Hátíðarpassi Gjafakort

20,790 kr.

RIFF býður gjafahátíðarpassa á hátíðina. Passi á RIFF er tilvalin gjöf fyrir list-og kvikmyndaunnendur og fólk sem á allt.

Þessi passi gefur eiganda þess aðgang að öllum sýningum að eigin vali! Vinsamlegast athugið að hátíðarpassanum er hvorki hægt að deila með öðrum né nota á sérstaka viðburði nema annað sé tekið fram. Einn passi gildir einu sinni á hverja sýningu.

Gjafahátíðarpassinn gildir á RIFF sem haldin verður í 21. Sinn þann 26. september til 6. október 2024. 

Athugið að passar og klippikort RIFF eru rafræn. Við kaupin verður PDF-skrá gerð aðgengileg sem hægt er að hlaða niður og/eða prenta út. Einnig er unnt að sækja gjafakort á skrifstofu RIFF, Tryggvagötu 11, virka daga á milli kl. 10-12 og 13-17. Við bjóðum jafnramt upp á þann möguleika að senda gjafakort í pósti á kostnað viðtakenda. 

Miðasala RIFF opnar í Háskólabíói þann 23. September og verður opin frá kl. kl 11 – 15 fram að hátíð. Viðtakandi gjafakortsins getur síðan skipt því út fyrir passa í miðasölunni í Háskólabíó frá og með 23. september eða hvenær sem er á meðan hátíðinni stendur. 

Hátíðarpassinn er ekki endurgreiddur.