RIFF ásamt UngRIFF býður fjölskyldum í ógleymanlega bíóferð. Háskólabíói verður umturnað í risastórt og huggulegt náttfatapartý þar sem börn og fullorðnir geta upplifað hina ástsælu kvikmynd um bangsan Paddington í samnefndri kvikmynd frá árinu 2014 sem hlaut einmæla lof gagnrýnenda fyrir að henta áhorfendum á öllum aldri.
Til að skapa hina fullkomnu stemningu hvetjum við alla yngri gestina til að mæta í náttfötunum og taka uppáhalds bangsann sinn með. Salurinn verður skreyttur á töfrandi hátt með teppavirki, púðum og pullum – að auki verður tilboð á kaffi fyrir foreldrana til þess að byrja daginn rétt.
Kynnir sýningarinnar er leikarinn Siggi Þór, sem fer jafnframt með hlutverk Paddington í íslensku talsetningunni, og mun hann tryggja einstaka upplifun fyrir yngri kynslóðina. Myndin verður sýnd með íslensku tali.
Barnamiði er fyrir 12 ára og yngri og fjölskyldumiði er fyrir fjóra einstaklinga (óháð aldri).
1 500 kr. – 6 900 kr.Zakres cen: od 1 500 kr. do 6 900 kr.




Aby zapewnić jak najlepsze wrażenia, korzystamy z technologii takich jak pliki cookie do przechowywania i/lub uzyskiwania dostępu do informacji o urządzeniu. Wyrażenie zgody na te technologie pozwoli nam przetwarzać dane, takie jak zachowanie podczas przeglądania lub unikalne identyfikatory na tej stronie. Brak wyrażenia zgody lub jej wycofanie może niekorzystnie wpłynąć na niektóre funkcje i działania.