0%
Riff Logo

Alexander Skarsgård tók við heiðursverðlaun RIFF 

Skarsgård hlaut Heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listfengi.
Alexander 1

Uppselt var í gærkvöld í Hátíðarsal Háskólabíós á Norðurlandafrumsýningu stórmyndarinnar Wicker að viðstöddum Alexander Skarsgård sem tók við heiðursverðlaunum RIFF

Húsfyllir var á viðburðinum og stemningin rafmögnuð enda eftirvæntingin mikil fyrir myndinni bæði og leikaranum sjálfum. Má segja að hálfgert „Skarsgård-æði” hafi gripið um sig í aðdraganda sýningarinnar og eftirspurn eftir miðum langt umfram framboðið þó um stærsta bíósal landsins væri að ræða. Mikil orka og gleði hlóðst upp í salnum meðan áhorfendur biðu komu stjörnunnar. Þegar Skarsgård mætti svo á sviðið ætlaði má segja að þakið hafi nánast rifnað af Háskólabíói, og viðtökurnar úr salnum sýndu svo ekki var um að villast að kappinn á stóran aðdáendahóp hér á landi.

Skarsgård, sem er í hópi vinsælustu leikara samtímans, voru afhent Heiðursverðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listfengi af Hrönn Marinósdóttur, stjórnanda RIFF. Í afhendingarræðu sinni sagði Hrönn meðal annars:
„Óháð búningum, leikmunum, landslagi eða umfangi framleiðslunnar, handriti eða leikstjóra færir hann verkinu nokkuð sem engin önnur deild getur skapað: nærveru sína. Hann getur staðið í víkingalandslagi, þakinn leðju og blóði, eða setið hljóður í fagursniðnum jakkafötum, og myndavélin fangar alltaf það sama: leikara sem fær okkur til að trúa því að á bak við augnaráð hans sé alltaf önnur saga að gerast. […] Í augum nýrrar kynslóðar kvikmyndagesta er Alexander Skarsgård orðinn stjarna á eigin verðleikum. Nafn sem mun lifa í minningunni um ókomin ár. Áhorfendur munu halda áfram að uppgötva hann í kvikmyndum; hlæja að sérkennilegustu persónum hans, hræðast aðrar, verða ástfangnir af sumum þeirra og muna þetta sérstaka andlit og þessi óræðu augu með sínum ótvíræða trega.

Að sýningu lokinni tók leikarinn þátt í samtali við rithöfundinn Andra Snæ Magnason og svaraði spurningum úr sal. Skarsgård hélt af landi brott í morgun en lét ákaflega vel af sinni stuttu heimsókn til landsins að þessu sinni.

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík stendur til 4. október.

Fullur salur

Udostępnij

NEWSLETTER

Tengdar færslur

PROGRAM

Karfa

Brak produktów w koszyku.
0