HRÖNN MARINÓSDÓTTIR MÆLIR MEÐ ÞESSUM
Við spurðum Hrönn Marinósdóttur hátíðarstjórnanda hvaða myndir eru í uppáhaldi hjá henni á dagskrá RIFF 2025. Okkur tókst að takmarka listann við 15 myndir – en hún hefði gjarnan viljað nefna fleiri.
Að neðan getur þú kynnt þér 15 uppáhaldsmyndir Hrannar (í engri sérstakri röð).
(US)
113mín
Leikstjóri: Eva Victor
Kolsvart gamandrama um Agnesi, ungan háskólakennara í sveitum Massachusetts sem fótar sig í tilverunni eftir að brotið var á henni kynferðislega. Myndin hefur hvarvetna hlotið mikið lof fyrir magnaða sögu, sem sögð er af hlýju í ólínulegum köflum, um áfall, seiglu, vináttu og bata.
(US)
123mín
Leikstjóri: Benny Safdie
Hér er sögð sagan af fjölbragðaglímukappanum Mark Kerr, sem faldi flóknar tilfinningar með hrikalegum fantabrögðum sínum í hringnum. Úr verður áhugaverð svipmynd þar sem ógurlegur styrkur felur brothætta sál.
(NO, LT, LV, FI, DK)
100mín
Leikstjóri: Janicke Askevold
Þegar Edith verður einstæð um fertugt afræður hún að eignast barn með aðstoð sæðisgjafa. En það reynist þrautin þyngri að vera einstæð móðir og hún fer að efast um ákvörðunina. Þegar hún kemst að því hver gjafinn er ákveður hún að hitta hann–án þess að gera sér grein fyrir afleiðingunum.
(IS, PL)
82mín
Leikstjóri: Yrsa Roca Fannberg
Með mjúkri nálgun og mildi fylgjumst við með sólsetri lífsins á hjúkrunarheimili í Reykjavík, þar sem tíminn lýtur annars konar lögmálum. Það er ljóðræna í hinu hversdagslega og minningarnar eru fallegar en hverfular eins og ljósblik á vatni í mynd Yrsu Roca Fannberg.
(SI, RS)
96mín
Leikstjóri: Miha Hocevar
Guti og Sig vakna ringlaðir og handjárnaðir saman við árbakka nálægt Ljubljana. Úr verður ævintýralegt gamandrama um nýtt upphaf og ólíkleg vináttubönd sem hjálpa okkur að finna stað okkar undir sólu – jafnvel þótt leitin krefjist 4.000 kílómetra ferðalags.
(IS, CA, CZ)
90mín
Leikstjóri: Jon Einarsson Gustafsson
Heimsfrumsýning á RIFF 2025. Eldgos stöðvar allt flug frá Íslandi og tveir ókunnugir ferðalangar verða strandaglópar. Með þeim takast kynni og þau ákveða að stela bíl til að komast að gosstöðvunum. Það sem hófst sem bíltúr breytist í ferðalag sem gjörbreytir lífi þeirra.
(FR)
156mín
Leikstjóri: Olivier Assayas
Eitt sinn var hann listamaður og sjónvarpsþátta- framleiðandi–síðar varð hann spunameistarinn sem kom Vladimir Pútín til valda um leið og samin var ímynd hins nýja Rússlands. Seinna rauf hann þögn sína og opinberaði veröld byggða á lygum og blekkingum.
(SK, CZ, PL)
103mín
Leikstjóri: Tereza Nvotová
Magnþrungin saga ungs föður sem tekst á við hið óhugsandi. Með ósveigjanlegri nánd og hugrekki gagnvart forminu tekst leikstjórinn á við sorg, sektarkennd og viðkvæma leit að fyrirgefningu – allt í einni samfelldri töku.
(SE, DK, NO)
87mín
Leikstjóri: Simon Klose
Blaðamaðurinn My Vingren fer huldu höfði meðal öfga-hægrisinna á Norðurlöndunum þar sem tilveran gengur út á netsmelli, ósannindi og hatur. Afraksturinn er þessi mynd; barátta einnar konu gegn eitruðum undirheimum.
(AT)
80mín
Leikstjóri: Natalie Halla
Sendiherra Afganistans í Vín, Manizha Bakhtari, stendur vaktina eftir valdatöku Talíbana og er skyndilega í forsvari fyrir ríki sem er ekki lengur viðurkennt. Hún heldur áfram baráttu sinni fyrir réttindum afganskra kvenna án viðurkenningar og undir sívaxandi þrýstingi.
(NO)
90mín
Leikstjóri: Åse Svenheim Drivenes
Tveir læknar í Tromsø berjast við að hjálpa ungu fólki með óútskýrð sjúkdómseinkenni. Á bak við þau standa fjölskyldur sem þrá svör og tveir læknar sem spyrja óhefðbundinna spurninga til að greina mynstur sem öðrum hafa yfirsést.
(ES, FR)
115mín
Leikstjóri: Oliver Laxe
Ung kona hverfur á rave-tónleikum í eyðimörkinni í suðurhluta Marokkó og faðir hennar og bróðir leggja af stað út í óbyggðirnar að leita hennar. Þessi lágstemmda en tilfinningaríka vegamynd er knúin áfram af von, trega og dynjandi danstónlist sem skilar feðgunum jafnt sem áhorfendum gegnum hrjóstrugt landslagið.
(US)
110mín
Leikstjóri: Kelly Reichardt
Það er á brattann að sækja í tilverunni fyrir smiðinn og úthverfapabbann J.B. Mooney. Til að rétta sinn hlut hyggst hann fremja bíræfið listaverkarán sem hefur ýmsar afleiðingar í för með sér í þessari kúnstugu og lágstemmdu mynd þar sem eftirminnilegar persónur knýja framvinduna áfram.
(AT, DE)
115mín
Leikstjórar: Elsa Kremser, Levin Peter
Masha er fyrirsæta frá Hvíta-Rússlandi að elta framadrauma í Kína, á meðan Misha, dulur listmálari sem vinnur í líkhúsi, lifir sínu lífi í skugganum. Brothætt ástarsamband þeirra – mótað af dauðanum, sjálfsmynd og jaðarlist – umturnar veröld þeirra beggja. Frumsýnd í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Locarno í ágúst 2025.
(ES, FR, PT)
126mín
Leikstjóri: Albert Serra
Hrá og óvægin svipmynd af nautabananum Andrés Roca Rey og hvert nautaat hans á fætur öðru. Leikstjórinn Albert Serra, sem hlaut heiðursverðlaun RIFF 2022 fyrir framúrskarandi listræna sýn, skoðar hér einveru nautabanans og þessa blóðugu dægradvöl.


