0%
Riff Logo

Tónar og töfrar: Hinsegin kórinn og Fado Bicha

Háskólabíó
1. október, kl 20:30

RIFF býður á sérstaka tónleika þar sem hinseginleikanum er fagnað á einstakan hátt.

Í sal 1 í Háskólabíói stíga á svið Hinsegin kór Reykjavíkur og portúgalska hljómsveitin Fado Bicha

Fado Bicha er dúett frá Lissabon sem fer eigin leiðir við að endurskilgreina eina þekktustu og ástsælustu tónlistarhefð Portúgals, fado-söngva. Söngvarinn Lila Fadista og gítarleikarinn João Caçador ljá fado nýja rödd með því að tvinna saman hefð og samtíma og fjalla um sjálfsmynd, kyn og samfélagsbreytingar. Dúettinn stígur á svið ásamt Hinseginkór Reykjavíkur á einstökum viðburði þar sem íslensk kórhefð mætir portúgalskri þjóðlagatónlist.

Hálftíma fyrir tónleikana, kl. 20:00, tekur portúgalska stórleikkonan Maria de Medeiros við Heiðursverðlaunum RIFF fyrir framúrskarandi listfengi. Miðahafar eru hjartanlega velkomnir á verðlaunaafhendinguna.

4 900 kr.

Uppselt

Lýsing

Tengdar vörur

DAGSKRÁ

Karfa

Engar vörur í körfunni.
0