Norðurlandafrumsýning Wicker
Alexander Skarsgård verður viðstaddur Norðurlandafrumsýningu Wicker á RIFF og heldur stutta tölu fyrir gesti áður en myndin hefst. Sýningin fer fram í Háskólabíói þriðjudaginn 29. september kl. 19.
Skarsgård tekur jafnframt við heiðursverðlaunum RIFF 2026 fyrir framúrskarandi listfengi og ávarpar gesti við sýninguna.
Um er að ræða einstakt tækifæri til að sjá nýjustu mynd Skarsgård á hvíta tjaldinu og upplifa stórleikarann sjálfan í eigin persónu.

Alexander Skarsgård er einn þekktasti og virtasti sænski leikari samtímans og hefur á síðustu tveimur áratugum skapað sér fjölbreyttan og alþjóðlegan feril, bæði í sænskri kvikmyndagerð og í stórum alþjóðlegum verkefnum.
Skarsgård fæddist í Stokkhólmi 25. ágúst 1976 og hóf ungur að leika í sænskum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Hann nam við Leeds Metropolitan University í Englandi og hélt síðar til New York þar sem hann stundaði leiklistarnám.
Alþjóðleg athygli beindist fyrst verulega að Skarsgård árið 2008 þegar hann lék Brad „Iceman“ Colbert í Generation Kill. Sama ár hóf hann að leika vampíruna Eric Northman í True Blood, einu af sínum þekktustu hlutverkum, en hann kom fram í 76 þáttum á árunum 2008–2014.
Síðan þá hefur Skarsgård sýnt mikla breidd í hlutverkavali og komið fram í fjölmörgum eftirtektarverðum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Þar má nefna Melancholia (2011) eftir Lars von Trier, The Diary of a Teenage Girl (2015), The Legend of Tarzan (2016) og The Northman (2022) eftir Robert Eggers, sem skrifaði handritið ásamt Sjón.
Fyrir hlutverk sitt sem Perry Wright í Big Little Lies hlaut Skarsgård bæði Emmy- og Golden Globe-verðlaun. Hann vakti einnig mikla athygli fyrir hlutverk milljarðamæringsins Lukas Matsson í Succession.
Með sterkri nærveru, fjölbreyttum verkefnum og óvenjulegu hlutverkavali hefur Skarsgård skipað sér í hóp eftirtektarverðustu leikara sinnar kynslóðar og er í dag einn þekktasti og fjölhæfasti leikari Svíþjóðar á alþjóðavettvangi.

Um Wicker
Í jaðri sjávarþorps býr kona sem sækir sjóinn; ógift, daunill og stöðugt skotmark stríðni bæjarbúa. Dag einn fær hún nóg af öllu og pantar sér eiginmann ofinn úr basti.
Í íhaldssömu samfélaginu vekur hinn óhefðbundni ráðahagur fljótt upp afbrýðisemi, hneykslun og uppnám, og áður en langt um líður logar þorpið stafna á milli.
Wicker er í leikstjórn Alex Huston Fischer og Eleanor Wilson og skartar Alexander Skarsgård, Olivia Colman, Peter Dinklage og Elizabeth Debicki í aðalhlutverkum.
Wicker verður sýnd í Háskólabíói 29. september kl. 19.
Hægt er að kaupa miða á Wicker hér. Takmarkaður fjöldi í boði.

