
Heiðurssýning: Bast
Kino Uniwersyteckie
29. september, kl 19:00 (7:00pm)
Alexander Skarsgård verður viðstaddur Norðurlandafrumsýningu Wicker á RIFF. Einstakt tækifæri til að sjá nýjustu mynd Skarsgård á hvíta tjaldinu og hitta einn af þekktustu leikurum samtímans í eigin persónu.
Skarsgård tekur jafnframt við heiðursverðlaunum RIFF 2026 fyrir framúrskarandi listfengi og tekur þátt í Spurt & svarað.
SOLD OUT!
The Loneliest Man in Town + Q&A
Kino Uniwersyteckie
29. september, kl 17:30 (5:30pm)
Leikstjórar myndarinnar taka þátt í Spurt og svarað.
Myndin fjallar um tónlistarmanninn Al Cook, sem býr einsamall í íbúð fullri af minningum, hljómplötum, bókum og öðrum munum sem fylgja löngu lífi. Þegar ákveðið er að rífa húsið horfist hann í augu við að heimurinn sem hann byggði líf sitt á er að hverfa. Myndin er fyrst og fremst ljóðræn persónusaga um einmanaleika, missi, minningar, tónlist og það að þurfa að sleppa takinu á fortíðinni.


La Gradiva
Kino Uniwersyteckie
29. september, kl 19:00 (7:00pm)
Leikstjóri: Marine Atlan
Bekkur framhaldsskólanema fer til Pompei til að skoða rústirnar og líkin sem Vesúvíus varðveitti undir öskunni. Ferðin reynist einstakt augnablik þar sem kraftur æskunnar mætir heimi þar sem tíminn hefur staðið í stað. Langanir þeirra brjótast upp á yfirborðið af óvæntum ákafa sem leiðir að lokum til þess að hin viðkvæma félagslega mynd sem hópurinn hefur myndað brestur.
Sólveig Anspach verðlaunin
Kino Uniwersyteckie
29. september, kl 17:00 (5:00pm)
Verðlaunum þeim sem kennd eru við kvikmyndagerðarkonuna Sólveigu Anspach (1960-2015) var komið á fót árið 2017 til að hvetja nýja kynslóð kvenleikstjóra til dáða og vekja um leið athygli á íslenskum og frönskum stuttmyndum í minningu Sólveigar. Stuttmyndirnar sem tilnefndar eru í ár – þrjár íslenskar og fjórar franskar – verða sýndar á sérstakri verðlaunaafhendingu í boði franska sendiráðsins í Reykjavík.


Chronovisor
Kino Uniwersyteckie
29. september, kl 22:00 (10:00pm)
Leikstjórar: Jack Auen, Kevin Walker
Beatrice er einræn, frönsk fræðikona sem sogast inn í leyndardómsfullan heim í leit sinni að lausn gátunnar um einskonar myndavél, smíðaða af leynireglu Benediktsmunka, sem getur fangað myndir af liðnum tíma. Fljótlega kemur í ljós að sumir eru reiðubúnir að verja leyndardóminn með öllum tiltækum ráðum í þessari sagnfræðilegu ráðgátu.
Light Pillar
Kino Uniwersyteckie
29. september, kl 17:00 (5:00pm)
Leikstjóri: Xu Zao
Framtíðin. Vetur. Geimferðir eru ekki lengur draumur. Einmana ræstingamaður sér um lóðina við niðurnídda og gjaldþrota kvikmyndaverksmiðju. Dag einn hefst fyrir þó rómantískt ferðalag þegar hann kynnist leikkonu í undurfögrum sýndarheimi, þar sem mörkin milli raunveruleika og ímyndunar verða sífellt óljósari.


Rehearsals for a Revolution
Kino Uniwersyteckie
29. september, kl 19:50 (7:50pm)
Leikstjóri: Pegah Ahangarani
Í fimm portrettmyndum af ættingjum sínum og lærimeisturum rekur Pegah Ahangarani ævi sína og rúmlega fjörutíu ára sögu Írans. Með persónulegum ljósmyndasöfnum, heimamyndböndum, upptökum frá mótmælum, dagblöðum og hljóðupptökum fléttar hún saman persónulegar og sameiginlegar minningar, allt frá byltingunni 1979 til stríðsins 2026 og dregur þannig upp mynd af landi sem mótast hefur af kúgun og von um nýja byltingu.
Valin Besta heimildarmyndin á Cannes!
A River’s Gaze
Kino Uniwersyteckie
29. september, kl. 19:00 (7:00pm)
Lavinia er einstæð móðir í fátæku rúmensku þorpi sem reynir að byggja upp betra líf fyrir sig og 13 ára gamlan son sinn. Hún er hvatvís, fljót að misskilja aðstæður, óviss um hvernig hún eigi að tjá ást sína og á erfitt með að gefa syni sínum það sem hann þarfnast. Þegar hann stendur á þröskuldi unglingsáranna reynir á tengsl þeirra yfir fjórar árstíðir.


Do You Love Me
Kino Uniwersyteckie
29. september, kl 20:00 (8:00pm)
Leikstjóri: Lana Daher
Elskarðu mig? er fjörugt og persónulegt ferðalag um hljóð- og myndræna minningu Líbanons, alfarið samsett úr safnefni. Myndin er ástarbréf til Beirút og spannar sjö áratugi af kvikmyndum, sjónvarpsefni, heimamyndböndum og ljósmyndum. Um leið kannar hún sameiginlegt sálarlíf íbúa Líbanons sem er í senn mótað af gleði og nánd, eyðileggingu og missi.
No Ghosts on Good Street
Norræna húsið
29. september, kl. 21:45 (9:45pm)
Fjögur systkyni sem nálgast fullorðinsaldurinn reyna að standa á eigin fótum án þess að glata tenglsum við hvert annað. Vandamálin eru hinsvegar margvísleg, allt frá ásókn dularfullrar næturveru til eiturlyfjanotkunar. Öll þrá þau væntumþykju og viðurkenningu, en er höfnun óumflýjanleg þegar eigin vandamál virðast óyfirstíganleg?


Once Upon a Time in Harlem
Kino Uniwersyteckie
29. september, kl 22:00 (10:00pm)
Leikstjórar: William Greaves, David Greaves
Áratug eftir dauða sinn kemur kvikmyndagerðarmaðurinn William Greaves með sína síðustu óvæntu uppákomu: myndskeið af því sem hann taldi mikilvægasta atburðinn sem hann hefði nokkurn tímann tekið upp – samkomu sem hann skipulagði árið 1972 fyrir eftirlifandi persónur Harlem-endurreisnarinnar.




