir sálumessu fyrir veröld sem er að hverfa.
Vegur 75 um Tröllaskarð– Álög Grímu
Leikstjóri: Árni Gunnarsson
Í Hegranesi á Norðurlandi hefur lengi verið talið að leita þurfi samþykkis hulinna afla áður en ráðist er í framkvæmdir. Árið 1978 komst Vegagerðin að samkomulagi á miðilsfundi við Grímu, konu sem hafði búið á svæðinu um 500 árum fyrr. Gegn því að vegstæðinu um Tröllaskarð yrði breytt lofaði hún að engin alvarleg slys yrðu á veginum. En stóð Gríma við loforð sitt? Og hefur huldufólkið enn eitthvað um vegagerð að segja?


Ævintýri á hestbaki
Leikstjóri: Árni Gunnarsson
Hér segir frá Þórgunni Þórarinsdóttur, ungri hestakonu frá Norðurlandi sem hefur helgað íslenska hestinum líf sitt. Heimildarmyndin var tekin upp á fimm ára tímabili og fylgir Þórgunni frá því hún var óþekktur fimmtán ára knapi í Skagafirði þar til hún keppir fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Sviss árið 2025, ásamt ástsælum hesti sínum, Djarfi frá Flatatungu.
SJÁUMST Á RIFF Í HÁSKÓLABÍÓI!

