Heiðurssýning: Wicker – með Alexander Skarsgård

Kino Uniwersyteckie
29. september, kl 19

Upplifðu Wicker með Alexander Skarsgård í Háskólabíói – stórleikarinn sjálfur verður viðstaddur!

Alexander Skarsgård verður viðstaddur Norðurlandafrumsýningu Wicker á RIFF og heldur stutta tölu fyrir gesti áður en myndin hefst. Einstakt tækifæri til að sjá nýjustu mynd Skarsgård á hvíta tjaldinu og hitta einn af þekktustu leikurum samtímans í eigin persónu.

Skarsgård tekur jafnframt við heiðursverðlaunum RIFF 2026 fyrir framúrskarandi listfengi og tekur þátt í Spurt & svarað.

Um myndina

Í jaðri sjávarþorps býr kona ein sem sækir sjóinn; ógift, daunill og stöðugt skotmark stríðni bæjarbúa. Dag einn fær hún nóg af öllu og pantar sér eiginmann ofinn úr basti. Í jafn íhaldssömu samfélagi vekur svo óhefðbundið samband bæði afbrýðisemi, hneykslun og uppnám.

Wicker er í leikstjórn Alex Huston Fischer og Eleanor Wilson og skartar Alexander Skarsgård, Olivia Colman, Peter Dinklage og Elizabeth Debicki í aðalhlutverkum.

Takmarkaður fjöldi miða – tryggðu þér sæti á þessa einstöku RIFF-sýningu.

4 500 ISK

Na stanie

Opis

Karfa

Brak produktów w koszyku.
0