Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík mun sýna íslensku heimildamyndina Jörðin undir fótum okkar, sem Yrsa Roca Fannberg leikstýrir, á hátíðinni í ár.
Myndin hefur farið sigurför víða um Evrópu og hlotið einróma lof. Hún var frumsýnd á dönsku heimildamyndahátíðinni CPH:Dox. Myndin hefur þegar verið valin til sýninga á Gimli International Film Festival, Dok.fest Münich, DMZ International Documentary Film Festival og Nordisk Panorama við glimrandi undirtektir, og verður sýnd á RIFF 2025 að leikstjóranum viðstaddri en hún mun taka þátt í samræðum að sýningu lokinni.

,,Lífið á grund - fangað á filmu.”
Í heimildamyndinni Jörðin undir fótum okkar (The Ground Beneath Our Feat) bregðum við okkur í fylgd leikstjórans og fylgjumst við með sólsetri lífsins á hjúkrunarheimili í Reykjavík, þar sem tíminn lýtur sínum eigin lögmálum. Leikstjórinn Yrsa hefur sjálf starfað á hjúkrunarheimilinu Grund til margra ára og brennur fyrir málefnum eldri borgara. Í gegnum árin hefur hún myndað náin tengsl við heimilismenn sem jafnframt eru viðfangsefni myndarinnar. Sérstök sýning á myndinni fyrir heimilismenn og aðstandendur verður svo haldin á Grund 3. október. Í kjölfar RIFF fer myndin í sýningu í Bíó Paradís. Myndin fangar hið ljóðræna í hinu hversdagslega og minningarnar sem vitja eru fallegar en um leið hverfular. Þessi hugljúfa mynd Yrsu má heita lofsöngur um hvunndaginn þegar húmar að, í frásögn sem einkennist af mjúkri nálgun leikstjórans og mildi og aðgát í öllum efnistökum. Myndin er öll tekin upp á filmu og eftirvinnsla sérstaklega vönduð.
Heimildamyndin er framleidd af Akkeri films en þetta er í annað sinn sem framleiðslufyrirækið kemur að mynd leikstjórans. Hanna Björk Valdimarsdóttir er framkvæmdastjóri Akkeri films og aðalframleiðandi myndarinnar. Um hljóðmyndina sér eiginmaður Hönnu Bjarkar, Björn Viktorsson.
Á hátíðinni er kvikmyndin ein af 8 keppnismyndum í flokknum Vitranir, eða New Visions, og fer einnig fram fyrir dómnefnd unga fólksins.


