0%
Riff Logo

STAÐA HANDRITSHÖFUNDA

Niðurstöður hugveitunnar Nordic Voices

Hvað þarf til að geta byggt upp starfsferil til framtíðar sem handritshöfundur á Norðurlöndum og norðurslóðum við núverandi aðstæður — og hverju þarf að breyta?

Þessi spurning var þungamiðjan í starfi hugveitunnar Nordic Voices, sem kom saman á Bransadögum RIFF í Reykjavík. Hugveitan er árlegur samráðsvettvangur fyrir upprennandi kvikmyndagerðarfólk frá Íslandi og öðrum Norðurlöndum. Þar er hvorki um pallborðsumræður né fyrirlestra að ræða, heldur vinnufund þar sem þátttakendur fá svigrúm til að ræða opinskátt um veruleika kvikmyndagerðar í gagnkvæmu samtali við reynslumikið fagfólk úr greininni. Þótt þátttakendur störfuðu í ólíkum norrænum löndum, ynnu á mismunandi tungumálum og væru mislangt komnir á starfsferlinum glímdu margir við sömu áskoranir.

Þessi samantekt byggist á eigindlegri umræðu fremur en formlegri könnun. Niðurstöðurnar eru því upphafspunktur að víðtækara samtali um hvernig skapa megi handritshöfundum traustari og sanngjarnari starfsskilyrði og tryggja að fleiri raddir fái að heyrast.

Fundurinn árið 2026 var haldinn í tengslum við Norðurslóða handritasmiðjuna, sem var þróuð í samstarfi við Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Nuuk og fjármögnuð að hluta af Norræna menningarsjóðnum.

Áskoranir handritshöfunda

Handritsgerðin nýtur minnsta stuðnings af öllum stigum kvikmyndagerðar.

Handritshöfundar verja oft árum saman í að þróa verkefni án þess að fá greitt fyrir vinnuna. Fjármagn til handritsþróunar er takmarkað og stuðningurinn stendur sjaldnast undir þeim tíma sem þarf til að skrifa handrit eða vinna með handritsráðgjafa.

Til að halda starfsferlinum gangandi þurfa höfundar oft að sinna öðru en eigin verkefnum.

Margir höfundar reiða sig á sjónvarpsverkefni, störf utan greinarinnar eða eigin sparnað til að framfleyta sér á meðan þeir þróa sínar eigin sögur. Mörg ár geta liðið þar til verkefni rata á skjá eða tjald, sem gerir höfundum erfitt fyrir að hafa handritsgerð að lífsviðurværi.

Réttindi höfunda yfir eigin verkum og sanngjarnt endurgjald eiga undir högg að sækja.

Höfundar sem starfa fyrir alþjóðlegar streymisveitur fá stundum eingreiðslu gegn því að afsala sér réttindum og framtíðartekjum af verkunum. Víða á Norðurlöndum og norðurslóðum skortir höfunda jafnframt sterkan sameiginlegan vettvang til að verja réttindi sín og semja um sanngjörn kjör.

Reglur um fjármögnun geta mótað þær sögur sem sagðar eru.

Kröfur um samframleiðslu og skilyrði fjármögnunaraðila geta þrýst á höfunda að breyta persónum, sögusviði eða öðrum þáttum verka sinna. Slíkur þrýstingur getur verið sérstaklega erfiður viðureignar fyrir kvikmyndagerðarfólk á litlum málsvæðum og í samfélögum frumbyggja.

Höfundar og framleiðendur þurfa að ræða fjárhagsrammann fyrr í ferlinu.

Þegar fjárhagslegar takmarkanir koma seint í ljós hafa höfundar oft lítinn tíma til að finna skapandi leiðir til að laga handrit sín að þeim. Samstarf á fyrri stigum gæti gert verkefni raunhæfari í framkvæmd án þess að listræn sýn þeirra þurfi að gjalda fyrir.

Hvað skiptir sköpum?

Í umræðunum kom einnig skýrt fram mikilvægi handritasmiðja, kvikmyndahátíða og faglegra tengslaneta.

Fyrir upprennandi höfunda getur það skipt sköpum að einhver lesi verk þeirra af alvöru og gefi sér tíma til að rýna í þau. Handritasmiðjur veita endurgjöf, efla sjálfstraust og leiða höfunda saman við nýja samstarfsaðila og framleiðendur — tengsl sem erfitt getur verið að koma á á eigin spýtur.

Samstarf innan Norðurlanda og norðurslóða skapar jafnframt tækifæri fyrir höfunda til að miðla þekkingu, þróa verkefni þvert á landamæri og efla skapandi samfélag sitt.

Tillögur að öflugra samfélagi handritshöfunda

Niðurstöðurnar benda til þess að þörf sé á breytingum á nokkrum sviðum:

  • Fjármagna sjálfa handritsvinnuna: Veita stuðning sem stendur raunverulega undir vinnutíma höfunda og gera kostnað við handritsráðgjöf styrkhæfan strax á fyrstu stigum þróunar.
  • Vernda réttindi höfunda: Þróa sanngjarnari samninga og staðlaða samningsskilmála og efla möguleika höfunda á sameiginlegri hagsmunagæslu.
  • Styðja sögur sem eiga rætur í eigin samfélagi: Endurskoða úthlutunarviðmið sem kunna að setja verkefni á tungumálum fámennra málsamfélaga og sögumenn úr röðum frumbyggja í lakari stöðu.
  • Tengja höfunda og framleiðendur fyrr í ferlinu: Ræða fjárhagsramma og forsendur framleiðslunnar á meðan enn er svigrúm til að finna skapandi lausnir.
  • Efla handritasmiðjur og tengslanet: Tryggja höfundum gagnlega og vandaða endurgjöf, tengsl við fagfólk í greininni og tækifæri til áframhaldandi samstarfs.
  • Styrkja sameiginlega rödd höfunda á svæðinu: Kanna leiðir til að handritshöfundar á Norðurlöndum og norðurslóðum geti deilt úrræðum og þekkingu og sameinast um hagsmunagæslu.

Næstu skref í samtalinu

Hugveitan Nordic Voices var stofnuð til að leiða saman fagfólk í kvikmyndagerð, miðla reynslu og vinna úr samtalinu niðurstöður og tillögur að úrbótum.

Við hjá RIFF trúum því að kvikmyndamenning hefjist við skrifborð höfundarins. Stuðningur við handritshöfunda er um leið stuðningur við þær sögur, tungumál og sjónarhorn sem birtast á skjám okkar og kvikmyndatjöldum.

Spurningin er því ekki aðeins hvernig hægt sé að gera fleiri kvikmyndir, heldur hvernig skapa megi aðstæður sem gera höfundum kleift að halda áfram að segja sögur sínar.

RIFF – Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík stendur fyrir hugveitunni Nordic Voices sem hluta af Bransadögum RIFF. Fundurinn árið 2026 var haldinn í tengslum við Norðurslóða handritasmiðjuna, sem var þróuð í samstarfi við Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Nuuk og fjármögnuð að hluta af Norræna menningarsjóðnum.

Udostępnij

NEWSLETTER

Tengdar færslur

PROGRAM

Karfa

Brak produktów w koszyku.
0