Hátíðin nálgast óðfluga og dagskráin hefur sjaldan verið jafn glæsileg!
Miðasalan er hafin á heimasíðu RIFF en þar er einnig hægt að sjá dagskrána í ár.
Hátíðin er fleytifull af úrvals bíómyndum hvaðanæva úr heiminum og allir geta fundið eitthvað ógleymanlegt við sitt hæfi.
Til að koma bíóstemningunni í gang eru hér 10 heitar á RIFF 2026!

Teenage Sex and Death at Camp Miasma (Dráp og dónaskapur í Camp Miasma)
Leikstjóri: Jane Schoenbrun
Eftir margra ára hraðsoðnar framhaldsmyndir og dvínandi áhuga er Camp Miasma-myndaserían falin ungum og metnaðarfullum leikstjóra sem einsetur sér að blása nýju lífi í hana. Þegar hún leitar uppi dularfulla og einræna aðalleikkonu fyrstu myndarinnar dragast konurnar tvær inn í blóðugt víti langana, skelfingar og ofskynjana. Stórleikkonan Gillian Anderson, stjarna tíunda áratugarins, fer á kostum í mynd sem ekki má missa af.
Nightborn (Barn næturinnar)
Leikstjóri: Hanna Bergholm
Í finnskum skógi hefja Saga og eiginmaður hennar, Jon, nýjan kafla sem foreldrar. En ógnvekjandi skuggi grunsemda um nýfætt barn þeirra hvílir á gleði Sögu, sem Jon veit ekki af, og smám saman myndast gjá á milli þeirra, þegar Saga glímir ein við þann óþægilega sannleika sem hún telur sig hafa uppgötvað. Hún neyðist til að horfast í augu við óttann sem ógnar fjölskyldunni. Breski leikarinn Rupert Grint fer með eitt aðalhlutverk myndarinnar.


Club Kid (Partýpabbi)
Leikstjóri: Jordan Firstman
Club Kid er margverðlaunuð mynd sem fjallar um Peter, harðan partýaðdáanda og næturklúbbaskemmtikraft í New York sem lifir óábyrgu og hedonísku lífi. Skyndilega uppgötvar hann að hann á tíu ára son sem hann vissi ekki af. Þegar hann neyðist til að taka ábyrgð á drengnum byrjar lífið smám saman að breytast. Myndin blandar saman gríni, næturlífi, tilfinningum og sögu um óvænt föðurhlutverk og þroska. Ein af þeim myndum sem vakti hvað mesta athygli á Cannes og A24 vann slaginn um alþjóðlega sýningarréttinn.
Fatherland (Föðurlandið)
Leikstjóri: Paweł Pawlikowski
Árið 1949 leggja þýski rithöfundurinn Thomas Mann og dóttir hans Erika upp í bílferð um Þýskaland í rústum, frá Frankfurt, sem er undir stjórn Bandaríkjanna, til Weimar, sem er undir stjórn Sovétríkjanna. Myndin keppti um Gullpálmann í Cannes í maí og Pawlikowski var valinn besti leikstjórinn.


O Riso E A Faca (Aðeins í storminum finn ég ró)
Leikstjóri: Pedro Pinho
Sérgio er kominn til stórborgar í Gíneu-Bissá til starfa fyrir hönd góðgerðarfélags við gatnagerð sem á að tengja eyðimerkur og skóga. Hann fær hins vegar mun flóknara verkefni upp í hendurnar þegar hann flækist inn í verulega flókið samband sem þau Diara og Gui eiga í.
La Gradiva (Spor í öskunni)
Leikstjóri: Marine Atlan
Bekkur framhaldsskólanema fer til Pompei til að skoða rústirnar og líkin sem Vesúvíus varðveitti undir öskunni. Ferðin reynist einstakt augnablik þar sem kraftur æskunnar mætir heimi þar sem tíminn hefur staðið í stað. Langanir þeirra brjótast upp á yfirborðið af óvæntum ákafa sem leiðir að lokum til þess að hin viðkvæma félagslega mynd sem hópurinn hefur myndað brestur. Mögnuð perla sem frumsýnd var í Cannes.


Garrat Du Váimmu (Frost í hjarta)
Reżyser: Amanda Kernell
Í afskekktu samísku þorpi hátt uppi í fjöllum erfir hin tvítuga Ejva hreindýrahjörð föður síns, sem er látinn. Hún á í erfiðleikum með að halda hjörðinni við góða heilsu svo hún dafni. Á sama tíma verður Heaika, leiðtogi samfélagsins, ástfanginn af henni. Þótt hún sé hikandi telur hún sig knúna til að taka honum. En allt breytist þegar Nejla, frændi Heaika, kemur í þorpið og Ejva uppgötvar sanna ást í fyrsta sinn. Amanda Kernell verður heiðruð á RIFF sem Upprennandi meistari.
Les Roches Rouges (Rauðir klettar)
Leikstjóri: Bruno Dumont
Á frönsku Rivíerunni etja tveir barnahópar kappi í hættulegum klettastökkum. Géo, sem er vart orðinn fimm ára, uppgötvar á einu sumri heim þar sem vinátta fléttast saman við samkeppni og fyrstu tilfinningar hjartans vakna í töfrandi landslagi Miðjarðarhafsins. Var frumsýnd á Director’s Fortnight í Cannes og vakti þar mikla lukku.


Chronovisor (Tímasjáin)
Leikstjórar: Jack Auen, Kevin Walker
Beatrice er einræn, frönsk fræðikona sem sogast inn í leyndardómsfullan heim í leit sinni að lausn gátunnar um einskonar myndavél, smíðaða af leynireglu Benediktsmunka, sem getur fangað myndir af liðnum tíma. Fljótlega kemur í ljós að sumir eru reiðubúnir að verja leyndardóminn með öllum tiltækum ráðum í þessari sagnfræðilegu ráðgátu.
Amarga Navidad (Biturleg jól)
Leikstjóri: Pedro Almodóvar
Biturleg jól segir frá Elsu, auglýsingaleikstjóra, sem missir móður sína í jólafríinu. Hún vinnur linnulaust og gefur sér, án þess að gera sér grein fyrir því, engan tíma til að syrgja móður sína, en ákveður loks að fara til Lanzarote ásamt vinkonu sinni, Patriciu, sem þarf einnig að komast burt. Saga þeirra fléttast saman við sögu handritshöfundarins og kvikmyndaleikstjórans og kannar hvernig líf og skáldskapur tengjast órjúfanlega – stundum með sársaukafullum afleiðingum.


