U20 Ungmennapassi Gjafakort

5,890 kr.

RIFF býður gjafaungmennapassa á hátíðina. U20 passi á RIFF er tilvalin gjöf fyrir list-og kvikmyndaunnendur og fólk sem á allt.

Þessi passi gefur eiganda þess aðgang að 4 sýningum að eigin vali! Ásamt taupoka frá RIFF og 30 mínútna inneign hjá Hopp. Vinsamlegast athugið að U20 ungmennapassanum er hvorki hægt að deila með öðrum né nota á sérstaka viðburði nema annað sé tekið fram. Einn passi gildir einu sinni á hverja sýningu og er einungis ætlaður þeim undir tvítugt.

Gjafahátíðarpassinn gildir á RIFF sem haldin verður í 22. Sinn þann 25. september til 5. október 2025. 

Athugið að passar og klippikort RIFF eru rafræn. Við kaupin verður PDF-skrá gerð aðgengileg sem hægt er að hlaða niður og/eða prenta út. Einnig er unnt að sækja gjafakort á skrifstofu RIFF, Tryggvagötu 11, virka daga á milli kl. 10-12 og 13-17. Við bjóðum jafnramt upp á þann möguleika að senda gjafakort í pósti á kostnað viðtakenda. 

Viðtakandi gjafakortsins getur síðan skipt því út fyrir passa í miðasölunni í Háskólabíó frá og með 22. september 2025 eða hvenær sem er á meðan hátíðinni stendur. 

Ungmennapassinn er ekki endurgreiddur.