Gościni honorowa: Maria de Medeiros

Maria De Medeiros

Hin heimsþekkta leikkona Maria de Medeiros kemur á hátíðina í ár en hún hlýtur „Heiðursverðlaunum RIFF fyrir framúrskarandi listfengi.” 

María de Medeiros er ein virtasta kvikmyndaleikkona Portúgals, auk þess að vera leikstjóri og söngkona. Hún hefur átt glæsilegan alþjóðlegan feril í meira en fjóra áratugi og leikið í kvikmyndum á mörgum tungumálum. Hún vakti fyrst alþjóðlega athygli í mynd Philip Kauffman, Henry & June (1990), en varð heimsþekkt fyrir hlutverk sitt sem Fabienne í hinni sígildu mynd Quentin Tarantino, Pulp Fiction, sem er í hópi vinsælustu mynda síðustu áratuga og hlaut meðal annars Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 1994. 

Sem leikstjóri hefur de Medeiros einnig markað sér mikilvægan sess. Kvikmynd hennar Capitães de Abril (April Captains), um Nellikubyltinguna í Portúgal árið 1974, var frumsýnd í Un Certain Regard-flokki kvikmyndahátíðarinnar í Cannes. Á ferli sínum hefur hún unnið með mörgum af fremstu kvikmyndagerðarmönnum Evrópu og hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga, þar á meðal Coppa Volpi-verðlaunin fyrir bestu leikkonu á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.

Maria De Medeiros

RIFF sýnir Pulp Fiction eftir Quentin Tarantino á sérstakri sýningu að Mariu De Madeiros viðstaddri, og býður gestum upp á hamborgara og sjeik úr heimi myndarinnar í samstarfi við Hamborgarabúllu Tómasar. Keyptu miða hér:

Share this post

0