Ráðgjafaráð RIFF
Ráðgjafaráð RIFF tekur til starfa
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík kynnir til leiks Ráðgjafaráð RIFF, sem skipað er fagfólki í fremstu röð úr ýmsum skapandi greinum, ekki síst úr heimi sviðslista og kvikmyndanna. Ráðið skipa þau Ingvar E. Sigurðsson, Elísabet Ronaldsdóttir, Andri Snær Magnason, Yrsa Roca Fannberg, Margrét Örnólfsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Guðmundur Arnar Guðmundsson.
Hlutverk ráðsins er að styrkja og styðja við starfsemi RIFF með því að vera til ráðgjafar og hafa þannig áhrif á dagskrá og starfsemi hátíðarinnar. Um leið getur starfsfólk hátíðar leitað til ráðsmanna eftir sérþekkingu, ráðum eða hugmyndum eða borið undir þá dagskrá og fengið álit þeirra. Jafnframt er ráðsmönnum frjálst og þeir hvattir til að koma með hugmyndir að dagskrá eða öðru því sem gæti orðið starfsemi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík til framdráttar.
Ólafur Darri
Ólafur Darri Ólafsson hefur haslað sér völl bæði á Íslandi og erlendis og er
meðal annars þekktur fyrir aðalhlutverk sitt í hinum vinsælu þáttum Ófærð
(Trapped). Hann hefur komið fram í fjölda alþjóðlegra kvikmynda og
sjónvarpsþátta, þar á meðal The Secret Life of Walter Mitty. Auk leiklistar hefur
hann einnig komið að handritsgerð og þróun efnis, og er einn af mest
áberandi röddum íslenskrar kvikmyndagerðar.
Margrét Örnólfsdóttir
Margrét Örnólfsdóttir hefur starfað við kvikmyndir, sjónvarp og leikhús. Hún hefur komið að fjölbreyttum verkefnum, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi, og er meðal annars þekkt fyrir vinnu sína við sjónvarpsþættina Fangar, Pressa, Ófærð og Flateyjargátan. Auk þess er hún barnabókahöfundur og hefur gefið út verk fyrir yngri lesendur.
Ingvar E. Sigurðsson
Ingvar E. Sigurðsson er í hópi þekktustu leikara þjóðarinnar og hefur hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir störf sín í kvikmyndum, sjónvarpi og leikhúsi. Hann hefur unnið með helstu leikstjórum landsins og hlotið fjölda verðlauna, þar á meðal fyrir hlutverk sitt í Hvítur, hvítur dagur.
Yrsa Roca Fannberg
Yrsa Roca Fannberg er í senn leikstjóri, handritshöfundur og kvikmyndatökukona sem hefur unnið að fjölbreyttum kvikmyndaverkefnum, bæði á Íslandi og erlendis. Verk hennar hafa verið sýnd á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum og vakið athygli fyrir sterka og persónulega nálgun, ekki síst verðlaunamyndin Jörðin undir fótum okkar sem sýnd var á RIFF 2025.
Guðmundur Arnar
Guðmundur Arnar er íslenskur leikstjóri og framleiðandi. Eftir nám í myndlist lagði hann stund á handritaskrif í Danmörku. Á meðan á Cannes Cinéfondation-dvöl hans stóð þróaði hann og skrifaði sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd, Hjartastein, sem var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Næsta kvikmynd hans í fullri lengd, Berdreymi, var frumsýnd á Berlinale árið 2022.
Elísabet Ronaldsdóttir
Elísabet Ronaldsdóttir hefur starfað við kvikmyndir og sjónvarp bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Hún hefur komið að fjölda stórra erlendra verkefna, þar á meðal í Hollywood, og er sérstaklega þekkt fyrir kraftmikla klippingu í hasar- og spennumyndum á borð við Bullet Train sem skartaði Brad Pitt í aðalhlutverki, Atomic Blonde með Charlize Theron og nú síðast How To Rob a Bank með Zoë Kravitz og Nicholas Hoult sem frumsýnd verður í haust.
Andri Snær
Andri Snær Magnason er einn fjölhæfasti og mest verðlaunaði rithöfundur Íslands. Hann hefur skrifað skáldsögur, barnabækur, leikrit, ljóð og samfélagsrýni, og hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin í öllum flokkum. Andri Snær hefur leikstýrt fjórum kvikmyndum; þær eru Draumalandið (2009), heimildarmyndin Þriðji póllinn sem var opnunarmynd RIFF 2020, Tídægra/Apausalypse frá 2021 og svo National Geographic-heimildarmyndin Time and Water (2026).

