0%
Riff Logo

Edda Björgvins hlaut heiðursverðlaun UngRIFF

Halla Tómasdóttir veitti Eddu Björgvin heiðursverðlaun UngRIFF.

Um 1000 skólabörn gerðu sér ferð í Smárabíó í Kópavogi og Króksbíó á Sauðárkróki í morgun þar sem UngRIFF, kvikmyndahátíð fyrir börn og ungmenni var formlega sett. 

Aðrir gestir voru ekki af verri endanum en Halla Tómasdóttir forseti Íslands setti hátíðina formlega. 

Í ræðu sinni nefndi forsetinn mikilvægi þess að auka kvikmyndalæsi barna. 

„Það sem er svo magnað við kvikmyndir er að þær hjálpa okkur að skilja okkur sjálf, heiminn og aðra.” sagði Halla. 

Halla veitti Eddu Björgvinsdóttur leikkonu heiðursverðlaun UngRIFF fyrir leik sinn í gegnum árin.

Ungmennaráð hátíðarinnar valdi verðlaunahafann og sögðu þau Eddu meðal annars vera „fyrirmynd allrar þjóðarinnar“.

Halla minntist þar að auki á að það eru ekki aðeins börnin í salnum þennan daginn sem fá að alast upp við leik hennar, heldur foreldrar þeirra líka og er Edda því líkt og brú milli kynslóða. 

Edda Bjorgvins tekur vid verdlaunum fra Hollu Tomasdottur fyrir hond UngRIFF
Opnun Ungriff 2026 Edda Björgvinsdóttir leikkona, Halla Tómasdóttir forseti

„Ég er djúpt hrærð og þakklát fyrir þessi heiðursverðlaun UngRIFF.” sagði Edda í þakkarræðu sinni.

„UngRiff er magnað og merkilegt framlag til skapandi greina og það

telst til tíðinda að það skuli vera sérstök kvikmyndahátíð fyrir börn

og ungmenni á Íslandi.” 

Þá minntist Edda á mikilvægi þess að fjárfesta í menningarviðburðum og list:

„Þetta er ómetanleg menningarstarf sem UngRIFF býður uppá – þar

sem ekkert vantar – nema helst fjármagn! Fjárfestum í börnum og ungmennum því

annars er engin framtíð listsköpunar á Íslandi”

Ungmennaráð RIFF í ár skipa Baldur Tumi Einarsson, Áshildur Herdís Gunnlaugsdóttir, Rúnar Már Jónasson, Róbert Kári Örnólfsson, Sverrir Þór Leifsson og Anna Signý Sæmundsdóttir. Öll eru þau nemendur úr Grundarskóli á Akranesi og Menntaskólanum í Reykjavík. Þau hafi staðið með prýði í skipulagningu með verkefnastjóra UngRIFF, Salvöru Bergmann, í allt sumar og völdu þau meðal annars opnunarmyndina fyrir unglingastigið; Skateboarding Is Not For Girls (ísl Bretti og brúðarkaup). 

Myndin fyrir yngri bekkina sem sýnd var í morgun var ekki síðri, en það var teiknimyndin Lucy Lost (ísl, Týnda stúlkan) sem var að auki talsett á íslensku af Þórunni Clausen og Ólafi Þorvaldz í Upptekið með Gunnari Árnasyni.

Skólarnir sem mættu í Smárabíó og fylltu alla fjóra salinu  voru: Víðistaðaskóli, Laugarnesskóli, Vatnsendaskóli, Smáraskóli, Álfhólsskóli, Selásskóli, Ölduselsskóli, Húsaskóli, Breiðholtsskóli.

Börn og foreldrar geta kynnt sér frekari dagskrá UngRIFF á ungriff.is

Udostępnij

NEWSLETTER

Tengdar færslur

PROGRAM

Karfa

Brak produktów w koszyku.
0